Erlent

Bauð hveiti og myrti

Tvær bílsprengjur urðu 45 manns að bana og særðu 103 í borginni Tal Afar í norðvesturhluta Íraks. Í öðru tilræðinu lokkaði bílstjóri vörubíls fólk til sín með því að bjóða því ódýrt hveiti til sölu. Þegar það safnaðist að vörubílnum sprengdi hann farminn. Hitt tilræðið var á bílastæði í borginni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×