Erlent

88 ára kona skotin fimm sinnum í svefni

88 ára kona er nú á batavegi á sjúkrahúsi í Flórídaríki í Bandaríkjunum eftir að hafa verið skotin fimm sinnum á meðan hún svaf heima hjá sér. Lögregan í Orange County er ennþá að rannsaka hvers vegna ráðist var á hana. Hún telur að skotárásin hafi ekki verið tilviljun en er enn að leita að hugsanlegu tilefni. Lögreglan hefur enn enga grunaða í málinu.

Vitni segja að þau hafi séð þrjá menn yfirgefa vettvanginn en árásin átti sér stað á aðfaranótt mánudags. Dóttir konunnar, sem býr í sama húsi, varð næstum fyrir skoti þegar að árásarmennirnir gengu berserksgang og skutu í allar áttir. Þegar um hafði hægst lét hún lögreglu síðan vita.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×