Tvenna Kristófers ekki nóg og Furman úr leik Tómas Þór Þórðarson skrifar 7. mars 2016 11:00 Kristófer Acox spilaði með Íslandi á Smáþjóðaleikunum í fyrra. vísir/ernir
Kristófer Acox, landsliðsmaður í körfubolta, og félagar hans í Furman-háskólanum komust ekki í úrslitaleik suðurdeildarinnar, en Furman tapaði fyrir East Tennessee State í undanúrslitum í nótt, 84-76. Furman hafnaði í þriðja sæti deildarinnar en East Tennessee í öðru sæti. Það mætir svo Chattanooga í úrslitaleiknum en sigurvegarinn þar kemst í sjálfa úrslitakeppnina, March Madness, þar sem 64 bestu lið bandarísku háskólakörfunnar leiða saman hesta sína. Þetta var í þriðja sinn sem Furman og East Tennessee mætast en þau unnu sitthvorn leikinn í deildakeppninni. Kristófer skoraði tíu stig í sigurleiknum gegn ETSU í deildinni en 16 stig í tapleiknum. Kristófer Acox átti flottan leik í nótt. Hann var næst stigahæstur í liði Furman með 17 stig og tók lang flest fráköst eða ellefu stykki. Hann gaf eina stoðsendingu, stal einum bolta og hitti úr sjö af tólf skotum sínum í leiknum. Kristófer lauk tímabilinu með 9,1 stig að meðaltali í leik sem er 2,1 stigum meira en í fyrra, en frákastameðaltal hans lækkaði úr 7,8 í leik í 5,8. Enginn tók fleiri fráköst en KR-ingurinn á síðustu leiktíð.
Körfubolti Mest lesið Áhorfandi fékk sex milljónir fyrir ótrúlegt skot Fótbolti Ten Hag verði ekki rekinn Enski boltinn „Viðbjóðsleg“ frammistaða sem lætur stjóra missa starfið Enski boltinn Leikurinn ekki stöðvaður þó svo maður hafi dáið í stúkunni Enski boltinn Simeone kennir Courtois um ólætin Fótbolti „Væri gaman að spila við þá í hverri einustu viku” Íslenski boltinn Sjáðu mörkin: Hetjan Tarik lyfti Víkingum á toppinn | Sjö mörk KR kaffærðu Fram Íslenski boltinn Spilar ekki í deildinni fyrr en í nóvember Enski boltinn Spilar ekki gegn Arsenal eftir hávaðarifrildi Fótbolti Fær Njarðvík frekar stimpilinn? Íslenski boltinn Fleiri fréttir Dikembe Mutombo látinn Enginn „heimsendir“ verði Keflavík ekki Íslandsmeistari Teitur valdi besta Íslendinginn í Bónus deildinni Taka inn nýjan mann eftir stutt stopp Franck í Þorlákshöfn Tryggvi með tíu í fyrsta leik Valsmenn neituðu að veita viðtöl „Mátti þetta ekki í Þýskalandi“ Martin magnaður í fyrsta sigrinum „Einhver náttúrulegasta þrenna sem ég hef séð“ Uppgjörið: Valur - Keflavík 88-98 | Öruggt hjá Keflavík og Finnur rekinn úr húsi Uppgjörið: Keflavík - Þór Ak. 82-86 | Þór skellti meisturunum Knicks og Timberwolves opna leikmannamarkaðinn með látum Ísold eltir annan draum: „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka í lífinu“ Tryggvi Snær í riðlakeppni Evrópubikarsins Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Sjá meira