Erlent

Slóveni lýkur Amazon sundi

Rúmlega fimmtugur Slóveni afrekaði um helgina fyrstur allra að synda niður Amazon fljótið eins og það leggur sig. Slóveninn var skiljanlega hálf vankaður þegar hann kom á leiðarenda, enda meira en fimm þúsund kílómetrar að baki og mikil og hörð barátta við ofskynjanir, örmögnun og pírana fiska.

Ef afrekið fæst staðfest hefur Slóveninn, sem gengur undir nafninu „fiskmaðurinn", enn og aftur slegið heimsmetið í langsundi svo um munar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×