Erlent
224 225 226 227 228 229 230 231 232 … 334 ›
Nunnur og prestar horfi á klám, sem þó sé verkfæri djöfulsins Frans páfi, æðsti maður innan kaþólsku kirkjunnar, hefur varað við því að prestar og nunnur horfi á klám á netinu. Hann segir klám vera til þess fallið að veikja prestshjartað, auk þess sem það sé verkfæri djöfulsins. Erlent 26.10.2022 19:23
Fundinn sekur í öllum ákæruliðum eftir skrautleg réttarhöld Hinn bandaríski Darrell Brooks hefur verið fundinn sekur um sex morð að yfirlögðu ráði, þegar hann ók bifreið sinni inn í jólaskrúðgöngu í Waukesha, úthverfi Milwaukee í Wisconsin-ríki í Bandaríkjunum, í nóvember á síðasta ári. Réttarhöldin yfir honum vöktu mikla athygli, en hann kaus að verja sig án aðstoðar lögmanns. Erlent 26.10.2022 17:47
Sakfelldir fyrir ráðabrugg um að ræna ríkisstjóra Þrír karlmenn á þrítugs og fimmtungsaldri voru sakfelldir fyrir að leggja á ráðin um að ræna Gretchen Whitmer, ríkisstjóra Michigan. Mennirnir tilheyrðu vopnaðri öfgasveit sem mislíkaði aðgerðir Whitmer til að stemma stigu við kórónuveirufaraldrinum. Erlent 26.10.2022 16:02
Skutu á mótmælendur við leiði Amini Vitni segja öryggissveitir í Íran hafa skotið á syrgjendur sem komið höfðu saman við gröf Masha Jina Amini í dag. Þar hafði fólk komið saman vegna þess að fjörutíu dagar eru liðnir síðan hún dó í haldi lögreglunnar. Erlent 26.10.2022 15:16
Styrkur metans aldrei aukist eins mikið frá upphafi mælinga Hlutfall gróðurhúsalofttegundarinnar metans í andrúmslofti jarðar hefur aldrei aukist jafna mikið og í fyrra frá því að mælingar hófust. Styrkur þriggja helstu gróðurhúsalofttegundanna í lofthjúpnum náði methæðum árið 2021. Erlent 26.10.2022 15:01
Útlitið dökknar fyrir demókrata á lokasprettinum Merkjanleg sveifla í átt að Repúblikanaflokknum er í skoðanakönnunum fyrir þingkosningar í Bandaríkjunum sem fara fram eftir tvær vikur. Demókratar óttast nú að tapa yfirráðum í báðum deildum þingsins. Erlent 26.10.2022 14:06
Skaut tvo til bana en var með sex hundruð skot: „Þetta hefði getað farið mun verr“ Ungur maður sem skaut kennara og fimmtán ára stúlku til bana í St. Luis í Bandaríkjunum í vikunni var vopnaður hálfsjálfvirkum riffli og var með sex hundruð skot. Sjö nemendur særðust eða slösuðust einnig í árásinni áður en lögregluþjónar skutu hinn nítján ára gamla Orlando Harris til bana. Erlent 26.10.2022 12:09
Eitt fyrstu verka Sunaks að hringja til Úkraínuforseta Rishi Sunak nýr forsætisráðherra Bretlands hét forseta Úkraínu í gær áframhaldandi stuðningi Breta í baráttunni gegn innrás Rússa. Forseti Þýskalands dáðist af hughrekki Úkraínumanna í heimsókn til Kænugarðs í gær og lofaði aukinni hernaðaraðstoð. Erlent 26.10.2022 11:40
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Vegnar vel á víglínunum en þurfa mikla aðstoð Úkraínumönnum hefur vegnað ágætlega á víglínunum síðustu vikur en árásir Rússa á innviði og borgaraleg skotmörk hafa kostað sitt. Ráðamenn í Úkraínu og Vesturlöndum segja ríkið þurfa mikla fjárhagslega aðstoð á komandi árum. Erlent 26.10.2022 11:07
Telja keisaramörgæsina nú í útrýmingarhættu Bandarísk stjórnvöld settu keisaramörgæsina á lista yfir dýrategundir sem eru taldar í hættu á útrýmingu í gær. Hnattræn hlýnun og bráðnun hafíss við Suðurskautslandið er talin ógna þessari stærstu mörgæsartegund jarðar. Erlent 26.10.2022 09:10
Stefnir í tveggja og hálfrar gráðu hlýnun á meðan ríki draga lappirnar Útlit er fyrir að hnattræn hlýnun nái tveimur og hálfri gráðu fyrir lok aldarinnar ef ríki heims auka ekki metnað sinn í að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Það er heilli gráðu meira en stefnt er að með Parísarsamkomulaginu til þess að forðast verstu afleiðingar loftslagsbreytinga. Erlent 26.10.2022 08:42
Bólusetja gegn kórónuveirunni með munnúða Kínverjar hafa, fyrstir þjóða, hafið bólusetningar gegn COVID-19 með munnúða í stað sprautu. Erlent 26.10.2022 08:37
Heita fordæmalausum viðbrögðum ef Norður-Kórea hefur kjarnorkuvopnatilraunir á ný Fulltrúar Bandaríkjanna, Japan og Suður-Kóreu hafa varað við fordæmalausum viðbrögðum ef Norður-Kórea framkvæmir sjöundu tilraun sína með kjarnorkuvopn. Stjórnvöld Vestanhafs og bandamenn þeirra grunar að kjarnorkuvopnatilraunir Norður-Kóreu séu að hefjast á ný. Erlent 26.10.2022 08:10
Finnskur fjöldamorðingi á flótta handtekinn Lögregla í Finnlandi handtók í gærkvöldi fangann Juha Valjakkala eftir að hann hafði flúið úr opnu fangelsi. Valjakkala var handtekinn eftir að ábendingar bárust frá almenningi. Erlent 26.10.2022 08:02
Hvetja þá sem hafa flúið til að halda sig erlendis út veturinn Stjórnvöld í Úkraínu hafa biðlað til þeirra Úkraínumanna sem hafa flúið land frá því að Rússar hófu innrás sína í febrúar síðastliðnum, um að snúa ekki aftur fyrr en í vor. Orkuinnviðir landsins ráði einfaldlega ekki við mannfjöldann. Erlent 26.10.2022 07:12
Rússar búa sig undir árás á Kherson Rússneskar hersveitir í Kherson héraði búa sig nú undir mikinn bardaga við úkraínska herinn að sögn úkraínsks embættismanns. Erlent 26.10.2022 06:52
Setti bókstafinn Z á bílinn og fékk hálfa milljón í sekt Manni í Þýskalandi hefur verið gert að greiða fjögur þúsund evrur, eða rúmar 570 þúsund krónur, í sekt fyrir að hafa sett bókstafinn Z á bílinn sinn. Merkið hefur verið notað til marks um stuðning við innrás Rússa í Úkraínu. Maðurinn hefur áfrýjað. Erlent 25.10.2022 23:28
Happdrætti fyrir þá sem lenda í miðjusætinu Farþegar ástralska flugfélagsins Virgin Australia sem lenda í því að þurfa að sitja í miðjusætinu í flugferðum félagsins verða skráðir í happdrætti. Þyrlu-pöbbarölt og fríar flugferðir eru meðal vinninga. Erlent 25.10.2022 22:41
Nýr kafli í samskiptum Bretlands og Úkraínu Vólódímír Selenksí Úkraínuforseti segir nýjan kafla í samskiptum Bretlands og Úkraínu vera að hefjast. Hann tekur vel á móti nýkjörnum kollega sínum. Erlent 25.10.2022 22:14
Lést nokkrum mánuðum eftir fyrsta baðið í sextíu ár Amou Haji, oftast þekktur sem skítugasti maður heims, er látinn, 94 ára að aldri. Skömmu fyrir andlátið hafði Haji þvegið sér í fyrsta sinn í yfir sextíu ár. Hann lést í heimaþorpi sínu Dejgah í vesturhluta Íran. Erlent 25.10.2022 21:33
Sunak segir heilindi og fagmennsku verða hans leiðarljós Nýr forsætisráðherra Bretlands segist þegar ætla að hefjast handa við að leiðrétta þau mistök sem gerð hefðu verið í hagstjórninni undir stjórn fyrrverandi forsætisráðherra. Stjórn hans muni hafa heilindi, fagmennsku og ábyrgð að leiðarljósi. Erlent 25.10.2022 19:30
Kallaði nýja forsætisráðherrann Rashee Sanook Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, var ekki með nafn Rishi Sunak, forsætisráðherra Bretlands, á hreinu þegar hann óskaði honum til hamingju með nýja starfið. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem seinheppni forsetans þegar kemur að orðavali vekur athygli. Erlent 25.10.2022 18:21
Rottur þjálfaðar til þess að bjarga fólki eftir jarðskjálfta Verið er að þjálfa rottur til þess að finna fólk sem festist í rústum eftir jarðskjálfta. Rotturnar eru þá látnar bera lítinn bakpoka sem dugi meðal annars sem einskonar staðsetningartæki. Erlent 25.10.2022 18:01
Ashton Carter er látinn Ashton Carter, einn varnarmálaráðherra Bandaríkjanna í forsetatíð Barack Obama, er látinn, 68 ára að aldri. Carter skilur eftir sig eiginkonu og tvö börn. Erlent 25.10.2022 17:30
Aftur ráðherra sex dögum eftir afsögn fyrir siðabrot Rishi Sunak, nýr forsætisráðherra Bretlands, skipaði Suellu Braverman innanríkisráðherra í ríkisstjórn sinni, aðeins sex dögum eftir að hún sagði af sér ráðherraembætti fyrir að brjóta siðareglur ráðherra. Jeremy Hunt heldur áfram sem fjármálaráðherra. Erlent 25.10.2022 17:01
Fjarlægði sig fasisma í fyrstu ræðu sinni Giorgia Meloni, nýr forsætisráðherra Ítalíu, neitaði því að hún bæri hlýhug til fasisma eða annarrar andlýðræðislegrar hugmyndafræði í fyrstu stefnuræðu sinni í ítalska þinginu í dag. Hét hún því að halda áfram stuðningi við Úkraínu og að setja Evrópusamstarf ekki í uppnám. Erlent 25.10.2022 15:39
Telja sig hafa gripið rússneskan njósnara í Tromsö Norska öryggislögreglan hefur handtekið mann sem lögreglu grunar að hafi dvalið í Noregi í um eitt ár sem rússneskur njósnari undir fölsku flaggi sem brasilískur vísindamaður. Lögregla vill að honum verði vísað úr landi. Erlent 25.10.2022 14:44
Vildi ekki binda sig við ríkisstjórastólinn Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída, vill ekki heita því að sitja heilt kjörtímabil sem ríkisstjóri, nái hann endurkjöri í kosningunum í næsta mánuði. Charlie Crist, mótframbjóðandi hans, gagnrýndi ríkisstjórann í kappræðum þeirra í gær og sagði hann ekki hafa áhuga til að sinna embættinu áfram. Öll hans athygli beindist að mögulegu forsetaframboði. Erlent 25.10.2022 14:07
Bandarískur flugmaður sem vann í Kína handtekinn í Ástralíu Bandarískur maður sem var flugmaður í landgönguliði Bandaríkjanna var nýverið handtekinn í Ástralíu og stendur til að framselja hann í Bandaríkjunum. Kínverjar eru sagðir hafa leitað til vestrænna flugmanna varðandi þjálfun í Kína. Erlent 25.10.2022 11:54
Sunak segist skipaður til að leiðrétta mistök Liz Truss sem var óvinsælasti forsætisráðherra Bretlands frá því mælingar hófust hefur látið af völdum og Rishi Sunak er tekinn við. Hann segist hafa hlotið embættið leiðtoga og forsætisráðherra til að leiðrétta mistök en á grundvelli þess málaefnagrundvölls sem Boris Johnson fékk umboð til að koma í framkvæmd í síðustu kosningum. Erlent 25.10.2022 11:54