Erlent

Teknir með 10.000 töflur

Ungverska landamæralögreglan handtók í gær tvo króatíska ríkisborgara fyrir stórfellt eiturlyfjasmygl. Mennirnir reyndu að smygla 10.000 e-pillum auk nokkurs magns af spítti. Söluvirði efnanna er talið um 11 milljónir.

Á laugardag stöðvaði landamæralögreglan slóvakískan ríkisborgara á leið inn í Ungverjaland með mikið magn heróíns. Talið er að söluvirði þess sé rúmlega 24 milljónir.

Í báðum tilvikum voru efnin falin í bíl. Lögreglan kannar nú hvort málin séu tengd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×