Erlent

Eiginkona Edwards með krabbamein

John Edwards og eiginkona hans Elizabeth sjást hér tala við fréttamenn fyrr í dag.
John Edwards og eiginkona hans Elizabeth sjást hér tala við fréttamenn fyrr í dag. MYND/AFP
Elizabeth Edwards, eiginkona John Edwards sem er að vonast til þess að hljóta útnefningu demókrata sem forsetaframbjóðandi þeirra, hefur greinst með krabbamein. Um er að ræða brjóstakrabbamein sem er að taka sig upp á ný. Nú er það komið í beinin. Upp komst þegar að hún rifbeinsbrotnaði og þurfti að fara í röntgenmyndatöku.

Elizabeth segist þó halda í vonina og að hún ætli sér að vera bjartsýn í baráttunni sem er framundan, hvort sem það er gegn krabbameininu eða í kosningaslag eiginmanns hennar. John Edwards, eiginmaður hennar, segist ætla að halda kosningabaráttu sinni áfram þrátt fyrir þetta áfall.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×