Erlent

5 fórust í flugslysi

Að minnsta kosti 5 týndu lífi og rúmlega 50 slösuðust þegar farþegaflugvél af gerðinni TU-134 skall harkalega til jarðar í nauðlendingu í borginni Samara í Rússlandi í morgun.

Vélin var í aðflugi þegar í ljós kom að hjólabúnaðurinn að framan vildi ekki niður. Var því ákveðið að nauðlenda og kom vélin þá svo harkalega niður að bolur hennar fór í sundur. Ekki er vitað hvað olli bilun í lendingarbúnaði vélarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×