Innlent

Börkur vill einnig bætur og ívið hærri en Annþór

Jakob Bjarnar og Nadine Guðrún Yaghi skrifa
Annþór og Börkur. Samanlagðar kröfur þeirra á hendur ríkinu eru nú rúmlega 130 milljónir.
Annþór og Börkur. Samanlagðar kröfur þeirra á hendur ríkinu eru nú rúmlega 130 milljónir.

Börkur Birgisson, sem handtekinn var ásamt Annþóri Kristjáni Karlssyni, vegna gruns um að hafa valdið dauða Sigurðar Hólm Sigurðssonar á Litla Hrauni 2012, hefur stefnt íslenska ríkinu.

Greint var frá stefnu Annþórs í vikunni en krafa hans nemur 64 milljónum króna. Þorgils Þorgilsson, lögmaður Barkar, segir kröfu Barkar ívið hærri en kröfu Annþórs. Nú er beðið eftir greinargerð frá ríkislögmanni en þar fer Guðrún Sesselja Arnardóttir með málið. Þetta þýðir að samanlagðar kröfur þeirra eru rúmlega 130 milljónir.

Annþór og Börkur voru sýknaðir og vilja nú bætur fyrir meint tjón og miska sem þeir voru beittir á meðan rannsókn málsins stóð en báðir voru þá vistaðir á öryggisgangi í eitt og hálft ár. Áður hafa þeim verið greiddar bætur vegna gæsluvarðahalds sem þeir máttu sæta vegna málsins. Hvor um sig fengu þeir greiddar tæpar tvær milljónir, en þurftu af því að greiða í málskostnað rúmar 600 þúsund krónur samanlagt.

Eins og um var fjallað á sínum tíma ríkti hálfgert ógnarástand á Litla Hrauni fyrir og eftir andlát Sigurðar Hólm og mun vistun þeirra Annþórs og Barkar á öryggisgangi hafa verið liður í því að ná tökum á ástandinu. Engar vitnaleiðslur verða við aðalmeðferð máls Annþórs sem verður á föstudag sem þýðir að hvorki Annþór né Páll Winkel fangelsismálastjóri munu gefa skýrslu.

Vísir mun eftir sem áður fylgjast með gangi mála.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×