Þjóðverjar unnu Tyrki og héldu voninni á lífi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. september 2011 16:58 Dirk Nowitzki. Mynd/AP
Þjóðverjar eiga enn möguleika á því að komast í átta liða úrslitin á EM í körfubolta í Litháen eftir 73-67 sigur á Tyrkjum í æsispennandi leik í milliriðli eitt í dag. Annan leikinn í röð þurftu Tyrkir að sætta sig við að missa niður forskot en þýska liðið skoraði aðeins 6 stig í fyrsta leikhlutanum. Chris Kaman var með 20 stig og 7 fráköst hjá Þjóðverjum og Dirk Nowitzki var með 19 stig, 7 fráköst og 3 stoðsendingar. Hetja liðsins var þó bakvörðurinn Philipp Schwethelm sem skoraði 11 af 14 stigum sínum í lokaleikhlutanum. Chicago-maðurinn Ömer Asik var atkvæðamestur í tyrkneska liðinu með 19 stig og 11 fráköst en Enes Kanter, sem Utah Jazz valdi í nýliðavalinu í sumar, skoraði 11 stig á 19 mínútum. Hidayet Türkoglu lét sér nægja að skora 9 stig á 32 mínútum. Þýska liðið komst upp með það að tapa fyrsta leikhlutanum 6-13 og tapa fráköstunum 34-43 en Tyrkir náðu 17 sóknarfráköstum í þessum leik. Þjóðverjar unnu þrjá síðustu leikhlutana og tryggðu sér mikilvægan sigur. Serbía, Þýskaland og Tyrkland eru nú öll með 1 sigur og 3 töp fyrir lokaumferðina en þar mætast Serbía og Tyrkland en Þjóðverjar spila við heimamenn í Litháen. Fjögur efstu liðin komast í átta liða úrslitin og því kemst líklega aðeins eitt af fyrrnefndu þremur liðum upp úr milliriðlinum.
Körfubolti Mest lesið Áhorfandi fékk sex milljónir fyrir ótrúlegt skot Fótbolti Ten Hag verði ekki rekinn Enski boltinn Leikurinn ekki stöðvaður þó svo maður hafi dáið í stúkunni Enski boltinn „Viðbjóðsleg“ frammistaða sem lætur stjóra missa starfið Enski boltinn Simeone kennir Courtois um ólætin Fótbolti Dikembe Mutombo látinn Körfubolti Liverpool ekki meistaraefni: „Eru langt á eftir City og Arsenal“ Enski boltinn „Væri gaman að spila við þá í hverri einustu viku” Íslenski boltinn Spilar ekki gegn Arsenal eftir hávaðarifrildi Fótbolti Sjáðu mörkin: Hetjan Tarik lyfti Víkingum á toppinn | Sjö mörk KR kaffærðu Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir Dikembe Mutombo látinn Enginn „heimsendir“ verði Keflavík ekki Íslandsmeistari Teitur valdi besta Íslendinginn í Bónus deildinni Taka inn nýjan mann eftir stutt stopp Franck í Þorlákshöfn Tryggvi með tíu í fyrsta leik Valsmenn neituðu að veita viðtöl „Mátti þetta ekki í Þýskalandi“ Martin magnaður í fyrsta sigrinum „Einhver náttúrulegasta þrenna sem ég hef séð“ Uppgjörið: Valur - Keflavík 88-98 | Öruggt hjá Keflavík og Finnur rekinn úr húsi Uppgjörið: Keflavík - Þór Ak. 82-86 | Þór skellti meisturunum Knicks og Timberwolves opna leikmannamarkaðinn með látum Ísold eltir annan draum: „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka í lífinu“ Tryggvi Snær í riðlakeppni Evrópubikarsins Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Sjá meira