Erlent

Refsingum hótað

Margaret Beckett, utanríkisráðherra Bretlands.
Margaret Beckett, utanríkisráðherra Bretlands. MYND/AP

Íranar láta að því liggja að bresku sjóliðarnir fimmtán, sem handteknir voru á dögunum, verði ákærðir og þeim refsað fyrir landhelgisbrot. Margaret Beckett, utanríkisráðherra Bretlands, kveðst áhyggjufull yfir stefnu íranskra stjórnvalda í málinu en hún sendi þeim opinbert svarbréf vegna þess í dag.

Rúm vika er síðan sjóliðarnir voru handteknir við eftirlitsstörf í Shatt al-Arab-ósnum í botni Persaflóa, að sögn stjórnvalda í Teheran vegna þess að þeir voru í íranskri lögsögu. Örlög þeirra hafa undanfarna daga verið bitbein ríkisstjórna Bretlands og Írans og virðist deila þeirra fara stöðugt harðnandi. Í gærkvöld fullyrti Gholam-Reza Ansari, sendiherra Írans í Rússlandi í samtali við þarlenda sjónvarpsstöð, að rannsókn stæði nú yfir á meintum brotum sjóliðanna og komi í ljós nægar vísbendingar um sekt þeirra verða þeir ákærðir og dregnir fyrir dóm. Ansari skoraði auk þess á bresk stjórnvöld að viðurkenna mistök sín og biðjast afsökunar á þeim. Litlar líkur eru á að honum verði að ósk sinni. Tony Blair forsætisráðherra Bretlands fór mjög hörðum orðum um Írana í gær eftir að þeir birtu sjónvarpsmynd af einum sjóliðanna þar sem hann baðst velvirðingar á að hafa siglt inn í lögsöguna. Utanríkisráðherrar ESB skoruðu svo á Írana að láta sjóliðana lausa tafarlaus og án skilyrða.

Ansari sagði raunar í dag að þýðendur hefðu oftúlkað orð sín en málið væri þó í lagalegum farvegi. Margaret Beckett utanríkisráðherra Bretlands lét í ljós áhyggjur yfir þessu útspili sendiherrans nú síðdegis en sagði það þó engu breyta um afstöðu sína. Hún hefur sent írönsku ríkisstjórninni formlegt andmælabréf vegna málsins.

Komið hefur til tals að Bandaríkjamenn láti úr haldi fimm liðsmenn íranska byltingarvarðarins sem þeir handtóku í írösku borginni Irbil í ársbyrjun gegn því að bresku sjóliðunum verði sleppt. Formælandi bandaríska utanríkisráðuneytisins vísaði þessum hugmyndum hins vegar á bug í gær og sjóliðarnir munu því dúsa áfram í prísund sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×