Jakob aftur með tuttugu stiga leik og sigur í Evrópukeppninni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. nóvember 2015 19:43 Jakob Örn Sigurðarson í leik með íslenska landsliðinu. Vísir/Valli
Jakob Örn Sigurðarson og félagar í sænska liðinu Borås Basket byrja vel í FIBA Europe Cup því liðið sótti tvö stig til Austurríkis í kvöld. Borås Basket vann þá fimm stiga sigur á Kapfenberg Bulls, 85-80, og er því með fullt hús eftir tvo fyrstu leiki sína í Evrópukeppninni í ár. Jakob fylgdi eftir góðum fyrsta leik með því að skora yfir tuttugu stig annan Evrópuleikinn í röð en hann var með 22 stig, 5 fráköst og 3 stoðsendingar í kvöld. Jakob skoraði 21 stig í fyrsta leiknum þegar liðið vann öruggan sigur á FoxTown Cantu 101-81. Jakob var í miklu stuði fyrir utan þriggja stiga línuna í kvöld en hann hitti úr 6 af 10 skotum sínum fyrir utan hana. Jakob skoraði helminginn af þristum síns liðs í kvöld. Jakob skoraði fimm af fyrstu sex stigum Borås-liðsins í leiknum en Borås náði ekki að fylgja því eftir. Leikmenn Kapfenberg Bulls voru sterkari, komust í 15-8 og voru 18-13 yfir eftir fyrsta leikhlutann. Borås vann sig inn í leikinn í örðum leikhlutanum. Jakob endaði síðan hálfleikinn á því að smella niður þriggja stiga skoti og koma Borås Basket yfir í 38-37 fyrir hálfleik. Jakob var kominn með tíu stig í hálfleik. Borås vann þriðja leikhlutann 23-18 og var komið með frumkvæðið í leiknum enda sex stigum yfir fyrir lokaleikhlutann, Jakob kom Borås í 68-60 þegar 7:48 voru eftir en hann var þá kominn með 22 stig í leiknum. Það leit út fyrir að Borås væri að landa öruggum sigri en annað kom á daginn. Liðsmenn Kapfenberg Bulls breyttu stöðunni úr 60-68 í 72-68 og við tóku æsispennandi lokamínútur. Borås-liðið var hinsvegar sterkara á lokamínútunum og tryggði sér góðan útisigur.
Körfubolti Tengdar fréttir Jakob með sterkar taugar á vítalínunni og Borås vann Jakob Örn Sigurðarson og félagar í Borås hafa byrjað tímabilið frábærlega í sænska körfuboltanum en liðið vann Norrköping Dolphins í kvöld eftir spennandi lokamínútur. 13. október 2015 18:50 Annar tuttugu stiga leikur Jakobs á tímabilinu Jakob Örn Sigurðarson og félagar í Borås Basket komust aftur á sigurbraut í kvöld þegar liðið vann afar sannfærandi heimasigur á Jämtland Basket í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta. 22. október 2015 18:39 Jakob öflugur í öruggum sigri Sænska liðið Borås Basket vann góðan sigur á ítölsku liði í FIBA Europa Cup. 27. október 2015 19:30 Jakob stigahæstur í sigri Borås Jakob Örn Sigurðarson var stigahæstur í liði Borås Basket sem vann 11 stiga sigur, 82-71, á Malbas í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. 7. október 2015 19:30 Haukur Helgi í góðum hópi leikmanna sem komið hafa heim til að hlaða batteríin Haukur Helgi Pálsson spilar í kvöld sinn fyrsta leik með Njarðvíkingum og það á heimavelli Íslandsmeistaranna. Haukur er ekki fyrsti lykilleikmaður íslenska landsliðsins sem kemur heim til að endurnýja sig. 30. október 2015 06:00 Mest lesið Áhorfandi fékk sex milljónir fyrir ótrúlegt skot Fótbolti Ten Hag verði ekki rekinn Enski boltinn „Viðbjóðsleg“ frammistaða sem lætur stjóra missa starfið Enski boltinn Leikurinn ekki stöðvaður þó svo maður hafi dáið í stúkunni Enski boltinn Simeone kennir Courtois um ólætin Fótbolti „Væri gaman að spila við þá í hverri einustu viku” Íslenski boltinn Sjáðu mörkin: Hetjan Tarik lyfti Víkingum á toppinn | Sjö mörk KR kaffærðu Fram Íslenski boltinn Spilar ekki í deildinni fyrr en í nóvember Enski boltinn Spilar ekki gegn Arsenal eftir hávaðarifrildi Fótbolti Fær Njarðvík frekar stimpilinn? Íslenski boltinn Fleiri fréttir Dikembe Mutombo látinn Enginn „heimsendir“ verði Keflavík ekki Íslandsmeistari Teitur valdi besta Íslendinginn í Bónus deildinni Taka inn nýjan mann eftir stutt stopp Franck í Þorlákshöfn Tryggvi með tíu í fyrsta leik Valsmenn neituðu að veita viðtöl „Mátti þetta ekki í Þýskalandi“ Martin magnaður í fyrsta sigrinum „Einhver náttúrulegasta þrenna sem ég hef séð“ Uppgjörið: Valur - Keflavík 88-98 | Öruggt hjá Keflavík og Finnur rekinn úr húsi Uppgjörið: Keflavík - Þór Ak. 82-86 | Þór skellti meisturunum Knicks og Timberwolves opna leikmannamarkaðinn með látum Ísold eltir annan draum: „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka í lífinu“ Tryggvi Snær í riðlakeppni Evrópubikarsins Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Sjá meira
Jakob með sterkar taugar á vítalínunni og Borås vann Jakob Örn Sigurðarson og félagar í Borås hafa byrjað tímabilið frábærlega í sænska körfuboltanum en liðið vann Norrköping Dolphins í kvöld eftir spennandi lokamínútur. 13. október 2015 18:50
Annar tuttugu stiga leikur Jakobs á tímabilinu Jakob Örn Sigurðarson og félagar í Borås Basket komust aftur á sigurbraut í kvöld þegar liðið vann afar sannfærandi heimasigur á Jämtland Basket í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta. 22. október 2015 18:39
Jakob öflugur í öruggum sigri Sænska liðið Borås Basket vann góðan sigur á ítölsku liði í FIBA Europa Cup. 27. október 2015 19:30
Jakob stigahæstur í sigri Borås Jakob Örn Sigurðarson var stigahæstur í liði Borås Basket sem vann 11 stiga sigur, 82-71, á Malbas í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. 7. október 2015 19:30
Haukur Helgi í góðum hópi leikmanna sem komið hafa heim til að hlaða batteríin Haukur Helgi Pálsson spilar í kvöld sinn fyrsta leik með Njarðvíkingum og það á heimavelli Íslandsmeistaranna. Haukur er ekki fyrsti lykilleikmaður íslenska landsliðsins sem kemur heim til að endurnýja sig. 30. október 2015 06:00