Erlent

Hættulegasta kona Þýskalands gengur laus

Birgiette Monhaupt, einn forsprakka Rauðu herdeilda Baader-Meinhof, var látin laus úr fangelsi í Þýskalandi í dag. Þar hefur hún mátt dúsa í nær aldarfjórðung. Henni var á árum áður lýst sem einni hættulegustu konu Þýskalands enda hlaut hún fimmfaldan lífstíðardóm fyrir morð og hryðjuverk.

Það voru þau Andreas Baader og Ulrike Meinhof sem stofnuðu Baader-Meinhof hryðjuverkahópinn seint á sjöunda áratug síðustu aldar. Hópurinn spratt úr grasrót stúdentamótmæla og andstöðu við Víetnamstríðið. Ulrike og Andreas fyrirfóru sér þegar þau voru handtekin árið 1977 en Mohnhaupt var fulltrúi annarar kynslóðar í hryðjuverkasamtökunum. Árið 1982 var Mohnhaupt handtekin og síðan dæmd í fimmfalt lífstíðarfangelsi fyrir mannrán, morð og hermdarverk.

Meðal glæpa voru ránið á Hans-Martin Schleyer, formanni vestur-þýska alþýðusambandsins, árið 1977 en það vakti óhug um reiði um allt land. Þess var krafist að stofnendur Rauðu herdeildanna, sem voru fangelsaðir 1972, yrðu látnir lausir í skiptum fyrir hann. Helmut Schmidt, þáverandi kanslari Vestur-Þýskalands, varð ekki við þeirri kröfu og þá rændu arabískir bandamenn þeirra farþegaþotu Lufthansa sem var á leið til Sómalíu. Þýskum sérsveitarmönnum tókst að frelsa gíslana. Skömmu síðar fannst lík Schleyers í skotti á bíl í Frakklandi.

Dómari úrskurðaðið í síðasta mánuði að Monhaupt skyldi látin laus. Forsendur reynslulausnar væru uppfylltar og skýrt tekið fram að ekki væri um náðun að ræða. Mohnhaupt væri ekki talin ógn við umhverfi sitt lengur þó hún iðrist einskis og hafi á sínum tíma verið sögð illskan holdi klædd og hættulegasta kona Þýskalands.

Hún mun þó hafa viðurkennt að tími vopnaðrar baráttu væri liðinn og gert sér grein fyrir þeim sársauka sem hún hafi valdið ættingjum fórnarlamba sinna.

Ákvörðunin hefur verið umdeild í Þýskalandi en saksóknari segir mikilvægt að meðhöndla Mohnhaupt eins og hvern annan glæpamann. Gæta þurfi jafnræðis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×