Fótbolti

Fjögur lið fara inn í helgina án þess að hafa tapað deildar­leik

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Lærisveinar Christian Streichhead hafa ekki enn tapað leik í deildinni.
Lærisveinar Christian Streichhead hafa ekki enn tapað leik í deildinni. Stuart Franklin/Getty Images

Liverpool, Freiburg AC Milan og Napoli hafa ekki enn tapað leik í deildum sínum í Evrópufótboltanum. Þau eiga flest erfiða leiki fyrir höndum um helgina og gætu því öll tapað sínum fyrsta deildarleik um helgina

Þó Bayern München hafi farið vel af stað undir stjórn Julian Nagelsmann þá tapaði liðið óvænt fyrir Eintracht Frankfurt á heimavelli í síðasta mánuði sem og það steinlá í bikarnum – ekki að það skipti máli hér.

Bæjarar geta bundið enda á gott gengi Freiburg sem hefur unnið sex og gert fjögur jafntefli í fyrstu 10 leikjum sínum í þýsku úrvalsdeildinni til þessa. Freiburg heimsækir München á morgun og ekki eru taldar miklar líkur á að Freiburg verði enn taplaust að leik loknum.

Á Englandi eru lærisveinar Jürgen Klopp eina liðið sem hefur ekki tapað leik. Líkt og Freiburg hefur Liverpool unnið sex leiki og gert fjögur jafntefli. Liðið hefur gert jafntefli við bæði Chelsea og Manchester City ásamt því að vinna stórsigur á fjendum sínum í Manchester United.

Þá snúum við okkur til Ítalíu þar sem tvö lið eiga enn eftir að tapa leik. Napoli og AC Milan eru jöfn á toppi Serie A með 31 stig eftir 11 leiki, bæði lið hafa unnið tíu leiki og gert eitt jafntefli.

Napoli mætir Juventus-bönunum í Verona um helgina á meðan AC Milan fær nágranna sína Inter í „heimsókn.“ Ítalíumeistararnir sitja í 3. sæti og ljóst að spennan í Serie A hefur sjaldan verið meiri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×