Jakob með sterkar taugar á vítalínunni og Borås vann Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. október 2015 18:50 Jakob Örn Sigurðarson í leik með íslenska landsliðinu á Eurobasket. Vísir/Getty
Jakob Örn Sigurðarson og félagar í Borås hafa byrjað tímabilið frábærlega í sænska körfuboltanum en liðið vann Norrköping Dolphins í kvöld eftir spennandi lokamínútur. Borås missti niður tíu stiga forystu á lokasekúndunum en náði að landa tveggja stiga heimasigri, 91-89. Jakob hitti ekki vel í leiknum en hann skoraði sex mikilvæg stig á síðustu 80 sekúndum leiksins sem vógu þungt þegar upp var staðið. Jakob endaði með 8 stig, 3 fráköst og 2 stolna bolta. Borås Basket hefur unnið þrjá fyrstu leiki sína í deildinni og er annað af tveimur taplausum liðum sænsku úrvalsdeildarinnar en hitt taplausa liðið eru Svíþjóðarmeistarar síðustu þriggja ára úr Södertälje Kings. Jakob var stigahæsti leikmaður Borås Basket í tveimur fyrstu leikjunum með 21,0 stig að meðaltali en hann fann sig ekki alveg nógu vel í kvöld. Jakob hitti úr 2 af 9 skotum en setti niður öll fjögur vítin sín sem komu öll á úrslitastundu leiksins. Borås Basket var tíu stigum yfir fjórum mínútum fyrir leikslok en þá komu níu stig í röð hjá Norrköping Dolphins og munurinn var aðeins eitt stig, 82-81, þegar 95 sekúndur voru eftir.
Körfubolti Tengdar fréttir Hörður Axel skorar á eldri leikmenn landsliðsins Hörður Axel Vilhjálmsson, leikmaður íslenska landsliðsins í körfuknattleik, skrifaði stuttan en skemmtilegan pistil á Facebook-síðu sinni eftir helgina þar sem hann skorar á eldri leikmenn landsliðsins að taka þátt í næstu undankeppni. 16. september 2015 12:55 Jakob stigahæstur í sigri Borås Jakob Örn Sigurðarson var stigahæstur í liði Borås Basket sem vann 11 stiga sigur, 82-71, á Malbas í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. 7. október 2015 19:30 Mest lesið Áhorfandi fékk sex milljónir fyrir ótrúlegt skot Fótbolti Ten Hag verði ekki rekinn Enski boltinn „Viðbjóðsleg“ frammistaða sem lætur stjóra missa starfið Enski boltinn Leikurinn ekki stöðvaður þó svo maður hafi dáið í stúkunni Enski boltinn Simeone kennir Courtois um ólætin Fótbolti „Væri gaman að spila við þá í hverri einustu viku” Íslenski boltinn Sjáðu mörkin: Hetjan Tarik lyfti Víkingum á toppinn | Sjö mörk KR kaffærðu Fram Íslenski boltinn Spilar ekki í deildinni fyrr en í nóvember Enski boltinn Spilar ekki gegn Arsenal eftir hávaðarifrildi Fótbolti Fær Njarðvík frekar stimpilinn? Íslenski boltinn Fleiri fréttir Dikembe Mutombo látinn Enginn „heimsendir“ verði Keflavík ekki Íslandsmeistari Teitur valdi besta Íslendinginn í Bónus deildinni Taka inn nýjan mann eftir stutt stopp Franck í Þorlákshöfn Tryggvi með tíu í fyrsta leik Valsmenn neituðu að veita viðtöl „Mátti þetta ekki í Þýskalandi“ Martin magnaður í fyrsta sigrinum „Einhver náttúrulegasta þrenna sem ég hef séð“ Uppgjörið: Valur - Keflavík 88-98 | Öruggt hjá Keflavík og Finnur rekinn úr húsi Uppgjörið: Keflavík - Þór Ak. 82-86 | Þór skellti meisturunum Knicks og Timberwolves opna leikmannamarkaðinn með látum Ísold eltir annan draum: „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka í lífinu“ Tryggvi Snær í riðlakeppni Evrópubikarsins Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Sjá meira
Hörður Axel skorar á eldri leikmenn landsliðsins Hörður Axel Vilhjálmsson, leikmaður íslenska landsliðsins í körfuknattleik, skrifaði stuttan en skemmtilegan pistil á Facebook-síðu sinni eftir helgina þar sem hann skorar á eldri leikmenn landsliðsins að taka þátt í næstu undankeppni. 16. september 2015 12:55
Jakob stigahæstur í sigri Borås Jakob Örn Sigurðarson var stigahæstur í liði Borås Basket sem vann 11 stiga sigur, 82-71, á Malbas í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. 7. október 2015 19:30