Erlent

VRÚÚMMMMM

Velskur leigubílstjóri fékk sektarmiða úr öryggismyndavél fyrir að aka of hratt. Alltof hratt. Hann var á götu þar sem hámarkshraði er fimmtíu kílómetrar, og mældist á 672 kílómetra hraða. Með tilliti til þess að bíllinn hans er tólf ára gamall Vauxhall Chevalier féllst lögreglan á að líklega væri myndavélin eitthvað biluð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×