Eldgos og jarðhræringar
74 75 76 77 78 79 80 81 82 … 132 ›
Eldgos hafið í Japan Eldgos hófst í Aso-fjalli á japönsku eyjunni Kyushu í morgun. Öskusúla stígur nú upp frá fjallinu og gjall hefur boristhátt í kílómeter frá gígnum. Erlent 20.10.2021 11:36
Dróni kemur hundum sem eru fastir við eldgosið til bjargar Drónaeigandi á La Palma-eyju hefur fengið leyfi yfirvalda til þess að freista þess að bjarga þremur veikburða hundum sem eru fastir í grennd við Cumbre Vieja eldfjallið. Erlent 19.10.2021 22:36
Eldgosið fært af hættustigi niður á óvissustig Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum hefur ákveðið að lækka almannavarnastig vegna eldossins í Geldingadölum af hættustigi og niður í óvissustig. Innlent 18.10.2021 15:08
„Sannkölluð flóðbylgja af hrauni“ Jarðskjálfti að styrkleika 4,5 reið yfir eyjuna La Palma fyrr í dag. Þetta er annar skjálftinn af þessari stærð síðustu tvo daga. Erlent 15.10.2021 14:30
Aðsókn að gosstöðvunum aldrei verið minni Þeim fækkar ört sem vilja gera sér ferð að gosstöðvunum í Geldingadölum. Hraun hefur enda ekki sést koma upp úr gígnum í tæpar fjórar vikur, en það gerðist síðast þann 18. september. Áhöld eru uppi um hvort gosinu sé lokið eða hvort nú sé í gangi lengsta goshléið til þessa. Innlent 15.10.2021 09:11
Ekki óhætt að fara að gígnum fyrr en nokkrum mánuðum eftir goslok Of snemmt er að lýsa yfir goslokum í Geldingadölum að mati jarðeðlisfræðings. Kvika hefur ekki komið upp úr gígnum í um fjórar vikur sem er lengsta hlé á virkninni síðan gosið hófst. Innlent 14.10.2021 19:01
Gosið á Reykjanesi með langvinnari en smærri gosum Eldgosið sem hófst í Geldingadölum á Reykjanesi í mars er það fjórða langvinnasta af þeim samfelldu gosum sem hafa orðið á 20. og 21. öldinni. Rúmmál gosefna í því er hins vegar í minnsta lagi. Innlent 14.10.2021 11:06
Gervihnattamyndir sýna aukinn kraft í gosinu á La Palma Gervihnattamyndir sem teknar hafa verið yfir spænsku eyjunni La Palma sýna að aukinn kraftur er komið í eldgosið í Cumbre Vieja eldfjallinu. Erlent 13.10.2021 22:29
Tveir öflugir skjálftar á Reykjaneshryggnum Tveir nokkuð öflugir skjálftar yfir 3 að stærð urðu á Reykjaneshryggnum undan Reykjanesskaga í gærkvöldi. Innlent 13.10.2021 06:51
Sementsverksmiðja nýjasta fórnarlamb eldgossins á La Palma Enn þurfa margir íbúar á eyjunni La Palma að yfirgefa heimili sínu vegna eldgossins í Cumbre Vieja eldfjallinu. Ekkert lát er á eldgosinu sem hófst þann 19. september síðastliðinn. Sementsverksmiðja á eyjunni er óðum að fara undir hraun. Erlent 12.10.2021 22:12
Sagan á bak við gula vestið hans Kristjáns Más Gula vestið hans Kristjáns Más Unnarssonar, fréttamanns á Stöð 2, kannast eflaust allflestir landsmenn við eftir að Kristján mætti klæddur í það í myndver Stöðvar 2 í ágúst 2014 þegar eldgos í Holuhrauni var við það að hefjast. En hver er skýringin á bak við Gula vestið? Lífið 12.10.2021 16:00
Maðurinn sem veifaði ekki sá eini sem brá sér upp á gígbarminn í dag Svo virðist sem að það hafi verið nokkuð vinsælt að klifra upp á gígbarminn í Geldingadölum í dag. Myndir sýna tvo einstaklinga klifra upp gíginn síðdegis í dag. Innlent 11.10.2021 21:19
Stóð á gígbarminum og veifaði til farþega í þyrluflugi Ferðalangur lagði sig í töluverða hættu í dag þegar hann klöngraðist upp á gígbarm eldgossins við Fagradalsfjall í dag. Innlent 11.10.2021 17:39
Skjálfti af stærðinni 3,2 við Keili Jarðskjálfti af stærðinni 3,2 varð um tvo kílómetra suðsuðvestur af Keili nú á tíunda tímanum. Um er að ræða átjánda skjálftann sem er yfir 3 að stærð í yfirstandandi hrinu. Innlent 10.10.2021 21:46
Öflugasti skjálfti við Öskju frá aldamótum Skjálftinn sem reið yfir í Öskju í morgun er sá öflugasti sem mælst hefur á svæðinu frá aldamótum. Talið er að skjálftinn tengist kvikuinnskoti því land heldur þar áfram að rísa. Innlent 9.10.2021 13:19
Jarðskjálfti 3 að stærð við Öskjuvatn Jarðskjálfti að stærðinni 3 mældist um sjö kílómetra norðvestur af Öskjuvatni klukkan 8:23 í morgun. Innlent 9.10.2021 09:24
Aðeins átta skjálftar við Keili frá miðnætti Aðeins átta jarðskjálftar eru skráðir í grennd við Keili frá miðnætti á vefsíðu Veðurstofu Íslands. Innlent 8.10.2021 07:01
Sjaldgæfur skjálfti á Mýrunum Snarpur jarðskjálfti mældist í eldstöðvakerfi Ljósufjalla á Vesturlandi í morgun. Skjálftinn var 2,9 að stærð og er sá annars stærsti sem mælst hefur á þessum slóðum í ár. Innlent 7.10.2021 16:16
Kvika gæti verið að finna sér nýja leið til yfirborðs Dregið hefur úr stærð skjálftanna við Keili undanfarna daga en virknin er þó enn mikil. Um 8800 skjálftar hafa mælst á svæðinu frá því að hrinan hófst þann 27. september síðastliðinn. Ekki er hægt að útiloka að kvika sé á hreyfingu á miklu dýpi. Innlent 7.10.2021 12:25
Flugvellinum á La Palma lokað vegna öskufalls Flugmálayfirvöld á Spáni hafa ákveðið að loka flugvellinum á La Palma vegna öskufalls. Eldgosið á eynni hefur nú staðið í tvær og hálfa viku. Erlent 7.10.2021 10:11
Virðist sem ró hafi færst yfir skjálftasvæðið Svo virðist sem ró hafi færst yfir skjálftasvæðið í grennd við Keili síðustu sólarhringana. Innlent 7.10.2021 07:34
Að minnsta kosti 20 látnir eftir öflugan jarðskjálfta í Pakistan Að minnsta kosti 20 eru látnir eftir að öflugur jarðskjálfti, 5,9 stig að stærð, reið yfir í Balokistan í Pakistan í morgun. Yfirvöld óttast að tala látinna muni hækka og að fjölmargar byggingar hafi hrunið til grunna þar sem fólk sé nú fast undir. Erlent 7.10.2021 06:55
Engin skýr merki um kviku við Keili Nýjustu gervihnattagögn sýna engin skýr merki um að kvika brjóti sér leið til yfirborðs í kringum Keili á Reykjanesi. Ekki er þó talið útilokað að kvika sé á hreyfingu á það miklu dýpi að gervihnettir greini hana ekki. Innlent 6.10.2021 18:42
Fremur rólegt á skjálftasvæðinu í nótt Fremur rólegt virðist hafa verið á skjálftasvæðinu við Keili síðustu klukkustundirnar. Innlent 6.10.2021 07:17
Síðasti stóri kom rétt fyrir miðnætti Síðasti stóri skjálftinn á Reykjanesskaga í grennd við Keili kom rétt fyrir miðnættið. Sá mældist þrjú stig en síðan þá hefur verið heldur rólegra á svæðinu og engir skjálftar hafa náð tveimur stigum. Innlent 5.10.2021 06:57
„Það er ekkert landris“ Rúmlega 700 skjálftar hafa mælst frá miðnætti. Sá stærsti reið yfir á áttunda tímanum í morgun, af stærðinni 3,3. Innlent 4.10.2021 11:22
Skjálfti 3,3 að stærð Skjálfti 3,3 stærð var við Keili klukkan 7:17 í morgun og fannst hann víða í byggð. Innlent 4.10.2021 08:38
Einn upp á þrjú stig í nótt Enn skelfur jörð í grennd við Keili og í nótt klukkan kortér yfir tvö kom skjálfti sem mældist þrjú stig að stærð. Sá var á 5,6 kílómetra dýpi og átti hann upptök sín 1,1 kílómetra SSV af Keili. Innlent 4.10.2021 06:37
Enn skelfur jörð við Keili Laust fyrir klukkan fimm í dag varð jarðskjálfti að stærð 3,4 rétt rúmum kílómetra suðsuðvestur af Keili. Innlent 3.10.2021 18:29
Tíundi skjálftinn yfir þrír að stærð reið yfir í hádeginu Jarðskjálfti að stærð 3,5 varð suðsuðvestur af Keili klukkan 12.18 í dag. Þetta er tíundi skjálftinn yfir þremur stigum frá því að jarðskjálftahrinan á svæðinu hófst þann 27. september. Innlent 3.10.2021 12:38