Erlent

Þyrla skotin niður í Mogadishu

Reykur stígur upp frá flugvellinum þar sem þyrlan fórst.
Reykur stígur upp frá flugvellinum þar sem þyrlan fórst. MYND/AFP

Uppreisnarmenn í Sómalíu skutu eþíópska þyrlu niður í Mogadishu í morgun. Þetta er annar dagur átaka í höfuðborginni eftir að herir Sómalíu og Eþíópíu réðust harkalega gegn íslamistum og ættbálkaherliðum. Yfir 30 manns hafa látist frá því í átakið hófst.

Sprengjum rigndi yfir íbúahverfi og vitni sáu tvær eþíópískar þyrlur skjóta á virki uppreisnarmanna rétt áður en flugskeyti hitti aðra þyrluna.

Eugen Sorg, svissneskur fréttamaður sem var á staðnum, horfði á atburðarrásina af húsþaki í nágrenninu. Hann sagði þyrluna hafa hrapað til jarðar og lent á enda flugbrautar.

Átökin nú eru þau verstu í borginni í marga mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×