Innlent

Einn fluttur á slysa­deild eftir um­ferðar­ó­happ í Hval­firði

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Sjúkraflutningamenn frá höfuðborgarsvæðinu voru sendir á vettvang.
Sjúkraflutningamenn frá höfuðborgarsvæðinu voru sendir á vettvang. Vísir/vilhelm

Einn var fluttur á slysadeild til skoðunar eftir að umferðaróhapp varð í Hvalfirði um klukkan 12:30 í dag. Sjúkrabíll og dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins voru sendir á vettvang, auk lögreglu. 

Óhappið varð á Hvalfjarðarvegi um kílómetra frá Vesturlandsvegi sunnan við Hvalfjarðargöng. Tvær bifreiðar áttu þar hlut að máli en ekki fengust frekari upplýsingar um tildrög óhappsins. Ekki urðu verulegar umfarðartafir á vettvangi vegna óhappsins og er vinnu viðbragðsaðila á vettvangi lokið.

Fréttin var uppfærð klukkan 13:42.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×