Erlent

Hættulegasta kona Þýskalands látin laus

Brigitte Mohnhaupt, sem á árum áður var sögð hættulegasta kona Þýskalands, var látin laus úr fangelsi í morgun. Hún hefur mátt dúsa í fangaklefa í tæpan aldarfjórðun vegna aðildar hennar að morðum og hryðjuverkum Rauðu herdeildanna á áttunda og níunda áratug síðustu aldar.

Mohnhaupt fékk fimmfaldan lífstíðardóm fyrir óhæfuverkin. Saksóknari segir forsendur reynslulausnar uppfylltar og ekki sé um náðun að ræða. Mohnhaupt sé ekki lengur talin ógn við umhverfi sitt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×