Erlent

Lifði af fall af níundu hæð

Það þykir ganga kraftaverki næst að fimm ára gamall drengur komst lífs af þegar hann féll út um glugga af níundu hæð fjölbýlishúss í Hamilton í Ontario-fylki í Kanada. Móðir drengsins var að þrífa heimili þeirra þegar slysið varð og því var gluggi íbúðarinnar opinn upp á gátt. Til allrar hamingju féll drengurinn á grasflöt fyrir neðan, örskammt frá steinsteyptri stétt. Höggið var svo þungt að dæld myndaðist í grasið. Báðir fótleggir stráksa brotnuðu en að öðru leyti eru meiðsli hans hverfandi. Læknar segja að hann muni ná sér fljótlega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×