Innlent

Þúsund lítrar af sýru láku á Bíldu­dal

Árni Sæberg skrifar
Slökkviliðsmenn notuðu bæði kalk og vatn til að takast á við slysið.
Slökkviliðsmenn notuðu bæði kalk og vatn til að takast á við slysið. Vísir

Slökkvilið Vesturbyggðar sinnti útkalli í nótt vegna mengunarslyss þegar þúsund lítrar af maurasýru láku úr bamba á iðnaðarsvæði á Bíldudal. Engan sakaði en maurasýra er gríðarlega ertandi, bæði við snertingu og innöndun.

Þetta segir Davíð Rúnar Gunnarsson, slökkviliðsstjóri í Vesturbyggð, í samtali við fréttastofu. Hann segir að mannskapur af þremur stöðvum hafi sinnt útkallinu, frá Patreksfirði, Bíldudal og Tálknafirði.

Voru að afferma bílinn um miðja nótt

Um klukkan eitt í nótt hafi verið að afferma flutningabíl fullan af bömbum fylltum maurasýru á iðnaðarsvæði þegar gat kom á einn bambann. Maurasýra er notuð í margvíslegum tilgangi, svo sem í fóðurgerð, votheysgerð og verkun á ýmsum fiskiafurðum.

Hér má sjá svokallaðan bamba.Vísir

Davíð Rúnar segir að starfsmönnnum á svæðinu hafi tekist að forða sér án þess að fá á sig maurasýruna eða anda henni að sér í of miklu magni. Maurasýra sé svo ertandi að hún brenni í gegnum hefðbundinn slökkviliðsbúning. Þá sé uppgufun af henni skaðleg bæði öndunarfærum og augum.

Engin hætta á ferð lengur

Hann segir að slökkvilið hafi notað kalk til þess að vega upp á móti sýrunni og hlutleysa hana. Sýnataka hafi staðreynt að hætta væri ekki lengur til staðar eftir aðgerðir slökkviliðsins. Jarðvegurinn á svæðinu sé þó gljúpur og einhver sýra hafi því lekið niður í jarðveginn og þaðan út í sjó. Maurasýra blandist vel vatni og því sé ekki talið að nein hætta sé á ferð.

Þá segir hann að svæðið sé iðnaðarsvæði og lítil íbúabyggð sé í nágrenni þess. Því hafi íbúum Bíldudals engin hætta stafað af mengunarslysinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×