Innlent

Bíður eftir gögnum til að ljúka rann­sókn í mann­dráps­máli á Sel­fossi

Lovísa Arnardóttir og Jón Þór Stefánsson skrifa
Maðurinn var handtekinn á vettvangi og sat í gæsluvarðhaldi í um tólf vikur. Eftir það var hann í farbanni til áramóta en er nú frjáls ferða sinna.
Maðurinn var handtekinn á vettvangi og sat í gæsluvarðhaldi í um tólf vikur. Eftir það var hann í farbanni til áramóta en er nú frjáls ferða sinna. Vísir

Héraðssaksóknari bíður enn eftir gögnum til að geta lokið rannsókn sinni á andláti Sofiu Sarmite Kolsenikovu. Sofia fannst látin í heimahúsi á Selfossi í lok apríl í fyrra. Málið var sent frá lögreglunni á Suðurlandi til héraðssaksóknara í desember síðastliðnum.

Karl Ingi Vilbergsson, saksóknari hjá embætti héraðssaksóknara, segir þau enn bíða gagna. Fram kom í fréttum fyrr á árinu að héraðssaksóknari biði gagna erlendis frá.

Karlmaður á þrítugsaldri er grunaður um að hafa orðið Sofiu að bana og jafnframt talinn hafa spillt sönnunargögnum málsins áður en lögreglu var gert viðvart um andlátið með því að færa lík Sofiu.

Karl Ingi Vilbergsson er saksóknari hjá embætti héraðssaksóknara.Vísir/Vilhelm

Maðurinn neitar þó að hafa banað henni. Í fyrstu skýrslutöku sagði hann hana hafa látist af völdum ofskammts fíkniefna. Hann hafði komið að henni meðvitundarlausri á gólfinu á neðri hæð heimilis þeirra og líkami hennar þá verið orðinn stífur.

Hann sagði þetta hafa verið um tveimur klukkustundum eftir að þau hættu að stunda kynlíf, sem fól í sér endurtekin kyrkingartök, þar sem maðurinn þrengdi að hálsi konunnar. Því var haldið fram fyrir dómi að umrætt kynlíf hafi staðið yfir frá kvöldi fram til morguns og þau hafi bæði verið undir áhrifum kókaíns.

Maðurinn hefur frá fyrstu skýrslutöku breytt framburði sínum oftar en einu sinni.

Niðurstaða krufningar bendir til þess að andlát konunnar hafi borið að vegna kyrkingar en að kókaíneitrun hafi að minnsta kosti verið meðverkandi í andlátinu.

Maðurinn var handtekinn á vettvangi og úrskurðaður í gæsluvarðhald, sem var endurtekið framlengt til 31. ágúst. Eftir það var hann úrskurðaður í farbann til 1. desember en það ekki framlengt.


Tengdar fréttir

Rann­sókn mann­dráps­málsins á Sel­fossi á loka­metrunum

Rannsókn lögreglunnar á Suðurlandi á andláti Sofiu Sarmite Kolesnikova, sem fannst látin í heimahúsi á Selfossi í lok apríl, miðar vel. Yfirlögregluþjónn á von á að málið verði sent til saksóknara á næstu dögum og maðurinn sem grunaður er um að hafa átt þátt í andláti hennar verði úrskurðaður í áframhaldandi farbann.

Fjölskylda Sofiu þakklát fyrir heimboð að Bessastöðum

Fjölskylda Sofiu Sarmite Kolesnikovu sem lést á Selfossi í apríl síðastliðnum þáði heimboð Guðna Th. Jóhannessonar forseta Íslands að Bessastöðum á dögunum. Systir Sofiu er full af þakklæti fyrir heimboðið.

Áfram í gæsluvarðhaldi grunaður um manndráp

Maður sem grunaður er um að hafa banað konu á Selfossi í apríl hefur verið úrskurðaður í lengra gæsluvarðhald. Maðurinn var handtekinn þann 27. apríl og hefur verið í haldi síðan þá en nú var tveimur vikum bætt við.

Rannsókn beinist að hugsanlegu manndrápi

Rannsókn lögreglu á andláti ungrar konu á Selfossi í síðustu viku beinist nú að hugsanlegu manndrápi til samræmis við bráðabirgðaniðurstöður krufningar. Héraðsdómur Suðurlands hefur framlengt gæsluvarðhald til 19. maí yfir öðrum af tveimur mönnum sem handteknir voru í tengslum við málið. Maðurinn var leiddur fyrir dómara nú fyrir stundu. 

Lög­regla fundar með fjölskyldu hinnar látnu í dag

Lögreglan á Suðurlandi telur sig vera komna með nokkuð skýra mynd af atburðarrásinni sem leiddi til andláts konu á Selfossi í síðustu viku. Farið hefur verið fram á gæsluvarðhald yfir öðrum af tveimur mönnum sem handteknir voru í tengslum við andlátið en hinum hefur verið sleppt. Lögregla mun funda með aðstandendum hinnar látnu í dag. 

Minnist systur sinnar sem lést á Selfossi í síðustu viku

Konan sem fannst látin í heimahúsi á Selfossi fimmtudaginn 27. apríl hét Sofia Sarmite Kolesnikova og var á 29. aldursári. Eldri systir hennar segir Sofiu aldrei hafa neytt áfengis, reykt eða neitt því líkt. Hún treystir á að lögreglan komist til botns í því hvað gerðist.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×