Erlent

Ætla sjálf að velja blaða­menn í Hvíta húsið

Samúel Karl Ólason skrifar
Karoline Leavitt, talskona Trumps, í Hvíta húsinu í dag við hlið skiltis sem gert var til fagnaðar þess að dómari gaf frá sér tímabundinn úrskurð um að hvíta húsið þyrfti ekki að veita AP fréttaveitunni aðgang, að svo stöddu. Hvíta húsið hefur deilt við fréttaveituna vegna þess að hún notar enn nafnið „Mexíkóflói“ yfir Mexíkóflóa en ekki „Ameríkuflói“.
Karoline Leavitt, talskona Trumps, í Hvíta húsinu í dag við hlið skiltis sem gert var til fagnaðar þess að dómari gaf frá sér tímabundinn úrskurð um að hvíta húsið þyrfti ekki að veita AP fréttaveitunni aðgang, að svo stöddu. Hvíta húsið hefur deilt við fréttaveituna vegna þess að hún notar enn nafnið „Mexíkóflói“ yfir Mexíkóflóa en ekki „Ameríkuflói“. AP/Evan Vucci

Karoline Leavitt, talskona Hvíta hússins, tilkynnti í kvöld að í framtíðinni muni starfsmenn Donalds Trump, forseta, sjálfir velja hvaða blaðamenn fái að sækja Hvíta húsið heim og sitja blaðamannafundi og hverjir fá að fylgja Trump eftir á ferðum hans um heiminn. Hingað til hefur það verið ákveðið af samtökum blaðamanna.

Í rúm hundrað ár hafa hópar blaðamanna, ljósmyndara og tökumanna verið valdir til að fylgja forsetum Bandaríkjanna eftir, mynda þá og skrifa um þá fréttir, sem allir fjölmiðlar hafa haft aðgang að. Þessi hópar hafa verið valdi af samtökum blaðamanna sem á ensku kallast „White house correspondents Association“ eða WHCA og voru þau stofnuð árið 1914.

Þessi ætla starfsmenn Trumps að breyta.

„Upplýsingateymi Hvíta hússins, þessarar ríkisstjórnar, mun ákveða hverjir fá að njóta þessa einstaka réttar og takmarkaðs aðgengi að rýmum eins og forsetaflugvélinni og skrifstofu forsetans.“

Þetta sagði Leavitt á upplýsingafundi sínum í dag en hún sagði einnig að sérstakur hópur blaðamanna frá höfuðborginni myndi ekki lengur „njóta einokunar“ á því hverjir fá aðgang að Hvíta húsinu.

Þetta hefur strax vakið áhyggjur um stöðu fjölmiðla og forsetans þar sem þetta felur í raun í sér að Trump mun sjálfur velja þá fjölmiðla og það fjölmiðlafólk sem fjallar um hann.

Leavitt hélt því fram í kvöld að það væri ekki réttur blaðamanna að hafa aðgang að forsetaembættinu. Færa ætti valdið um það hverjir fengu aðgang „aftur til fólksins“ en þeir yrðu valdir af starfsmönnum Trumps.

Leavitt ítrekaði einnig að blaðamönnum AP fréttaveitunnar ekki aðgang að sérstökum viðburðum í Hvíta húsinu og tengdum viðburðum. Það var ákveðið eftir að forsvarsmenn fréttaveitunnar, sem er með viðskiptavini um allan heim, tóku þá ákvörðun að nota ekki nafnið „Ameríkuflói“ yfir Mexíkóflóa.

Sjá einnig: Blaðamenn AP í straffi hjá Hvíta húsinu vegna Mexíkóflóa

Einn fræðimaður um forsetaembættið og fjölmiðla sagði í samtali við blaðamann AP að verið væri að setja hættulegt fordæmi.

„Þetta þýðir að forsetinn geti valið hver fjallar um framkvæmdavaldið og hunsað þá staðreynd að það er almenningur sem rekur Hvíta húsið og fjármagni ferðalög forsetans og laun upplýsingafulltrúa hans með skattgreiðslum.“

Þá hefur fréttaveitan eftir Eugene Daniels, forseta WHCA, að samtökin séu sífellt að breyta og útvíkka hópa sem fjalla um forsetaembættið og veita nýjum miðlum aðgengi.

Í yfirlýsingu segir Daniels að í frjálsu lýðræðisríki sé ótækt að forsetar komist upp með að velja miðla sem fjalla um þá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×