Drekarnir fyrstir til að vinna toppliðið Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. janúar 2014 20:25 Hlynur Bæringsson í leik með Sundsvall Dragons. Vísir/Valli
Hlynur Bæringsson var með tröllatvennu þegar að Sundsvall Dragons varð fyrsta liða í sænsku úrvalsdeildinni til að leggja Borås Basket að velli þetta tímabilið. Borås hafði unnið fyrstu 22 leikina í vetur fyrir kvöldið en eftir jafnan fyrri hálfleik virtist toppliðið ætla að sigla fram úr. En Íslendingaliðið Sundsvall spýtti í lófana í lokin og náði forystunni, 72-71, þegar rúmar þrjár mínútur voru eftir. Borås skoraði aðeins eitt stig eftir þetta og Jakob Örn Sigurðarson innsiglaði sigurinn endanlega af vítalínunni þegar lítið var eftir af leiknum. Hlynur var bæði stiga- og frákastahæstur í liði Drekanna með sextán stig og fimmtán fráköst. Hann stal boltanum einnig fjórum sinnum og gaf tvær stoðsendingar. Jakob Örn skoraði tíu stig í leiknum, tók fjögur fráköst og gaf eina stoðsendingu. Hann stal boltanum einnig fjórum sinnum. Ægir Þór Steinarsson lék ekki með Sundsvall vegna meiðsla. Staða toppliðanna breyttist þó ekki í kvöld. Borås er enn á toppnum með 44 stig en Södertälje er í öðru sæti með 40 stig. Sundsvall kemur svo næst með 28 stig.
Körfubolti Mest lesið Áhorfandi fékk sex milljónir fyrir ótrúlegt skot Fótbolti Uppgjörið og viðtöl: Stjarnan - ÍA 3-0 | Stjarnan gerir atlögu að Evrópusætinu Íslenski boltinn Liverpool ekki meistaraefni: „Eru langt á eftir City og Arsenal“ Enski boltinn Ten Hag verði ekki rekinn Enski boltinn Dikembe Mutombo látinn Körfubolti Leikurinn ekki stöðvaður þó svo maður hafi dáið í stúkunni Enski boltinn Ætla að sniðganga leikinn við Víking Fótbolti „Viðbjóðsleg“ frammistaða sem lætur stjóra missa starfið Enski boltinn Simeone kennir Courtois um ólætin Fótbolti Spilar ekki gegn Arsenal eftir hávaðarifrildi Fótbolti Fleiri fréttir Heimamenn kláruðu dæmið í fyrri hálfleik Dómarinn fyrrverandi segir Bruno hafa átt að fá gult Leikmenn láta í sér heyra: „Við erum í hættu“ Liverpool ekki meistaraefni: „Eru langt á eftir City og Arsenal“ Spilar ekki í deildinni fyrr en í nóvember Ten Hag verði ekki rekinn Leikurinn ekki stöðvaður þó svo maður hafi dáið í stúkunni „Viðbjóðsleg“ frammistaða sem lætur stjóra missa starfið Dagný fékk gult þegar Hamrarnir nældu í sitt fyrsta stig Delap bjargaði stigi fyrir nýliðina Tottenham lék tíu United-menn grátt Upphafið að endinum hjá Ten Hag? Gerði grín að Konaté sem vildi verða maður leiksins Willum Þór skoraði í endurkomu sigri Birmingham Einstakt afrek Brentford dugði skammt en Everton vann loksins Arsenal skaut Refina í blálokin Palmer skoraði fernu í fyrri hálfleik Liverpool á toppnum „Við tökum stiginu“ Vandræði Man City án Rodri halda áfram Stuðningsmaður safnað milljónum eftir að völlur félagsins skemmdist Markvarslan Alisson í blóð borin Efast um dugnað og hugarfar Rashford Tímabilið búið hjá Rodri Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Sjá meira