Efnahagsmál
22 23 24 25 26 27 28 29 30 … 71 ›
Regluverkið virkaði ekki og vaxtastefnan gerði banka „háða“ lágum vöxtum Gjaldþrot Silicon Valley Bank (SVB) sýnir að sú stefna sem fjármálayfirvöld hafa rekið í einn og hálfan áratug var röng. Regluverkið virkaði ekki og vaxtastefnan gerði banka „háða“ lágum vöxtum. Fleiri bankar glími við samskonar vanda og SVB en það stefnir þó ekki í aðra bankakrísu, segir Jón Daníelsson, prófessor í hagfræði við London School of Economics. Innherji 14.3.2023 15:00
Fjórar loðnur á tíkallinum –billjónir loðna á land! Þau góðu tíðindi bárust frá Hafrannsóknarstofnun að loðnuafli á yfirstandandi fiskveiðiári yrði aukinn um 184.100 tonn frá síðustu ráðgjöf, heildarmagn loðnu sem veiða má nemur því 459.800 tonnum. Þessi aukning mun skipta sköpum fyrir ríkissjóð við núverandi efnahagsaðstæður. Skoðun 14.3.2023 08:30
Tveir af hverjum fimm frá Bretlandi og Bandaríkjunum Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru um 137 þúsund í nýliðnum febrúar samkvæmt talningu Ferðamálastofu. Um er að ræða álíka margar brottfarir og í febrúar árið 2020 og um 86 prósent af því sem þær voru í febrúar 2018 eða þegar mest var. Viðskipti innlent 10.3.2023 07:37
Flotinn mokveiddi hrognafulla loðnu undan Reykjanesi í dag Loðnuvertíðin stendur nú sem hæst. Loðnan er komin að hrygningu og þar með í sitt verðmætasta form og er hver dagur að skila eins til tveggja milljarða króna gjaldeyristekjum. Viðskipti innlent 9.3.2023 22:44
Fátæk börn í skugga metárs í fjármagnstekjum og arðgreiðslum Þingmenn Flokks fólksins og Samfylkingarinnar gagnrýndu ríkisstjórnina fyrir aðgerðaleysi vegna vaxandi fjölda barna sem byggju við fátækt á Alþingi í dag. Á sama tíma væri metár í fjármagnstekjum og greiðslu arðs hjá stórútgerðinni. Forsætisráðherra sagði ríkisstjórnina hafa gripið til margvíslegra aðgerða fyrir þennan hóp og aðrar væru í undirbúningi. Innlent 9.3.2023 12:18
Segir ekki satt að Elva missi starfið tapi hún kosningunum Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir það ekki satt að Elvu Hrönn Hjartardóttur verði gert að segja upp hjá VR tapi hún í formannskosningum félagsins. Hún hafi sjálf tekið það skýrt fram að fyrra bragði að hún ætlaði að hætta skyldi hún tapa. Innlent 9.3.2023 11:39
Leggur áherslu á mál sem formaður VR hafi sýnt lítinn áhuga Elva Hrönn Hjartardóttir sem býður sig fram til formennsku í VR gegn Ragari Þór Ingólfssyni sitjandi formanni segir félagið verða að taka á málum sem formaðurinn hafi sýnt lítinn áhuga. Formanns- og stjórnarkjör hefst í VR, fjölmennasta verkalýðsfélagi landsins, í fyrramálið og liggja niðurstöður fyrir á hádegi á miðvikudag eftir viku. Innlent 7.3.2023 20:01
Vöruviðskiptin óhagstæð um 25,9 milljarða Fluttar voru út vörur fyrir 73,8 milljarða króna í febrúar 2023 og inn fyrir 99,7 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í febrúar voru því óhagstæð um 25,9 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 15,1 milljarð króna í febrúar 2022 á gengi hvors árs fyrir sig. Viðskipti innlent 7.3.2023 10:32
„Þetta er algjörlega breyttur heimur“ Doktor í fjármálum segir heiminn algjörlega breyttan eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu. Hann segir að stríðið muni hafa ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir hagstjórn í ríkjum heimsins. Innlent 5.3.2023 23:27
Forðast þurfi með öllum ráðum að lenda í vonda vítahringnum Formaður Framsóknarflokksins segir að það ófremdarástand sem skapaðist í efnahagsmálum á níunda áratugnum, með víxlverkun launahækkana og verðlags, megi aldrei endurtaka sig. Allir sem eitthvað geti gert verði að leggjast á eitt til að tryggja að svo verði ekki. Innlent 5.3.2023 13:00
Evrópusambandsdraugurinn Nú þegar gefur á bátinn í hagkerfum heimsins og verðbólga hefur farið vaxandi hefur gamall draugur verið dregin út úr skápnum. Aftur er komin í gang sama orðræða og í kjölfarið á hruninu þar sem innganga í Evrópusambandið átti að leysa öll okkar vandamál og er þá litið á evruna sem galdratæki sem bjargað geti öllum okkar vandræðum í eitt skipti fyrir öll. Skoðun 4.3.2023 08:31
Sex vilja verða varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits Sex umsóknir bárust um embætti varaseðlabankastjóra fjármálaeftirlits Seðlabankans en forsætisráðuneytið auglýsti embættið laust til umsóknar 7. febrúar síðastliðinn og rann umsóknarfrestur út 27. febrúar. Viðskipti innlent 2.3.2023 10:05
Ekki markmiðið að fjölga ferðamönnum heldur hámarka arðsemi þeirra „Við þurfum að passa svolítið hvernig við tölum um ferðaþjónustuna. Fólk talar stundum á svolítið óvæginn hátt um ferðaþjónustuna, og ég er alveg ekki viss um að það sé henni eða okkur til tekna að tala um að Ísland sé uppselt eða að þurfi að loka landinu eða að við séum að drukkna í ferðamönnum,“ segir Sigríður Dögg Guðmundsdóttir fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu. Innlent 1.3.2023 22:01
Kemur í ljós eftir viku hvort hnúturinn raknar Ef miðlunartillaga setts ríkissáttasemjara verður samþykkt heggur hún á hnút hörðustu kjaradeilu í landinu á síðari árum. Tillagan gerir ráð fyrir sömu launahækkunum og aðrir hafa fengið en þernur á hótelum og bílstjórar olíufélaganna og Samskipa fá að auki hækkun um launaflokk og áhættuþóknun. Innlent 1.3.2023 19:40
Gæti ráðist á næsta sólarhring hvort ný miðlunartillaga verði lögð fram Tími setts ríkissáttasemjara til að leggja fram nýja miðlunartillögu í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins fer að renna út vegna yfirvofandi verkbanns á mánudag. Hann er líka í þrengri stöðu en embættið var til að leggja fram slíka tillögu þar sem hann þarf að vera þess fullviss að báðir deiluaðilar muni samþykkja að tillaga hans fari í atkvæðagreiðslu. Innlent 28.2.2023 19:30
Rennur hratt úr tímaglasi sáttasemjara Reikna má með að settur ríkissáttasemjari í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins reyni að leggja fram miðlunartillögu á allra næstu dögum. Ýmsar ytri aðstæður hjálpa til við að flækja málin og tíminn vinnur ekki með lausn deilunnar. Innlent 28.2.2023 11:46
Boðaðar ráðstafanir leiði til tug milljarða tjóns Stærstu eigendur skuldabréfa ÍL-sjóðs telja það að ekki vera grundvöllur fyrir samningaviðræðum við fjármálaráðuneytið um uppgjör skuldbindinga sjóðsins. Þeir segja fulltrúa ráðuneytisins ekki hafa komið til móts við kröfur lífeyrissjóðanna. Viðskipti innlent 28.2.2023 11:38
Lagði til frumlega leið til að draga úr upplýsingaóreiðu Jakob Birgisson grínisti lagði orð í belg í Íslandi í dag á miðvikudaginn var um þau alvarlegu tíðindi að verðbólguvæntingar fari þrátt fyrir alla viðleitni Seðlabankans enn versnandi. Lífið 28.2.2023 08:26
Hyggst sækja verulega hækkun orkuverðs í viðræðum við Alcoa Landsvirkjun hyggst sækja verulega hækkun í viðræðum sem eru að hefjast við Alcoa um endurskoðun raforkuverðs fyrir álverið í Reyðarfirði. Þetta er langstærsti raforkusamningur Landsvirkjunar og tekur til þriðjungs af orkusölu fyrirtækisins. Viðskipti innlent 27.2.2023 22:42
Efling vill að stjórnvöld þrýsti SA að samningaborðinu Efling krefst þess að stjórnvöld þrýsti á Samtök atvinnulífsins að draga boðað verkbann samtakanna til baka. Félagið boðaði til fjölmenns samstöðufundar í dag og hafði síðan uppi mótmæli við forsætisráðuneytið og Alþingi. Innlent 23.2.2023 19:56
Samstöðufundur Eflingar í Iðnó í hádeginu Verkbann Samtaka atvinnulífsins á félaga í Eflingu mun hafa víðtæk áhrif á nánast hvert einasta fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu. Efling boðar til samstöðufundar í Iðnó í hádeginu og mótmælagöngu þar á eftir. Félagar í Eflingu hafa nú þegar orðið af um 130 til 212 þúsund króna launahækkun. Innlent 23.2.2023 11:33
Óvænt loðna í Húnaflóa ávísun á mikil verðmæti Miklar loðnutorfur hafa óvænt fundist norður af Húnaflóa og tilkynnti Hafrannsóknastofnun í dag að búast mætti við að minnsta kosti eitthundrað þúsund tonna aukningu loðnukvótans. Viðbótin gæti skilað tíu milljarða króna útflutningsverðmæti. Viðskipti innlent 22.2.2023 22:45
„Heyrirðu hvað þetta er ruglað? Hvað ertu að gera með börn í útlöndum?“ Jakob Birgisson grínisti var álitsgjafi Íslands í dag að nýju á miðvikudag, þar sem fjallað var um þau óljósu tilmæli frá stofnunum samfélagsins til almennings, að forðast utanlandsferðir. Slíkar ráðstafanir eigi að styrkja gengi krónunnar. Lífið 21.2.2023 09:16
Landsbankinn hækkar líka vexti Landsbankinn hefur ákveðið að hækka bæði út- og innlánavexti eftir 0,5 prósentustiga stýrivaktahækkun Seðlabankans. Hinir stóru viðskiptabankarnir tveir tilkynntu einnig vaxtahækkun í dag. Viðskipti innlent 17.2.2023 18:49
Sólveig Anna segir aðgerðir Eflingar hafa skilað árangri Forystufólk Eflingar og Samtaka atvinnulífsins kom nokkuð jákvætt til leiks hjá ríkissáttasemjara í morgun í upphafi þriggja daga samningalotu í skjóli frá verkfallsaðgerðum og vona að þessir dagar dugi til að komast langt. Formaður Eflingar segir aðgerðir félagsins hafa skilað árangri. Innlent 17.2.2023 11:57
Segir að þetta hús lyfti upp norðanverðum Vestfjörðum Stærsta og afkastamesta laxvinnsla landsins rís núna í Bolungarvík á vegum Arctic Fish og á hún að taka til starfa í júní. Ráðamenn fyrirtækisins gera ráð fyrir að bara á síðari helmingi þessa árs verði unninn þar lax fyrir yfir fimmtán milljarða króna. Viðskipti innlent 16.2.2023 23:40
Bæjarstýran hlýtur að vera ánægð að fá hafnargjöldin Mikil umsvif hafa verið í Ísafjarðarhöfn og Dýrafirði undanfarnar vikur í kringum norskt fiskvinnsluskip, sem fengið var tímabundið til Vestfjarða til laxaslátrunar. Útflutningsverðmæti afurðanna úr þessu eina verkefni nemur þremur og hálfum til fjórum milljörðum króna. Viðskipti innlent 15.2.2023 22:42
Verðbólga og aðrir uppvakningar Kerfisumbætur eru á forræði hins opinbera og gætu lagt lóð á vogarskálarnar til að ná tökum á verðbólgunni. Á alþjóðavettvangi hefur verið vaxandi umræða um kerfisumbætur á framboðshliðinni til að leysa úr læðingi krafta hagkerfisins. Markmið nýrrar framboðsstefnu beinist að því að sameina hina hefðbundnu áherslu á að draga úr hömlum á atvinnulífinu, en leggja á sama tíma kraft í félagslega þætti vinnumarkaðarins til að efla atvinnu og atvinnuöryggi. Umræðan 9.2.2023 14:25
Fjármálaráðherra segir Seðlabankann hafa vanmetið verðbólguna Fjármálaráðherra segir Íslendinga vera að taka út lífskjör sem ekki væru langtíma forsendur fyrir sem birtist meðal annars í mikilli einkaneyslu. Seðlabankinn sitji sennilega uppi með að hafa hækkað vexti of hægt og vanmetið verðbólguna of oft. Formaður Viðreisnar segir ríkisstjórnina stinga höfðinu í sandinn og hún bjóði ekki upp á neinar aðgerðir gegn verðbólgunni. Innlent 9.2.2023 12:08
Óskiljanlegar boltalíkingar ekki Seðlabankanum sæmandi Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins gerir athugasemdir við röksemdir Seðlabankans fyrir vaxtahækkunum. Það standist ekki skoðun að nýgerðir kjarasamningar séu ástæða hækkunar, þar sem seðlabankastjóri hafi lýst ánægju með þá fyrir skömmu. Viðskipti innlent 8.2.2023 19:43