Innlent

Stjórnar­liðið reynir að hysja upp um sig brækurnar í vegamálum

Kristján Már Unnarsson skrifar
Frá opnun brúar yfir Þorskafjörð í október í fyrra. Lokaáfangi endurnýjunar Vestfjarðavegar um Gufudalssveit hefur síðan verið í óvissu.
Frá opnun brúar yfir Þorskafjörð í október í fyrra. Lokaáfangi endurnýjunar Vestfjarðavegar um Gufudalssveit hefur síðan verið í óvissu. Vegagerðin

Núna er orðið ljóst að samgönguáætlun til næstu fjögurra ára verður ekki lögð fyrir yfirstandandi þing. Við fjárlagagerðina stefnir ríkisstjórnin þó að því að tilgreina nokkur verkefni sem bjóða megi út.

Í fréttum Stöðvar 2 var fjallað um þessa fáheyrðu stöðu; útboðsstopp sem staðið hefur í meira en heilt ár. Fjórtán mánuðir eru núna frá því Vegagerðin bauð síðast út stórt verk.

Meðal verkefna sem bjóða átti út á þessu ári en lentu í salti voru: Fossvogsbrú, tvöföldun á Kjalarnesi að Hvalfjarðargöngum, brúasmíði í Gufudalssveit, næsti áfangi á Dynjandisheiði og nýr vegur um Brekknaheiði á Langanesi.

Næsti áfangi á Dynjandisheiði, vegarkaflinn af heiðinni og niður í Dynjandisvog, er meðal verkefna sem óvissa ríkir um.Vegagerðin

Ástæðan er einkum sú að fjármögnun Hornafjarðarfljóts á grundvelli laga um samvinnuverkefni stóðst ekki. Verkið var engu að síður sett af stað, án nægilegra fjárheimilda, og sogaði það til sín fjárveitingar úr öðrum verkum. Þetta olli uppnámi í þinginu síðastliðið vor og var helsta ástæða þess að stjórnarmeirihlutinn treysti sér ekki til að afgreiða samgönguáætlun.

Ríkisstjórnin hefur núna komið því verkefni til fjárlaganefndar að kanna hvort unnt sé að koma einhverjum þeirra verka, sem til stóð að hefja á þessu ári, í útboð sem fyrst. Heimildir fréttastofu herma að það sé þó hæpið að þau komist öll í gang á næsta ári, meðal annars sökum þess að Hornafjarðarfljót er enn vanfjármagnað.

Þá eru litlar líkur taldar á því að ný jarðgöng verði boðin út á nýju ári. Fjarðarheiðargöng hafa verið næst á dagskrá og þau einu sem eru tilbúin til útboðs. Það virðist þó vera vilji til þess að setja meiri kraft í undirbúning annarra jarðganga. Þar eru nefnd Fljótagöng, ný Ólafsfjarðargöng, ný Hvalfjarðargöng og Súðavíkurgöng.

Fjarðarheiðargöng. Svona er gangamunni í Seyðisfirði hugsaður.VEGAGERÐIN/MANNVIT

Frestun samgönguáætlunar þýðir jafnframt óvissu um hvernig fer með önnur stórverkefni sem kallað hefur verið eftir. Ef fjögurra ára samgönguáætlun, sem til stóð að kynna núna í október, væri komin fram myndi sjást mörkuð stefna um til dæmis hvenær farið yrði í fleiri Borgarlínuverkefni, breikkun Suðurlandsvegar út frá Reykjavík eða breikkun við Hveragerði. Einnig hvort verkefni eins og Veiðileysuháls á Ströndum kæmist á dagskrá, brúargerð yfir Skjálfandafljót eða Axarvegur.

Þá verður áhugavert að sjá hvernig fer með nýja Ölfusárbrú. Fyrir síðustu þingkosningar var brúin helsta kosningaloforð Sigurðar Inga Jóhannssonar innviðaráðherra sem lofaði að hún yrði tilbúin annaðhvort árið 2023 eða 2024. Það mun augljóslega ekki rætast.

Hann er hins vegar búinn að leggja fram breytingartillögu við bandorminn svokallaða í von um að hysja upp um sig brækurnar. Ef tillagan verður samþykkt þá gæti farið svo að skrifað yrði undir verksamning um Ölfusárbrú í vikunni fyrir kjördag.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:


Tengdar fréttir

Vestfirðingar segja ítrekuð svik í vegamálum óboðleg

„Áætlunum kollvarpað og staðan óboðleg,” er fyrirsögn ályktunar stjórnar Vestfjarðastofu þar sem lýst er miklum vonbrigðum með þá stöðu sem enn og aftur sé komin upp í samgönguframkvæmdum í fjórðungnum. Segir að verið sé að svíkja ítrekuð loforð ráðherra og þingmanna um að þær nýframkvæmdir sem ættu núna að vera á lokastigi yrðu kláraðar eins fljótt og mögulegt væri.

Öll stór verkútboð liggja í salti hjá Vegagerðinni

Útboð stórra verka hafa verið stopp hjá Vegagerðinni frá því síðastliðið haust og stefnir í að engar nýjar stórframkvæmdir hefjist á þessu ári. Helsta skýringin er sögð sú að áform um einkafjármögnun vegagerðar yfir Hornafjörð gengu ekki eftir og því þurfi að fjármagna hana úr öðrum verkefnum.

Sigurður Ingi lofar nýrri Ölfusárbrú í lok árs 2023 eða 2024

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgönguráðherra lofar nýrri brú yfir Ölfusá við Selfoss í lok ársins 2023 eða árið 2024 en framkvæmdir við brúna verða boðnar út um næstu áramót. Brúin mun kosta um sex og hálfan milljarða króna og innheimtur verður vegatollur yfir hana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×