Erlent

Írakar svartsýnir

Írakar eru svartsýnir á framtíðina, samkvæmt nýrri viðhorfskönnun. Flestir óttast að týna lífi í átökum og treysta ekki innrásarliðum. Í nótt eru fjögur ár frá upphafi Íraksstríðsins. Von um bjarta framtíð hefur vikið fyrir svartnætti í huga almennra Íraka.

Það var fyrir fjórum árum í nótt sem innrás Bandríkjamanna og bandamanna þeirra í Írak hófst. Saddam Hússein, fyrrverandi forseta var steypt af stóli og landið hernumið. Fyrstu dagana var innrásarliðinu tekið sem frelsandi englum og tæpum tveimur mánuðum eftir innrásina lýsti George Bush, Bandaríkjaforseti því hátíðlega yfir að helstu hernaðaraðgerðum í Írak væri lokið. Það reyndist nokkuð fjarri lagi. Saddam Hússein hefur verið tekinn af lífi en það hefur ekki dregið úr átökum í landinu, sem hafa magnast ef eitthvað er. Trúarbrot gegn trúarbrotum - andspyrnumenn gegn innrásarliði og her og öryggissveitir gagn andspyrnumönnum.

Fyrir tveimur árum horfðu flestir Írakar bjartsýnum augum fram á veginn en flestir þeirra eru nú svartsýnir á framtíðina samkvæmt nýrri könnun sem Breska ríkisútvarpið, ABC sjónvarpsstöðin bandaríska, ARD í Þýskalandi, og bandaríska blaðið USA Today létu gera. Aðeins 18% þeirra treysta innrásarliðinu til að stilla til friðar í landinu og tæp 90% Íraka óttast að þeir sjálfir eða einhverjir nákomnir falli í átökum.

Súnníar og sjíar deila um framtíð Íraks og eru sammála um ástandið í landinu hafi versnað síðan 2003. Íbúi í Tíkrit, heimabæ Saddams, segir ástandið á valdatíma hans hafa verið gott. Lífskjör góð og efnahagsástand betra. Írakar, súnníar og sjíar, hafi lifað saman í sátt og samlyndi og getað unnið saman.Sjíi í Sadr-borg í Bagdad segir Íraka hafa vonað að ástandið yrði betra. Það hafi hins vegar í raun versnað til muna. Enginn sé óhultur, sprengingar dag hvern, morð framin og átök súnnía og sjía harðni. Hús hans hafi sem dæmi verði sprengt í loft upp og hann misst son sinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×