Erlent

Lögregla á Filippseyjum yfirheyrir mannræningja

Lögreglan, í Maníla á Filippseyjum, yfirheyrir nú mann sem reyndi að knýja fram siðbót í landinu með því að ræna rúmlega þrjátíu börnum. Hann hélt þeim, og kennurum þeirra, í gíslingu í rútu við ráðhúsið í höfuðborginni í nærri tíu tíma.

Annar tveggja manna sem tóku börnin þrjátíu og tvö og tvo kennara þeirra í gíslingu heitir Jun Ducat og er eigandi barnaheimilisins þaðan sem börnin voru að fara í skólaferð í morgun. Börnin eru á aldrinum fjögurra til sex ára. Skömmu eftir að gíslatakan hófst var einu barni sleppt þar sem það var lasið og með sótthita. Rútunni var lagt fyrir utan ráðhúsið í Manila og gerði Ducat þá grein fyrir því að með gíslatökunni vildi hann fordæma spillingu í landinu og krefjast þess að fátækum börnum Filippseyja yrði tryggt betra líf. Lögregla umrkingdi rútuna. Ducat gerði lögreglu grein fyrir því að hann og bandamaður hans væru vopnaði byssum og hands prengjum og hefðu tekið með mat og drykki fyrir alla til tveggja daga.

Foreldrar barnanna komu þegar á vettvang og biðu þar milli vonar og ótta.

Reynt var að semja við Ducat og vinur hans á þingi meðal annars sendur inn til þess. Að lokum tókst að tryggja lausn barnanna og kennaranna og þau fengu frelsi skömmu fyrir hádegi að íslenskum tíma. Þá voru mannræningjarnir þegar handteknir.

Ducat hefur að sögn lögreglu áður tekið gísla. Það var síðla á níunda áratug síðustu aldar þegar hann tók tvo presta í gíslingu vegna deilna um kirkjubyggingu. Hann flúði af vettvangi eftir nokkra stund og kom þá í ljós að hann ógnaði prestunum með leikfangahandsprengjum og engin hætta á ferð. Fyrir sex árum sóttist Ducat svo eftir því að taka þátt í stjórnmálum og bauð sig fram til þings. Hann náði ekki kjöri. Ducat stofnaði svo barnaheimilið fyrir þremur árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×