Grunur um manndráp á Selfossi
1 2 ›
Hinn grunaði í Selfossmálinu er látinn Karlmaður á þrítugsaldri sem grunaður var um að hafa orðið Sofiu Sarmite Kolsenikovu að bana á Selfossi í apríl í fyrra lést í vikunni. Rannsókn málsins verður lokið þrátt fyrir að ljóst sé að ákæra verði ekki gefin út í því. Innlent 10.9.2024 11:30
Bíður eftir gögnum til að ljúka rannsókn í manndrápsmáli á Selfossi Héraðssaksóknari bíður enn eftir gögnum til að geta lokið rannsókn sinni á andláti Sofiu Sarmite Kolsenikovu. Sofia fannst látin í heimahúsi á Selfossi í lok apríl í fyrra. Málið var sent frá lögreglunni á Suðurlandi til héraðssaksóknara í desember síðastliðnum. Innlent 20.6.2024 06:45
Rannsókn manndrápsmálsins á Selfossi á borði héraðssaksóknara Rannsókn á andláti Sofiu Sarmite Kolsenikova, sem fannst látin í heimahúsi á Selfossi í lok apríl í fyrra, stendur enn. Málið var sent frá lögreglunni á Suðurlandi til héraðssaksóknara í desember síðastliðnum. Innlent 5.4.2024 14:31
Hafi reynt að fela dóp í stað þess að bjarga lífi konunnar Maður á þrítugsaldri, sem er grunaður um að hafa orðið konu að bana á Selfossi í apríl á síðasta ári, er talinn hafa spillt sönnunargögnum málsins áður en lögreglu var gert viðvart um andlátið. Innlent 10.1.2024 23:29
Maður grunaður um manndráp ekki lengur í farbanni Maður á þrítugsaldri, sem er grunaður um að hafa orðið konu að bana á Selfossi í apríl á þessu ári, sætir ekki lengur farbanni. Farbannið rann út fyrir helgi og Héraðsdómur Suðurlands framlengdi það ekki. Lögreglan á Suðurlandi hefur kært ákvörðunina til Landsréttar. Innlent 7.12.2023 19:34
Rannsókn manndrápsmálsins á Selfossi á lokametrunum Rannsókn lögreglunnar á Suðurlandi á andláti Sofiu Sarmite Kolesnikova, sem fannst látin í heimahúsi á Selfossi í lok apríl, miðar vel. Yfirlögregluþjónn á von á að málið verði sent til saksóknara á næstu dögum og maðurinn sem grunaður er um að hafa átt þátt í andláti hennar verði úrskurðaður í áframhaldandi farbann. Innlent 30.11.2023 11:26
Verjandi vildi fjórtán milljónir en fær ekki neitt í bili Landsréttur hefur fellt úrskurð Héraðsdóms Suðurlands vegna kröfu lögmanns um greiðslu málsvarnarlauna vegna starfa hans í þágu manns, sem grunaður er um manndráp á Selfossi í vor, niður. Lögmaðurinn hafði krafist greiðslu tæplega fjórtán milljóna króna en héraðsdómur úrskurðaði honum rúmlega sex milljónir. Landsréttur gerði það á grundvelli þess að málinu er ekki lokið. Innlent 11.10.2023 10:57
Fjölskylda Sofiu þakklát fyrir heimboð að Bessastöðum Fjölskylda Sofiu Sarmite Kolesnikovu sem lést á Selfossi í apríl síðastliðnum þáði heimboð Guðna Th. Jóhannessonar forseta Íslands að Bessastöðum á dögunum. Systir Sofiu er full af þakklæti fyrir heimboðið. Innlent 31.8.2023 13:13
Hinn grunaði á Selfossi laus úr gæsluvarðhaldi Maðurinn sem grunaður er um að hafa banað konu á Selfossi í lok apríl er laus úr gæsluvarðhaldi. Hann hefur verið dæmdur í farbann til 1. desember næstkomandi. Innlent 30.8.2023 20:22
Situr í gæsluvarðhaldi lengur en lög gera ráð fyrir: „Það einfaldlega gengur ekki í réttarríki“ Undanfarnar vikur hafa reglulega birst fréttir af því að fallist hafi verið á framlengingu gæsluvarðhalds manns sem grunaður er um að hafa banað ungri konu í heimahúsi á Selfossi þann 27. apríl síðastliðinn. Hann mun sæta gæsluvarðhaldi út ágúst og mun þá hafa verið í haldi í átján vikur. Innlent 23.8.2023 13:31
Segir rannsóknarhagsmuni fyrir löngu gæsluvarðhaldi ekki til staðar Lögmaður mannsins sem grunaður er um að hafa myrt konu á Selfossi í apríl gagnrýnir hve lengi hann hefur setið í gæsluvarðhaldi. Maðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald þann 27. apríl, sama dag og kona á þrítugsaldri fannst látin í húsi á Selfossi. Innlent 22.8.2023 20:54
Fallist á lengra gæsluvarðhald: Vonast eftir niðurstöðu krufningar um mánaðamótin Landsréttur féllst í dag á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manni sem grunaður er um manndráp í heimahúsi á Selfossi. Hann hefur sætt gæsluvarðhaldi frá 27. apríl síðastliðnum og mun sæta því áfram til 31. þessa mánaðar hið skemmsta. Innlent 16.8.2023 18:29
Brýnir hagsmunir halda þeim grunaða á Selfossi bak við lás og slá Lögreglustjórinn á Suðurlandi gerði í dag enn einu gæsluvarðhaldskröfuna fyrir héraðsdómi yfir manni sem grunaður er um manndráp. Maðurinn var handtekinn 27. apríl síðastliðinn en krafan er lögð fram á grundvelli brýnna rannsóknarhagsmuna þar sem endanleg niðurstaða krufningar liggur ekki fyrir. Innlent 11.8.2023 18:01
Framlengja gæsluvarðhald vegna manndráps á Selfossi Héraðsdómur Suðurlands féllst í dag á kröfu lögreglunnar á Suðurlandi um að framlengja gæsluvarðhald manns á þrítugsaldri sem grunaður er um að hafa valdið dauða ungrar konu í apríl þessa árs. Innlent 14.7.2023 16:01
Krefjast fjögurra vikna áframhaldandi varðhalds vegna manndráps á Selfossi Lögreglan á Suðurlandi hefur óskað eftir áframhaldandi gæsluvarðhaldi yfir karlmanni á þrítugsaldri sem grunaður er um að hafa orðið ungri konu að bana á Selfossi í lok apríl. Von er á niðurstöðu Héraðsdóms Suðurlands síðar í dag. Ellefu vikur eru nú liðnar frá því að maðurinn var fyrst úrskurðaður í gæsluvarðhald. Innlent 14.7.2023 12:00
Þakklát forseta Íslands fyrir bréf eftir andlát dóttur sinnar Valda Anastasia Kolesnikova, móðir Sofiu Sarmite Kolesnikova sem fannst látin í heimahúsi á Selfossi þann 27. apríl síðastliðinn, segist vera gríðarlega þakklát fyrir stuðninginn sem hún hefur fengið eftir andlát dóttur sinnar. Hún þakkar Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, sérstaklega fyrir handskrifað bréf sem hann skrifaði henni. Innlent 30.6.2023 11:34
Gæsluvarðhald framlengt um tvær vikur Héraðsdómur Suðurlands úrskurðaði í dag karlmann, sem er grunaður um að hafa orðið 29 ára konu að bana á Selfossi, í áframhaldandi tveggja vikna gæsluvarðhald. Bæði lögregla og maðurinn hafa kært úrskurðinn til Landsréttar. Innlent 16.6.2023 18:39
Rannsókn á manndrápi á Selfossi gengur vel Lögreglustjórinn á Suðurlandi hefur krafist áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir manni sem grunaður er um manndráp á Selfossi. Sá hefur meiri aðkomu að málinu en annar maður sem var handtekinn við upphaf rannsóknar en sleppt. Innlent 16.6.2023 14:13
Gæsluvarðhald vegna manndrápsins á Selfossi framlengt Í dag féllst dómari við Héraðsdóm Suðurlands á kröfu Lögreglustjórans á Suðurlandi um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir karlmanni, vegna rannsóknar á andláti ungrar konu á Selfossi frá því í apríl síðastliðnum. Gæsluvarðhald var framlengt til sextánda júní næstkomandi. Innlent 2.6.2023 17:58
Aftur í einangrun grunaður um manndráp á Selfossi Karlmaður á þrítugsaldri sem grunaður er um að hafa orðið 28 ára konu að bana á Selfossi þann 27. apríl er aftur kominn í gæsluvarðhald í fangelsinu á Hólmsheiði. Vikurnar tvær á undan hafði hann fengið að umgangast aðra fanga á meðan hann sætir gæsluvarðhaldi. Innlent 22.5.2023 14:50
Áfram í gæsluvarðhaldi grunaður um manndráp Maður sem grunaður er um að hafa banað konu á Selfossi í apríl hefur verið úrskurðaður í lengra gæsluvarðhald. Maðurinn var handtekinn þann 27. apríl og hefur verið í haldi síðan þá en nú var tveimur vikum bætt við. Innlent 20.5.2023 08:53
Áfram í gæsluvarðhaldi á Selfossi Karlmaður á þrítugsaldri sem grunaður er um að hafa orðið konu að bana á Selfossi í lok apríl hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald. Innlent 10.5.2023 17:30
Rannsókn beinist að hugsanlegu manndrápi Rannsókn lögreglu á andláti ungrar konu á Selfossi í síðustu viku beinist nú að hugsanlegu manndrápi til samræmis við bráðabirgðaniðurstöður krufningar. Héraðsdómur Suðurlands hefur framlengt gæsluvarðhald til 19. maí yfir öðrum af tveimur mönnum sem handteknir voru í tengslum við málið. Maðurinn var leiddur fyrir dómara nú fyrir stundu. Innlent 5.5.2023 16:42
Lögregla fundar með fjölskyldu hinnar látnu í dag Lögreglan á Suðurlandi telur sig vera komna með nokkuð skýra mynd af atburðarrásinni sem leiddi til andláts konu á Selfossi í síðustu viku. Farið hefur verið fram á gæsluvarðhald yfir öðrum af tveimur mönnum sem handteknir voru í tengslum við andlátið en hinum hefur verið sleppt. Lögregla mun funda með aðstandendum hinnar látnu í dag. Innlent 5.5.2023 10:40
Annar laus úr gæsluvarðhaldi í Selfossmálinu Lögreglan á Suðurlandi hefur sleppt öðrum manninum úr gæsluvarðhaldi sem handtekinn var í tengslum við andlát ungrar konu á Selfossi. Krafa hefur verið gerð um að hinn maðurinn sæti áfram gæsluvarðhaldi. Innlent 4.5.2023 20:37
Gæsluvarðhald staðfest yfir tveimur í tengslum við andlátið á Selfossi Landsréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur mönnum í tengslum við andlát ungrar konu á Selfossi. Mennirnir tveir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald á laugardag í Héraðsdómi Suðurlands. Innlent 3.5.2023 17:37
Minnist systur sinnar sem lést á Selfossi í síðustu viku Konan sem fannst látin í heimahúsi á Selfossi fimmtudaginn 27. apríl hét Sofia Sarmite Kolesnikova og var á 29. aldursári. Eldri systir hennar segir Sofiu aldrei hafa neytt áfengis, reykt eða neitt því líkt. Hún treystir á að lögreglan komist til botns í því hvað gerðist. Innlent 2.5.2023 00:46
Nafn hinnar látnu ekki gefið upp Lögreglan á Suðurlandi hyggst ekki gefa upp nafn ungrar stúlku sem lést á Selfossi síðastliðinn fimmtudag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. Innlent 1.5.2023 17:54
Fallist á gæsluvarðhald yfir mönnunum Héraðsdómur Suðurlands hefur fallist á kröfur Lögreglustjórans á Suðurlandi um gæsluvarðhald yfir tveimur karlmönnum sem voru handteknir í tengslum við rannsókn á andláti konu í heimahúsi á Selfossi. Verða mennirnir í gæsluvarðhaldi til 5. maí næstkomandi. Innlent 29.4.2023 11:46
Lögregla verst alla frétta af mannsláti á Selfossi: Misvísandi sögusagnir í umferð Lögreglan á Suðurlandi verst allra frétta af mannsláti á Selfossi síðdegis í gær. Ung kona sá sig knúna til að setja færslu á samfélagsmiðla og upplýsa um að hún væri ekki sú látna, þar sem sögur þess efnis gengu um bæjarfélagið. Innlent 28.4.2023 23:07