Erlent

Enn sjúkur

Mannæta, sem myrti kærustu sína fyrir 27 árum, er ennþá sjúkur og hættulegur, að mati sænskra dómstóla, en fær samt að fara í frí frá geðdeild og fær þá að vera í íbúð sinni í Malmö. Maðurinn notaði eldhúsáhöld til að skera líkama konunnar í sundur, borðaði hluta af henni og drakk rauðvín með.

Maðurinn var handtekinn árið 1979, að sögn Aftonbladet, grunaður um að hafa stolið sjónvarpstæki móður sinnar. Í ljós komu þá leifarnar af unnustunni. Maðurinn var dæmur til vistar á geðdeild.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×