Erlent

Ground control to Major Tom

Ground control to Major Tom.
Ground control to Major Tom.

Frakkar hafa fyrstir þjóða opnað X-skýrslurnar svokölluðu, þar sem er að finna allar rannsóknir og tilkynningar til stjórnvalda um fljúgandi furðuhluti. Allar skýrslurnar hafa verið settar á sérstaka netsíðu. Talsmaður frönsku geimrannsóknarstofnunarinnar segir að þeir vonist til að með þessu verði hægt að tala um fyrirbærið án blindrar trúar eða fordóma.

Það var áhugi Charles de Gaulles, fyrrverandi forseta, á fljúgandi furðuhlutum, sem varð til þess að Frakkland var eitt af fyrstu löndunum sem skipaði sjálfstæðan hóp rannsakenda til þess að fylgjast með hlutunum. Mest hafði þessi hópur að gera á sjöunda áratugnum, þegar þeir rannsökuðu um 100 mál á hverju ári.

Samkvæmt geimferðastofnuninni er í langflestum tilfellum hægt að finna eðlilegar skýringar á þeim fyrirbærum sem rannsökuð hafa verið. Í 28 prósentum tilfella er þó ekki hægt að finna neina rökræna skýringu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×