Finn það á æfingunum að alvaran er að byrja Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. október 2011 08:00 Helena Sverrisdóttir, sem er jafnan númer 4, spilar í nýju númeri með slóvakíska liðinu Dobri Anjeli.
Helena Sverrisdóttirkörfuboltakona hefur stigið mörg tímamótaskref fyrir íslenska kvennakörfu þrátt fyrir ungan aldur og hún mun taka eitt í viðbót í Kraká í Póllandi á morgun. Hún er á sínu fyrsta ári með slóvakísku meisturunum í Dobri Anjeli og eftir létta sigra í deildinni er komið að því að mæta pólsku meisturunum í Wisla Kraká í fyrsta Euroleague-leik tímabilsins. „Þetta er mjög spennandi. Maður finnur það á æfingunum og á stjórninni að alvaran er að byrja. Við erum búnar að spila þrjá leiki í deildinni en pressan er núna orðin meiri á æfingum,“ segir Helena, sem kann vel við sig og liðsfélagana. „Mér líður mjög vel og liðsandinn er rosalega skemmtilegur. Við búum nánast allar í sömu byggingunni og það er stemmning í kringum það,“ segir Helena, sem er farin að spreyta sig í slóvakískunni. „Ég er alltaf að fá hrós fyrir að ég sé dugleg að tala en ég er farin að geta talið upp í tuttugu og farin að skilja flest á körfuboltavellinum. Þetta tungumál er samt rosalega flókið,“ segir Helena, en hún verður ekki í byrjunarliðinu í Póllandi. „Ég er búin að byrja inn á í flestum leikjum en eftir smá spjall við þjálfarann vill hann að ég komi inn sem sjötti maður,“ segir Helena, sem fékk þó skýr skilboð um að hún væri að standa sig vel og ætti bara að halda sínu striki. Helena spilaði við góðan orðstír með TCU undanfarna fjóra vetur í bandaríska háskólaboltanum en er nú að stíga sín fyrstu spor sem atvinnumaður. „Maður þarf að breyta hugarfarinu því í háskólanum snérist þetta alltaf um að læra og læra meira. Það var ekki eins mikið pressuástand en núna er búið að setja mikla peninga í mig þannig að mér er ætlað að gera mitt besta og helst meira en það. Það er fullt af góðum leikmönnum og ég get aldrei slakað á. Það er aldrei tími, hvort sem ég er í vörn eða sókn,“ segir Helena. Helena og félagar hafa byrjað tímabilið vel heima fyrir, en liðið er með þrjá stóra sigra í fyrstu þremur leikjum sínum. Helena var með 17 stig í 85 stiga sigri á Roznava um helgina. „Það eru kannski tvö til þrjú góð lið í slóvakísku deildinni en hingað til höfum við verið að vinna með 70 til 80 stigum. Við erum búnar að fá fullt af fínum æfingaleikjum í bland við þessa rústleiki,“ segir Helena. Mótherjinn á morgun er sterkur, enda búinn að komast í átta liða úrslit Euroleague undanfarin tvö tímabil. „Leikmennirnir eru allir eldri og reyndari, en við ættum að geta hlaupið á þær og reynt að nota okkar styrkleika. Við erum með ungt lið en við erum ferskar og ættum að vera búnar að spila okkur vel saman undanfarið. Ég hef þá tilfinningu að við eigum góðan möguleika á miðvikudaginn ef við spilum eins vel og við getum,“ segir Helena að lokum.
Körfubolti Mest lesið Áhorfandi fékk sex milljónir fyrir ótrúlegt skot Fótbolti Ten Hag verði ekki rekinn Enski boltinn Leikurinn ekki stöðvaður þó svo maður hafi dáið í stúkunni Enski boltinn „Viðbjóðsleg“ frammistaða sem lætur stjóra missa starfið Enski boltinn Simeone kennir Courtois um ólætin Fótbolti Dikembe Mutombo látinn Körfubolti Liverpool ekki meistaraefni: „Eru langt á eftir City og Arsenal“ Enski boltinn „Væri gaman að spila við þá í hverri einustu viku” Íslenski boltinn Spilar ekki gegn Arsenal eftir hávaðarifrildi Fótbolti Sjáðu mörkin: Hetjan Tarik lyfti Víkingum á toppinn | Sjö mörk KR kaffærðu Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir Dikembe Mutombo látinn Enginn „heimsendir“ verði Keflavík ekki Íslandsmeistari Teitur valdi besta Íslendinginn í Bónus deildinni Taka inn nýjan mann eftir stutt stopp Franck í Þorlákshöfn Tryggvi með tíu í fyrsta leik Valsmenn neituðu að veita viðtöl „Mátti þetta ekki í Þýskalandi“ Martin magnaður í fyrsta sigrinum „Einhver náttúrulegasta þrenna sem ég hef séð“ Uppgjörið: Valur - Keflavík 88-98 | Öruggt hjá Keflavík og Finnur rekinn úr húsi Uppgjörið: Keflavík - Þór Ak. 82-86 | Þór skellti meisturunum Knicks og Timberwolves opna leikmannamarkaðinn með látum Ísold eltir annan draum: „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka í lífinu“ Tryggvi Snær í riðlakeppni Evrópubikarsins Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Sjá meira