Erlent

Sjúkrahús í niðurníðslu í Írak

Sjúkrahús eru skítug í Írak, lyf vantar og læknar hverfa frá landinu í stórum hópum. Mikil þörf er á læknisaðstoð í Írak þar sem fjölmargir örkumlast í átökum á degi hverjum. Forsætisráðherra Bretlands segir ekki hægt að kenna vesturveldunum um hörmungarnar í landinu nú.

Al Sadr háskólasjúkrahúsið í Basra var eitt það fullkomnasta í Írak fyrir innrás Bandaríkjamanna og bandamanna þeirra fyrir tæpum fjórum árum. Það er nú skugginn af sjálfu sér. Vopnaðir verðir eru nú við innganga þess. Læknar innan dyra þurfa að vinna með úreltan búnað og algengt er að rafmang fari af í lengri eða skemmri tíma.

Verstur er þó lyfjaskorturinn. Las Falal, lyfjafræðingur, segist hafa heyrt af því að fjölmargir sjúklingar í Írak hafi látist þar sem þeir hafi ekki fengið lyfin sín. Þau lyf sem berist séu síðan útrunnin og gagnist því engum. Krabbameinslyf eru nær engin og ekki hægt að veita öllum sem þurfa lyfjameðferð. Yfirvöld segja endurreisn landsins í fullum gangi. Innviðir landsins séu illa farnir og því þurfi að forgangsraða sem hafi verið gert.

Enginn er óhultur í Írak. Hvorki almennir borgarar né háttsettir stjórnmálamenn. Abdul Aziz al-Hakeem, leiðtogi stærsta stjórnmálaflokks Sjía, hefur misst alla bræður sína og óttast sífellt um eigið líf. Methal Al-Alosi, er þingmaður súnnía. Hann missti tvo syni sína í árás skömmu eftir að annar þeirra gekk í það heilaga. Þeir hafi orðið fyrir árás um fimmtíu metra frá fjölskylduheimilinu. Hann hafi heyrt byssugeltið og hlaupið út með vopn í hendi. Það hafi hins vegar verið um seinan.

Tony Blair, forsætisráðherra, segist harma dauðsföll meðal almennra borgar í Írak en ekki sé hægt að skella skuldinni á Bandaríkjamenn, Breta eða önnur ríki sem tóku þátt í innrásinni. Sumir segir að fólk sé að deyja Írak, sem sé hræðilegt, og því eigi erlend herlið að fara frá Írak.

Blair spyr á móti hver sé að myrða almenna Íraka? Það séu ekki bandamenn - ekki breskir hermenn eða Bandarískir - heldur hryðjuverkamenn og þeir sem vilji koma rót á landið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×