Erlent

Missti framan af nefi eftir slagsmál við eiginkonur sínar

Maður frá Sádi-Arabíu varð fyrir fólskulegri árás tveggja kvenna nýverið og missti framan af nefinu á sér. Konunar eru giftar honum og árásin var tilkomin vegna hótana mannsins um að giftast þriðju konunni.

Judaie Ibn Salem hélt að hótun hans yrði til þess að leysa deilur um skiptingu á húsinu en konurnar réðust þá gegn eiginmanni sínum. Salem sagði í viðtölum við fjölmiðla eftir árásina að hann yrði hreinlega að giftast þriðju konunni til þess að halda virðingu sinni. Samkvæmt lögum í Sádi-Arabíu mega menn ganga að eiga allt að fjórar konur og er fjölkvæni ekki óalgengt í landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×