Grikkir saka Bucks um að þvinga Antetokounmpo í að gefa ekki kost á sér fyrir Eurobasket Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 20. ágúst 2017 12:30 Giannis Antetokounmpo í leik með Milwaukee Bucks. Mynd/Getty
Gríska körfuknattleikssambandið hefur sakað Milwaukee Bucks um að koma í veg fyrir að Giannis Antetokounmpo spili á Evrópumótinu í Finnlandi.Antetokounmpo tilkynnti á samfélagsmiðlum í gær að hann yrði ekki með gríska landsliðinu á Evrópumótinu vegna hnémeiðsla.Sjá einnig: Besti leikmaður Grikkja missir af Eurobasket Um klukkutíma eftir tilkynningu Antetokounmpo sendi gríska sambandið frá sér sína eigin tilkynningu þar sem það sakaði Bucks um skipulagðar aðgerðir gegn því að Antetokounmpo spili á Evrópumótinu „Tilkynningar Milwaukee Bucks og Giannis Antetokounmpo sjálfs, sem bárust símleiðis og á samfélagsmiðlum en ekki með viðurkenndum hætti, þess efnis um að hann geti ekki spilað með landsliðinu eru vonbrigði, en koma ekki á óvart.“ „Röð atvika hefur sannfært okkur um skipulagða áætlun liðsins að þvinga leikmanninn til þess að spila ekki með landsliðinu.“ Talsmaður sambandsins, Takis Tsagronis, sagði að myndataka sem Antetokounmpo hafi farið í á vegum sambandsins hafi ekki sýnt nein vandamál með hné leikmannsins. „Við gerðum allt sem við gátum til þess að koma í veg fyrir að Bucks hefðu afsökun til þess að Antetokounmpo spilaði ekki. Við settum hann í segulómun sem sýndi að það er ekkert að hnénu á honum. Það sem Bucks eru að halda fram er ekki rétt, það er eitthvað annað í gangi.“ Grikkir eru andstæðingar Íslands í fyrsta leik Evrópumótsins, sem fram fer 31. ágúst næst komandi.
Körfubolti Tengdar fréttir Tap gegn Ungverjum Íslenska landsliðið í körfubolta tapaði 81-66 gegn Ungverjalandi í vináttulandsleik í dag. Leikurinn var liður í undirbúningi liðanna fyrir Evrópumótið sem hefst í lok mánaðarins. 19. ágúst 2017 16:30 Mest lesið Áhorfandi fékk sex milljónir fyrir ótrúlegt skot Fótbolti „Viðbjóðsleg“ frammistaða sem lætur stjóra missa starfið Enski boltinn Leikurinn ekki stöðvaður þó svo maður hafi dáið í stúkunni Enski boltinn Ten Hag verði ekki rekinn Enski boltinn „Væri gaman að spila við þá í hverri einustu viku” Íslenski boltinn Simeone kennir Courtois um ólætin Fótbolti Fær Njarðvík frekar stimpilinn? Íslenski boltinn Stillti upp fartölvu til að mótmæla Fótbolti Meistararnir finna alltaf leið til að vinna Sport Uppgjörið: Valur - Víkingur 2-3 | Draumamark Tariks kom Víkingi á toppinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Taka inn nýjan mann eftir stutt stopp Franck í Þorlákshöfn Tryggvi með tíu í fyrsta leik Valsmenn neituðu að veita viðtöl „Mátti þetta ekki í Þýskalandi“ Martin magnaður í fyrsta sigrinum „Einhver náttúrulegasta þrenna sem ég hef séð“ Uppgjörið: Valur - Keflavík 88-98 | Öruggt hjá Keflavík og Finnur rekinn úr húsi Uppgjörið: Keflavík - Þór Ak. 82-86 | Þór skellti meisturunum Knicks og Timberwolves opna leikmannamarkaðinn með látum Ísold eltir annan draum: „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka í lífinu“ Tryggvi Snær í riðlakeppni Evrópubikarsins Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Sjá meira
Tap gegn Ungverjum Íslenska landsliðið í körfubolta tapaði 81-66 gegn Ungverjalandi í vináttulandsleik í dag. Leikurinn var liður í undirbúningi liðanna fyrir Evrópumótið sem hefst í lok mánaðarins. 19. ágúst 2017 16:30