Sjávarútvegur
5 6 7 8 9 10 11 12 13 … 69 ›
Tekur álitið alvarlega en hyggst ekki segja af sér Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra segir að hún hafi ekki átt annan kost en að bregðast við með því að fresta upphafi hvalveiða við upphaf vertíðar. Hún segist taka álit umboðsmanns Alþingis alvarlega og að hún muni áfram berjast fyrir breytingum á „úreltum“ hvalveiðilögum. Innlent 5.1.2024 14:08
Frestun hvalveiða átti sér ekki nægilega skýra stoð í lögum Álit Umboðsmanns Alþingis er að reglugerð um frestun upphafs hvalveiða í sumar hafi ekki átt sér nægilega skýra stoð í lögum um hvalveiðar. Innlent 5.1.2024 13:59
Skip Samherja fékk heimsstyrjaldarsprengju í trollið Ísfisktogarinn Björg EA 7, sem er gerður út af Samherja, fékk í gær hluta úr breskri sprengju í veiðafæri sín þegar skipið var á veiðum á Rifsbanka, norður af Melrakkasléttu. Innlent 4.1.2024 15:51
Rúnar frá Marel til Aquatiq Rúnar Birgisson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Aquatiq á Íslandi. Rúnar hefur starfað fyrir Marel í kvartöld. Viðskipti innlent 4.1.2024 13:46
Segir skipstjórana tvo hafa vanrækt skyldur sínar Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar segir tvo skipstjórnarmenn á Huginn VE hafa vanrækt skyldur sínar í tengslum við það þegar akkeri féll frá borði og setti neysluvatnskerfi Vestmannaeyinga í uppnám. Innlent 28.12.2023 15:32
Samherji finnur not fyrir gamla Landsbankahúsið Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, og Kristján Vilhelmsson, framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja, hafa stofnað frumkvöðla- og nýsköpunarfyrirtæki sem verður til húsa í gamla Landsbankahúsinu við Ráðhústorg á Akureyri. Fyrirtækið mun bera nafnið Drift EA. Viðskipti innlent 21.12.2023 10:10
Smábátur lenti í vandræðum við Álftanes Skipverji smábáts, sem var skammt undan Álftanesi, gaf út hjálparbeiðni í gærkvöldi vegna vélarvandræða. Vél bátsins hafði ofhitnað við áreynslu, og taldi skipverji ekki óhætt að halda áfram fyrir eigin vélarafli. Innlent 18.12.2023 10:52
Sjáðu norska kofann sem Þorsteinn Már keypti á 260 milljónir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, hefur fest kaup á 254 fermetra fjallakofa fyrir utan Lillehammer í Noregi. Fyrir kofann greiddi Þorsteinn 260 milljónir króna. Lífið 14.12.2023 15:19
Vöktuðu bryggjuna í Grindavík í nótt Starfsmenn Grindavíkurhafnar og Vísis vöktuðu Grindavíkurhöfn í nótt vegna hættu á flóðum af völdum lægðarinnar sem gekk yfir landið. Leyfi fékkst frá almannavörnum til þess að mæta fyrr í bæinn í nótt. Innlent 14.12.2023 13:05
Töf á viðgerð á vatnslögninni vegna veðurs Slæmt veður hefur hamlað viðgerðarvinnu á vatnslögn til Vestmannaeyja. Það kemur fram í tilkynningu frá Slökkviliði Vestmannaeyja. Þar kemur fram að mikil vinna hafi verið lögð í að festa vatnslögnina. Vinnan hafi gengið vel en ekki eins hratt og áætlanir hafi gert ráð fyrir, vegna veðurs. Innlent 8.12.2023 16:15
Lífeyrissjóður verslunarmanna umsvifamesti fjárfestirinn í útboði Ísfélagsins Lífeyrissjóður verslunarmanna keypti tæplega fimmtung allra þeirra bréfa sem voru seld í nýafstöðnu hlutafjárútboði Ísfélagsins fyrir samtals um 3,5 milljarða. Þrír af stærstu lífeyrissjóðum landsins fengu hins vegar ekki úthlutað neinum bréfum en hlutabréfaverð Ísfélagsins, sem var skráð í Kauphöllina í morgun, hefur rokið upp um meira en tuttugu prósent miðað við útboðsgengið til almennra fjárfesta. Innherji 8.12.2023 12:07
Guðbjörg hringdi bjöllunni Viðskipti með hlutabréf Ísfélags hf. á aðalmarkaði Nasdaq Iceland hófust í morgun. Guðbjörg Matthíasdóttir, eigandi Ísfélags, hringdi af því tilefni Kauphallarbjöllunni um borð í Sigurði VE í Vestmannaeyjahöfn í morgun og naut hún þar aðstoð barnabarna sinna, þeim Magnúsi og Sigurði. Viðskipti innlent 8.12.2023 11:50
Afríka bíður meðan Eyjamenn fá búnað sem tryggir drykkjarvatn Vinnslustöðin hefur fest kaup á þremur gámum með hollenskum tæknibúnaði sem breytir sjó í drykkjarvatn og má reikna með að fyrsti gámurinn komi til landsins milli jóla og nýárs og hinir tveir í upphafi næsta árs. Þar sem félagið þarf bara einn gám til að fullnægja eigin þörfum hefur Ísfélaginu og Vestmannaeyjabæ verið boðið að kaupa hina tvo. Innlent 8.12.2023 07:34
Söluandvirði útboðs Ísfélagsins átján milljarðar Almennu hlutafjárútboði Ísfélags hf. lauk klukkan tvö í gær, en alls bárust um 6.500 áskriftir að andvirði um 58 milljarða króna. Það samsvarar tæplega fjórfaldri eftirspurn. Viðskipti innlent 2.12.2023 09:37
Verður Ísland útibúaland eða land höfuðstöðva blárrar nýsköpunar? Á skömmum tíma hafa mörg af mest hraðvaxandi fyrirtækjum hérlendis verið seld erlendum fjárfestum. Við fögnum þessum aukna áhuga erlendra fjárfesta á íslenskri nýsköpun og auðlindum henni tengdri. En þessi þróun kallar þó á að við metum hvaða áhrif hún getur haft á íslenska nýsköpun og athafnalíf. Eins er mikilvægt að rekstrarskilyrði þessara fyrirtækja séu sem best þannig að höfuðstöðvar þeirra haldist hér áfram. Sjávarklasinn hefur ekki hingað til talið skipta máli hvaða litur er á vegabréfum eigenda íslenskra fyrirtækja en þegar erlendir aðilar taka að fullu yfir okkar framsæknustu fyrirtæki er ástæða til að skoða áhrifin af því. Í þessari greiningu Sjávarklasans er fjallað um erlenda fjárfestingu og möguleg áhrif hennar á bláa hagkerfið hérlendis. Skoðun 30.11.2023 17:00
IFS verðmetur Ísfélagið um nítján prósentum hærra en útboðsgengi IFS greining verðmetur Ísfélagið 18,5 prósent yfir útboðsgengi í áskriftarbók til almennra fjárfesta og mælir með kaupum í útgerðinni. „Samanburður á verðkennitölum Ísfélagsins við verðkennitölur Brim og Síldarvinnslunnar gefa til kynna að virði Ísfélagsins sé nokkuð sanngjarnt metið í útboðinu.“ Innherji 30.11.2023 12:31
Matvælaráðherra dulur um mögulega endurnýjun leyfis Hvals „Ráðuneytinu hefur ekki borist umsókn um nýtt leyfi.“ Innlent 30.11.2023 07:01
Grindavíkurhöfn dýpri og mikill hugur í hafnarstjóranum Grindavíkurhöfn hefur dýpkað eftir jarðhræringar undanfarinna vikna. Bryggjurnar hafa sigið um tuttugu til þrjátíu sentímetra. Hafnarstjóri segir höfnina geta verið viðkvæmari fyrir flóðum en segir dýpkunina líka hafa ýmsa kosti í för með sér. Tekið verður á móti fyrsta skipi til löndunar síðan að bærinn var rýmdur á morgun. Viðskipti innlent 29.11.2023 22:27
Til skoðunar hvort bilun eða mistök hafi valdið skaðanum Lögreglan í Vestmannaeyjum hefur til skoðunar hvort einhver bilun hafi orði í tækjabúnaði eða mistök gerð þegar akkeri um borð í Hugin VE féll frá borði með þeim afleiðingum að neysluvatnslögn Eyjamanna varð fyrir skemmdum. Hættustig almannavarna hefur verið lýst yfir vegna stöðunnar. Innlent 29.11.2023 16:34
Olían í bræðslunum þurrkaði upp ávinning rafbílavæðingar Þriðja veturinn í röð neyðast fiskimjölsverksmiðjur landsins til að brenna olíu vegna raforkuskort. Sú aukna olíunotkun sem af þessu leiddi síðastliðinn vetur þurrkaði upp allan loftslagsávinning af öllum innfluttum rafmagnsbílum frá upphafi. Innlent 28.11.2023 20:20
Þýðingarmikið að sjá líf kvikna í Grindavík Tómas Þór Eiríksson, framkvæmdastjóri Arctic Saga, og Jóhann Vignir Gunnarsson sem sér um markaðsmál hjá Þorbirni hf. í Grindavík mættu til vinnu í fiskvinnslu í Grindavík í dag. Þeir segja flesta jákvæða en skjálfta í mörgum. Viðskipti innlent 28.11.2023 17:01
Hefja vinnslu á ný í Grindavík Stefnt er að því að byrja að pakka saltfiski á ný í vinnslu sjávarútvegsfyrirtækisins Þorbjarnar í Grindavík í dag og er starfsfólk mætt á staðinn. Fyrirtækjum í Grindavík hefur nú verið auðveldað að hefja starfsemi aftur eftir að reglur um viðveru í bænum voru rýmkaðar. Innlent 28.11.2023 11:52
Samið um starfslok eftir að akkerið skemmdi vatnslögn Eyjamanna Skipstjóri og stýrimaður á Huginn VE hafa lokið störfum hjá Vinnslustöðinni í framhaldi af því að akkeri skipsins skemmdi vatnslögn Eyjamanna. Óttast er um vatnsskort í Vestmannaeyjum í vetur. Innlent 28.11.2023 11:22
Nýtt skip til Grindavíkur fyrir sjómannadag Útgerðarfélagið Þorbjörn hf. í Grindavík sjósetti nýtt skip, Huldu Björnsdóttur GK-11, á Spáni í gær. Um er að ræða fyrstu nýsmíðina í yfir hálfa öld hjá fyrirtækinu. Stefnt er á að skipið komi siglandi inn í Grindavíkurhöfn fyrir sjómannadag. Viðskipti innlent 28.11.2023 09:05
Framleiða allt að hundrað tonn á dag Laxavinnslan Drimla í Bolungarvík verður formlega vígð í dag þegar bæjarbúum og öðrum gestum gefst kostur á að skoða vinnsluna. Framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Artic fish segir að um níutíu til hundrað tonn af afurðum séu framleiddar í húsinu á dag. Innlent 25.11.2023 14:03
Heildarlög um sjávarútveg Í dag birtast á samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi til heildarlaga um sjávarútveg og drög að þingsályktun um sjávarútvegsstefnu. Frumvarpsdrögin voru byggð á þeirri stefnumótunarvinnu sem lauk í haust með útgáfu skýrslunnar „Auðlindin okkar“ Skoðun 24.11.2023 15:31
Félag Guðbjargar áformar að selja fyrir um tíu milljarða í útboði Ísfélagsins Fjárfestingafélag Guðbjargar Matthíasdóttur, aðaleigandi Ísfélagsins, mun standa að sölu á miklum meirihluta þeirra bréfa sem verða seld til nýrra fjárfesta í almennu hlutafjárútboði sjávarútvegsfyrirtækisins sem hófst í morgun. Miðað við lágmarksgengið í útboðinu, sem metur Ísfélagið á 110 milljarða, þykir félagið nokkuð hagstætt verðlagt í samanburði við önnur sjávarútvegsfyrirtæki á markaði og verðmöt sem greinendur hafa gert í tengslum við skráninguna. Innherji 23.11.2023 12:04
Um þriðjungur starfsfólks farinn heim til Póllands Framkvæmdastjóri Vísis í Grindavík segir helstu starfsemi hafa verið flutta annað. Stefnt sé að því að undirbúa húsin í Grindavík næstu viku fyrir vinnslu þegar leyfi fæst. Þriðjungur hefur yfirgefið landið. Hann segir starfsemina byrja aftur í Grindavík um leið og grænt ljós kemur. Innlent 23.11.2023 11:31
Ísfélagið verðmetið á yfir 110 milljarða í útboði á um fimmtán prósenta hlut Sjávarútvegsfyrirtækið Ísfélagið, sem varð til við sameiningu Ísfélags Vestmannaeyja og Ramma um mitt þetta ár, hefur ákveðið að hefja almennt hlutafjárútboð þar sem til stendur að selja tæplega fimmtán prósenta hlut í félaginu. Miðað við lágmarksgengið í tilboðsbók A í útboðinu, sem er beint að minni fjárfestum, er fyrirtækið verðmetið á samtals rúmlega 110 milljarða króna. Innherji 22.11.2023 16:45
Töluverðar skemmdir á neysluvatnslögninni til Vestmannaeyja Töluverðar skemmdir virðast hafa orðið á neysluvatnslögninni til Vestmannaeyja þegar akkeri Hugins VE festist í vatnslögninni. Atvikið átti sér stað á föstudagskvöld en greint var frá því á vefsíðu Vestmannaeyjabæjar í gær. Innlent 20.11.2023 06:54