Hlynur tryggði Drekunum sigur á toppliðinu með flautukörfu Tómas Þór Þórðarson skrifar 3. mars 2015 20:00 Hlynur Bæringsson var góður í kvöld. vísir/valli
Hlynur Bæringsson var hetja Sundsvall Dragons í kvöld þegar liðið vann Norrköping Dolhpnis, annað af tveimur toppliðum sænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta, á útivelli, 84-83. Sundsvall var stigi undir, 83-82, fyrir síðustu sóknina. Jakob Örn Sigurðarson reyndi þriggja stiga skot þegar sex sekúndur voru eftir en hitti ekki. Það kom ekki að sök því landsliðsfyrirliðinn Hlynur hirti sóknarfrákastið og skoraði sigurkörfuna um leið og leiktíminn rann út. Lokatölur, 84-83. Jakob Örn skoraði 16 stig og tók 4 fráköst en Hlynur var með tvennu upp á 14 stig og 11 fráköst auk þess sem hann gaf 6 stoðsendingar. Ægir Þór Steinarsson skoraði þrjú stig og gaf tvær stoðsendingar en Ragnar Nathanaelsson tók eitt frákast fyrir Drekana sem eru í fimmta sæti deildarinnar. Haukur Helgi Pálsson var ekki með LF Basket í kvöld sem valtaði yfir Umeå BSKT, 96-46. LF er með 42 stig eins og Sundsvall. Þetta var ekki gott kvöld fyrir toppliðin því Södertälje Kings, sem er á toppnum ásamt Norrköping, tapaði fyrir Sigurði Gunnari Þorsteinssyni og félögum í Solna Vikings á heimavelli, 89-79. Sigurður spilaði ríflega 20 mínútur í leiknum, skoraði 10 stig og tók átta fráköst. Hann hitti úr fimm af átta skotum sínum úr teignum. Solna er í sjöunda sæti með 26 stig.
Körfubolti Mest lesið Áhorfandi fékk sex milljónir fyrir ótrúlegt skot Fótbolti Ten Hag verði ekki rekinn Enski boltinn Leikurinn ekki stöðvaður þó svo maður hafi dáið í stúkunni Enski boltinn „Viðbjóðsleg“ frammistaða sem lætur stjóra missa starfið Enski boltinn Simeone kennir Courtois um ólætin Fótbolti Dikembe Mutombo látinn Körfubolti Liverpool ekki meistaraefni: „Eru langt á eftir City og Arsenal“ Enski boltinn „Væri gaman að spila við þá í hverri einustu viku” Íslenski boltinn Spilar ekki gegn Arsenal eftir hávaðarifrildi Fótbolti Sjáðu mörkin: Hetjan Tarik lyfti Víkingum á toppinn | Sjö mörk KR kaffærðu Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir Dikembe Mutombo látinn Enginn „heimsendir“ verði Keflavík ekki Íslandsmeistari Teitur valdi besta Íslendinginn í Bónus deildinni Taka inn nýjan mann eftir stutt stopp Franck í Þorlákshöfn Tryggvi með tíu í fyrsta leik Valsmenn neituðu að veita viðtöl „Mátti þetta ekki í Þýskalandi“ Martin magnaður í fyrsta sigrinum „Einhver náttúrulegasta þrenna sem ég hef séð“ Uppgjörið: Valur - Keflavík 88-98 | Öruggt hjá Keflavík og Finnur rekinn úr húsi Uppgjörið: Keflavík - Þór Ak. 82-86 | Þór skellti meisturunum Knicks og Timberwolves opna leikmannamarkaðinn með látum Ísold eltir annan draum: „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka í lífinu“ Tryggvi Snær í riðlakeppni Evrópubikarsins Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Sjá meira