Erlent

Þrír lögreglumenn ákærðir vegna skotárásar

Þrír lögreglumenn í New York verða ákærðir fyrir að hafa skotið 50 skotum að þremur óvopnuðum blökkumönnum og drepið einn þeirra aðeins nokkrum klukkutímum áður en hann átti að gifta sig. Skorárásin átti sér stað 25. nóvember á síðasta ári. Gríðarleg reiði braust út á meðal svertingja í New York eftir að atvikið átti sér stað.

Verið var að steggja manninn sem lést en hann var á leið útaf skemmtistað. Lögreglan hóf skothríð á hann og tvo vini hans þegar þeir voru komnir inn í bíl sinn. Lögreglumennirnir héldu að einn þeirra hefði farið í bílinn til þess að sækja sér byssu í þeim tilgangi að útkljá deilu á skemmtistaðnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×