Erlent

32 látnir eftir skotárás í bandarískum háskóla

32 eru látnir eftir skotárás í Virgina-tækniháskólanum í Blacksburg í Virginiuríki í Bandaríkjunum í dag. Um 20 manns eru á spítala með skotsár. Talið er að einn maður hafi verið að verki í í tveimur árásum með um tveggja klukkustunda millibili.

Samkvæmt nýjustu fregnum var byssumaðurinn ungur karlmaður af asískum uppruna. Hann mun hafa komið inn í skólann að leita að kærustunni sinni, vopnaður skammbyssu og hóf brátt skothríðina. Hann fór meðal annars inn í skólastofu og skaut á nemendur sem þar voru og síðan á heimavist skólans.

Dagmar Kristín Hannesdóttir, sem er í doktorsnámi í sálfræði við skólann, sagðist í samtali við Stöð 2 að klukkustund hafi verið liðin af fyrstu kennslustund morgunsins þegar fréttir bárust af því að byssumaður væri laus í skólanum. Hún sagði að yfirmaður hefði komið og beðið um að kennslustofunni yrði læst þegar í stað. Það var gert strax og við tók bið í eina og hálfa klukkustund. Dagmar segir að þann tíma hafi takmarkaðar fréttir af ástandinu borist þeim. Síðan þegar ljóst hafi orðið hversu margir voru drepnir hafi alger skelfing gripið um sig í skólanum. "Ég brotnaði alveg saman, ég hafði ekki áttað mig á því að þetta væri svona rosalegt," sagði Dagmar í samtali við Stöð 2 í kvöld.

George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, hefur lýst yfir hryllingi vegna skotárásanna. Talsmaður hans sagði hann fyrst og fremst hugsa um fjölskyldur þeirra sem létu lífið og að hann samhryggðist þeim.

Óstaðfestar fregnir herma að fleiri kunni að vera látnir en ekki liggur fyrir hvort árásarmaðurinn hafi svipt sig lífi. Sjónvottar sögðu að nemendur jafnvel stokkið út á fjórðu hæð skólans til að forðast árásarmanninn. Ekki er vitað hvort að byssumaðurinn hafi verið nemandi í skólanum. 26 þúsund manns eru í skólanum. Allri kennslu hefur verið hætt í honum og var fólki sem statt var á háskólasvæðinu ráðlagt að læsa að sér og halda sig frá gluggum.

Tólf létu lífið í sams konar skotárás í Columbine-framhaldsskólanum í Littleton í Colorado árið 1999. Þá særðust 24.

Lögreglumenn sjást hér bera fólk út úr skólanum.AP
Fréttamynd úr CNN í dagAP
Lögreglumenn á vakt fyrir utan skólann.AP
Lögreglumaður sést hér handtaka einn á skólalóðinni í tengslum við skotárásirnar.AP
Önnur mynd úr útsendingu CNN í dag.AP
Lögreglumenn að störfum á skólalóðinni.AP
Skjámynd úr útsendingu CNN í dag.AP
Lögreglumenn bera saman bækur sínar áður en þeir fara inn á skólalóðina.AP
Lögreglumenn bera sært fólk út úr skólabyggingunni.AP
Lögreglumenn sjást hér bera sært fólk úr einni af byggingum skólans.AP



Fleiri fréttir

Sjá meira


×