Jakob sjóðheitur fyrir utan þriggja stiga línuna í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. janúar 2016 20:33 Jakob Sigurðarson. Vísir/Stefán
Ein af fimm þriggja stiga körfum Jakobs Sigurðarsonar kom á hárréttum tíma þegar Borås Basket vann þriggja stiga útisigur á Jämtland Basket, 91-88, í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta. Jakob kom Borås liðinu þá yfir í 89-88 með þristi þegar tuttugu sekúndur voru eftir af leiknum en liðsfélagi hans innsiglaði síðan sigurinn á vítalínunni. Jakob Sigurðarson var stigahæstur í liði Borås ásamt tveimur öðrum en allir skoruðu þeir 19 stig. Jakob skoraði sín 19 stig á tæpum 35 mínútur en hann hitti meðal annars úr 5 af 6 þriggja stiga skotum sínum í leiknum. Jakob var einnig með 2 fráköst og 2 stoðsendingar. Borås-liðið var búið að tapa tveimur deildarleikjum í röð og tapaði einnig Evrópuleik í vikunni. Sigurinn í kvöld var því mikilvægur. Jämtland var tíu stigum yfir eftir fyrsta leikhlutann, 29-19, en Jakob og félagar komu sér aftur inn í leikinn með því að vinna annan leikhlutann 25-16. Seinni hálfleikurinn var síðan æsispennandi og íslenski bakvörðurinn átti mikinn þátt í sigrinum með þessari dýrmætu þriggja stiga körfu í blálokin.
Körfubolti Mest lesið Áhorfandi fékk sex milljónir fyrir ótrúlegt skot Fótbolti Ten Hag verði ekki rekinn Enski boltinn Leikurinn ekki stöðvaður þó svo maður hafi dáið í stúkunni Enski boltinn „Viðbjóðsleg“ frammistaða sem lætur stjóra missa starfið Enski boltinn Simeone kennir Courtois um ólætin Fótbolti Dikembe Mutombo látinn Körfubolti Liverpool ekki meistaraefni: „Eru langt á eftir City og Arsenal“ Enski boltinn „Væri gaman að spila við þá í hverri einustu viku” Íslenski boltinn Spilar ekki gegn Arsenal eftir hávaðarifrildi Fótbolti Sjáðu mörkin: Hetjan Tarik lyfti Víkingum á toppinn | Sjö mörk KR kaffærðu Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir Dikembe Mutombo látinn Enginn „heimsendir“ verði Keflavík ekki Íslandsmeistari Teitur valdi besta Íslendinginn í Bónus deildinni Taka inn nýjan mann eftir stutt stopp Franck í Þorlákshöfn Tryggvi með tíu í fyrsta leik Valsmenn neituðu að veita viðtöl „Mátti þetta ekki í Þýskalandi“ Martin magnaður í fyrsta sigrinum „Einhver náttúrulegasta þrenna sem ég hef séð“ Uppgjörið: Valur - Keflavík 88-98 | Öruggt hjá Keflavík og Finnur rekinn úr húsi Uppgjörið: Keflavík - Þór Ak. 82-86 | Þór skellti meisturunum Knicks og Timberwolves opna leikmannamarkaðinn með látum Ísold eltir annan draum: „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka í lífinu“ Tryggvi Snær í riðlakeppni Evrópubikarsins Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Sjá meira