Bíó og sjónvarp
Handhafar Eddu 1999 Bíó og sjónvarp 27.10.2004 00:01 Handhafar Eddu 2003 Bíó og sjónvarp 27.10.2004 00:01 Handhafar Eddu 2002 Bíó og sjónvarp 27.10.2004 00:01 Handhafar Eddu 2001 Bíó og sjónvarp 27.10.2004 00:01 Handhafar Eddu 2000 Bíó og sjónvarp 27.10.2004 00:01 Aldrei fleiri innsend verk á Eddu Frestur til að skila inn verkum vegna Edduverðlaunanna 2004 rann út um helgina og hafa aldrei áður borist fleiri innsendingar, eða alls tæplega 70 mismunandi verk. Valnefndir hafa tekið til starfa en þeirra hlutverk er að velja þrjár til fimm tilnefningar í hvern flokk. Bíó og sjónvarp 26.10.2004 00:01 Sjónvarpsmaður ársins Bíó og sjónvarp 26.10.2004 00:01 Fátt kom á óvart "Jón Ársæll snýr aftur í keppninni um sjónvarpsþátt ársins, ásam Brennidepli sjónvarps og kvöldvöku Sirríar. Verðlaunin í þeirri deild verða sorglegur minnisvarði um stöðu innlendrar dagskrárgerðar í lagaumhverfi sjónvarpsstöðva á Íslandi". Páll Baldvin Baldvinsson, blaðamaður á DV fjallar um tilnefningar til Edduverðlaunanna. Bíó og sjónvarp 26.10.2004 00:01 Edduverðlaunin 2004 Allt um Edduna 2004 á Vísi Bíó og sjónvarp 26.10.2004 00:01 EDDA 2004: Netkosning hafin á Vísi Íslenska kvikmynda- og sjónvarpsakademían (ÍKSA) kynnti í gær tilnefningar til Edduverðlaunanna 2004. Þá hófst einnig Netkosning hér á Vísi en almenningi gefst eingöngu kostur á að kjósa á Vísi. Netkosningin stendur til klukkan 14:00 13. nóvember. Bíó og sjónvarp 26.10.2004 00:01 Heimildarmynd ársins Bíó og sjónvarp 25.10.2004 00:01 Tónlistarmyndband ársins Bíó og sjónvarp 25.10.2004 00:01 Leikstjóri ársins Bíó og sjónvarp 25.10.2004 00:01 Leikari/leikkona aðalhlutverk Bíó og sjónvarp 25.10.2004 00:01 Kaldaljós með flestar tilnefningar Kvikmyndin Kaldaljós, sem Hilmar Oddsson gerði eftir samnefndri skáldsögu Vigdísar Grímsdóttur hlýtur flestar tilnefningar til Eddunnar, verðlauna Íslensku kvikmynda- og sjónvarspakademíunnar í ár. Kaldaljós er ein þriggja mynda sem tilnefnd er sem bíómynd ársins. Páll Steingrímsson kvikmyndagerðarmaður hlýtur heiðursverðlaun akademíunnar í ár. Bíó og sjónvarp 25.10.2004 00:01 « ‹ 135 136 137 138 139 140 … 140 ›
Ríflega 12 þúsund á Star Wars Alls sáu 12.382 manns þriðju Stjörnustríðsmyndina, Hefnd Sith, hér á landi um síðustu helgi og voru tekjur af myndinni tæpar 10 milljónir íslenskra króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Senu. Þetta mun vera langstærsta opnun ársins og er myndin langvinsælust í bíó með yfir 70% af heildaraðsókninni. Uppselt var á nánast allar sýningar á föstudag og sunnudag og dagsýningarnar á laugardag. Bíó og sjónvarp 23.5.2005 00:01
Aldrei fleiri á kvikmyndahátíð Um sextán þúsund manns hafa sótt Íslensku kvikmyndahátíðina, IIFF, á fyrstu tíu sýningardögunum. Í tilkynningu frá hátíðahöldurum segir að hún hafi þar með slegið öll aðsóknarmet fyrri kvikmyndahátíða hérlendis. Bíó og sjónvarp 18.4.2005 00:01
Segir Nine Songs ekki klámmynd Nakið og ódulið kynlíf er rauði þráðurinn í kvikmyndinni Nine Songs sem sýnd verður í kvöld á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík. Aðalleikari myndarinnar segir þetta engan veginn klámmynd heldur raunsæja mynd af sambandi karls og konu og býst hann við að íslenskir áhorfendur taki myndinni vel. Bíó og sjónvarp 15.4.2005 00:01
Kvikmyndahátíð sett í kvöld Alþjóðleg kvikmyndahátíð verður sett formlega í Háskólabíói í kvöld og verður opnunarmynd hátíðarinnar Motorcycle Diaries eftir Brasilíumanninn Walter Salles, en hann er kominn sérstaklega til landsins til að vera viðstaddur sýninguna. Myndin var tilnefnd til þrennra Óskarsverðlauna í ár og hlaut verðlaun fyrir bestu tónlistina. Bíó og sjónvarp 7.4.2005 00:01
Börkur undirbýr Karfann Fyrsta kvikmynd leikstjórans Barkar Gunnarssonar, hin íslensk-tékkneska Sterkt kaffi, er í sjöunda sæti yfir það mikilvægasta sem gerðist árið 2004 á kvikmyndasviðinu, samkvæmt hinu víðlesna tékkneska dagblaði Nedélní svet. Í efsta sæti er tilnefning tékknesku myndarinnar Zelary til Óskarsverðlauna fyrr á árinu. Bíó og sjónvarp 2.1.2005 00:01
Stuðmenn frumsýna Stuðmannamyndin "Í takt við tímann" var frumsýnd í dag í Smárabíói. Myndin er sjálfstætt framhald af vinsælustu íslensku kvikmynd sem gerð hefur verið, "Með allt á hreinu". Persónurnar eru þær sömu, en þær eru orðnar tuttugu árum eldri og búnar að taka ýmsum breytingum. Bíó og sjónvarp 26.12.2004 00:01
Eddan afhent í sjötta sinn í kvöld EDDU verðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn á Nordica Hótel í kvöld. Bíó og sjónvarp 14.11.2004 00:01
Kaldaljós kom sá og sigraði Kvikmyndin Kaldaljós eftir Hilmar Oddsson krækti í fimm verðlaun á Edduverðlaunahátíðinni sem haldin var á Hótel Nordica. Kaldaljós var valin mynd ársins, Ingvar E. Sigurðsson var valinn besti leikarinn og Kristbjörg Kjeld besta leikkonan í aukahlutverki. Hilmar Oddsson fékk einnig verðlaun fyrir leikstjórn Kaldaljóss og Sigurður Sverrir Pálsson fyrir besta hljóð og mynd. Bíó og sjónvarp 14.11.2004 00:01
Tilnefnd og ótilnefndur Stórleikkonan Helga Braga og sjónvarpsmaðurinn Kristján Kristjánsson úr Kastljósinu eru kynnar Edduverðlaunanna sem afhent verða á Nordica Hóteli sunnudagskvöldið 14. nóvember. Bíó og sjónvarp 10.11.2004 00:01
Góð þátttaka í kosningu til Edduverðlaunanna Kosning til Edduverðlaunanna stendur nú sem hæst en kosningu lýkur á laugardag. Íslenska kvikmynda- og sjónvarpsakademían (ÍKSA) kynnti tilnefningar til Edduverðlaunanna í lok október og hófst þá einnig Netkosning hér á Vísi. Almenningi gefst eingöngu kostur á að kjósa á Vísi. Þátttaka hefur verið mjög góð, á sjötta þúsund manns hafa tekið þátt í kosningunni. Bíó og sjónvarp 9.11.2004 00:01
Norrænir bíódagar Norrænir bíódagar standa nú yfir í Háskólabíói og í Sambíóunum í Keflavík. Sýndar verða sex úrvalsmyndir frá Svíþjóð, Noregi Danmörku. Þeirra á meðal er sænska gamanmyndin Kops, í leikstjórn Josef Fares, þess hins sama og gerði síðast smellinn "Jalla Jalla". Þá er sjálfstætt framhald myndarinnar Elling sýnt á norrænum bíódögum, Mors Elling. Bíó og sjónvarp 5.11.2004 00:01
Sögurnar eru þemað í ár "Hátíðin verður með hefðbundnu sniði enda ekki þörf á að breyta strúktúrnum. Þó má upplýsa að þemað í þetta sinn er "sögurnar". Þessi bransi gengur út á að segja sögur í ýmsu formi og innslögin segja okkur sögurnar á bak við tjöldin; hvaða hlutverki hver og einn gegnir," segir Pétur Óli Gíslason framkvæmdastjóri Storm, sem sér um Eddu-verðlaunahátíðina. Bíó og sjónvarp 3.11.2004 00:01
Ætlar að kaupa sér nýja skyrtu "Þetta kom mér mjög á óvart og ég átti alls ekki von á þessu. Fékk bullandi hjartslátt við tilnefninguna en er búinn að jafna mig. Það er allt í fínu lagi núna," segir kvikmyndagerðarmaðurinn Páll Steingrímsson þegar hann er spurður út í stóru tíðindin; að fá heiðursverðlaun Eddu þetta árið. Bíó og sjónvarp 3.11.2004 00:01
Sköpunin öll er mér ráðgáta Páll Steingrímsson kvikmyndagerðarmaður fær heiðursverðlaun Eddunnar í ár. Kolbrún Bergþórsdóttir ræddi við Pál um heimildarmyndagerð, ferðalög og stóriðjumál. Bíó og sjónvarp 30.10.2004 00:01
Helmingur frá stöðvum Norðurljósa Sjónvarpsmaður ársins verður krýndur á Edduverðlaunahátíðinni sunnudaginn 14. nóvember. Almenningur getur valið úr hópi 38 sjónvarpsmanna á Vísi en auk þess mun Gallup spyrja um hug almennings í skoðanakönnun. Atkvæðagreiðslan á vísir.is stendur til miðnættis 13. nóvember. Bíó og sjónvarp 28.10.2004 00:01
Aldrei fleiri innsend verk á Eddu Frestur til að skila inn verkum vegna Edduverðlaunanna 2004 rann út um helgina og hafa aldrei áður borist fleiri innsendingar, eða alls tæplega 70 mismunandi verk. Valnefndir hafa tekið til starfa en þeirra hlutverk er að velja þrjár til fimm tilnefningar í hvern flokk. Bíó og sjónvarp 26.10.2004 00:01
Fátt kom á óvart "Jón Ársæll snýr aftur í keppninni um sjónvarpsþátt ársins, ásam Brennidepli sjónvarps og kvöldvöku Sirríar. Verðlaunin í þeirri deild verða sorglegur minnisvarði um stöðu innlendrar dagskrárgerðar í lagaumhverfi sjónvarpsstöðva á Íslandi". Páll Baldvin Baldvinsson, blaðamaður á DV fjallar um tilnefningar til Edduverðlaunanna. Bíó og sjónvarp 26.10.2004 00:01
Edduverðlaunin 2004 Allt um Edduna 2004 á Vísi Bíó og sjónvarp 26.10.2004 00:01
EDDA 2004: Netkosning hafin á Vísi Íslenska kvikmynda- og sjónvarpsakademían (ÍKSA) kynnti í gær tilnefningar til Edduverðlaunanna 2004. Þá hófst einnig Netkosning hér á Vísi en almenningi gefst eingöngu kostur á að kjósa á Vísi. Netkosningin stendur til klukkan 14:00 13. nóvember. Bíó og sjónvarp 26.10.2004 00:01
Kaldaljós með flestar tilnefningar Kvikmyndin Kaldaljós, sem Hilmar Oddsson gerði eftir samnefndri skáldsögu Vigdísar Grímsdóttur hlýtur flestar tilnefningar til Eddunnar, verðlauna Íslensku kvikmynda- og sjónvarspakademíunnar í ár. Kaldaljós er ein þriggja mynda sem tilnefnd er sem bíómynd ársins. Páll Steingrímsson kvikmyndagerðarmaður hlýtur heiðursverðlaun akademíunnar í ár. Bíó og sjónvarp 25.10.2004 00:01