Erlent

Íranar tilbúnir að fara samningaleiðina

Ali Larijani er einnig yfirmaður öryggisráðs Írans.
Ali Larijani er einnig yfirmaður öryggisráðs Írans. MYND/AFP

Bretar segjast ætla að leita nánari upplýsinga frá Írönum eftir að þeir síðarnefndu tilkynntu að þeir vildu leysa sjóliðadeiluna með samningaviðræðum. Ali Larijani, einn af helstu samningamönnum Írana í kjarnorkumálum, sagði í gær að Íranar leggðu ekki áherslu á að lögsækja sjóliðana 15 fyrir meint brot þeirra.

Íranar lögðu þó einnig áherslu á að þeir hefðu rétt fyrir sér og að hvers konar hótanir eða harðorðar kröfur í garð þeirra myndu valda vandamálum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×