Kórar
1 2 ›
105 ára og syngur í kór - Sérrí og Baileys eftir æfingu Það slær ekki slöku við heimilisfólkið á hjúkrunarheimilinu Eir í Grafarvogi því þau eru með kór þar sem elsti félaginn er 105 ára gamall. Eftir æfingu er boðið upp á sérríglas og Baileys. Lífið 29.9.2024 20:05
Sagði kórstjórann hafa hótað sér „vanvirðingu og niðurlægingu“ Kærunefnd jafnréttismála hefur vísað frá kæru konu á hendur kórstjóra sem konan sagði hafa hafa hótað sér og áreitt. Konan sagði kórstjórann hafa í síma hótað sér „vanvirðingu og niðurlægingu“ ef hún myndi mæta á fleiri æfingar. Þá átti kórstjórinn að hafa ætlað sér að „beita sambýlismanni [konunnar] við aðgerðina“. Innlent 26.8.2024 13:53
93 ára og 90 ára söngfuglar á Suðurlandi Þú ert aldrei of gamall eða gömul til að syngja í kór en það þekkir Ingibjörg Helga, sem er 90 ára og Steinunn Aðalbjörg, sem er 93 ára og syngja saman í kór á Selfossi og Reynir, sem er 90 ár og syngur í kór í Vík í Mýrdal. Lífið 11.5.2024 20:22
Karlakórinn Esja tók frægasta slagara Backstreet Boys Karlakórinn Esja hélt Bangsasúputónleikana sína í Háteigskirkju um helgina og voru þeir vel sóttir. Mesta athygli vakti magnaður flutningur þeirra á frægasta slagara Backstreet Boys, I Want it That Way. Myndband af flutningnum á strákabandsslagaranum hefur vakið gríðarlega athygli. Lífið 23.4.2024 15:33
Eldskírn að hitta karlakórinn Pétur G. Markan er að taka við bæjarstjórataumunum í Hveragerði. Það leggst vel í biskupsritarann sem segja má að sé með Guð í farteskinu. Innlent 5.4.2024 09:53
Hlustendaverðlaunin 2024: Barnakór tók undir með XXX Rottweiler Félagarnir í þekktustu og gamalgrónustu rapphljómsveit landsins XXX Rottweiler mættu, sáu og sigruðu á Hlustendaverðlaunum 2024 sem fram fóru í Gamla bíó á fimmtudagskvöld. Óvæntir gestir frá Drengjakór Reykjavíkur og Kársneskórnum slógu í gegn á sviðinu með hljómsveitinni. Tónlist 23.3.2024 14:01
Frumraun Alþingiskórsins á sviði um helgina Hinn háttvirti Alþingiskór kom í fyrsta sinn fram í þingveislu um helgina. Kórinn samanstendur af tuttugu þingmönnum og þeirra á meðal er dómsmálaráðherra og innviðaráðherra. Lífið 10.3.2024 18:25
Nýr kór þingmanna ætlar að troða upp eftir tvær vikur Mikil leynd hvílir yfir starfsemi nýstofnaðs Alþingismannakórs en Jakob Frímann Magnússon, Flokki fólksins, er kórstjóri. Lífið 20.2.2024 15:52
Skyrgámur stal senunni á Sólheimum í Grímsnesi Skyrgámur stal heldur betur senunni á Sólheimum í Grímsnesi þegar hann mætti galvaskur í kirkjuna á staðnum til að stjórna á jólatónleikum Sólheimakórsins í gær. Hann lét það ekki duga, heldur settist hann líka við trommusettið og fór þar á kostum. Lífið 10.12.2023 21:04
Kirkjur og kór Ég fylltist ánægju við að flytja í hverfið okkar. Bæði vegna fallegs og fjölskylduvæns umhverfis en ekki síst vegna þess að ég vissi að tónlist, kórastarf og skólahljómsveitastarf er í hávegum haft í bæjarfélaginu. Skoðun 9.11.2023 14:00
28 syngjandi karlar í sama heita pottinum á Selfossi Það var engin ládeyða hjá félögum í Karlakórnum Esju úr Reykjavík um helgina því á sama tíma og þeir fögnuðu útkomu nýrrar plötu brugðu þeir sér í bæjarferð á Flúðir og fengu sér hrossakjöt þar, og enduðu ferðina svo með söng og Mullersæfingum í sundlauginni á Selfossi. Lífið 6.11.2023 20:30
Stefán Reynir er látinn Stefán Reynir Gíslason kórstjóri og organisti er látinn 68 ára gamall. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu þann 17. október síðastliðinn. Stefán hafði verið í fararbroddi í tónlistarlífinu í Skagafirði um árabil. Innlent 19.10.2023 10:34
Alþjóðleg drengjakórahátíð á Íslandi í fyrsta sinn Þessa dagana fer alþjóðlega drengjakórahátíðin „The Boys are Singing“ fram á Íslandi í fyrsta sinn. Á hátíðinni tekur Drengjakór Reykjavíkur á móti „Sofia Boys Choir“ frá Búlgaríu sem er meðal virtustu drengjakóra Evrópu. Drengjakór Reykjavíkur skipa um 20 drengir á aldrinum 8-15 ára sem syngja fjölbreytta tónlist af ýmsum toga, trúarlega og veraldlega, gamla og nýja. Innlent 3.6.2023 12:04
Karlakór Rangæinga fagnar 30 ára afmæli með fallegum söng Karlakór Rangæinga fagnar nú þrjátíu ára starfsafmæli og blæs af því tilefni til afmælis- og vortónleika á nokkrum stöðum. Kórinn er skipaður um fjörutíu körlum, aðallega bændum úr sýslunni. Innlent 19.4.2023 19:31
92 ára félagi í Hörpukórnum á Selfossi „Það er fátt skemmtilegra en að syngja í kór“, segja félagar í Hörpukórnum á Selfossi, sem er kór eldri borgara á staðnum. Kórinn undirbýr sig nú fyrir kóramót. Elsti söngfélaginn er 92 ára. Innlent 1.4.2023 20:01
Karlakór Reykjavíkur flytur inn vinakór sinn frá Færeyjum Karlakór Reykjavíkur flytur inn vinakór sinn, Tórshavnar Manskór, frá Færeyjum til þess að taka þátt í hátíðartónleikum. Tónleikarnir fara fram á aðventu í Hallgrímskirkju og hafa verið árleg hefð síðustu þrjátíu árin. Jól 28.11.2022 17:31
Karlakór Akureyrar Geysir fagnar 100 ára afmæli sínu í dag Það stendur mikið til í Hofi á Akureyri í dag því þar verður Karlakór Akureyrar með stórtónleika í tilefni af 100 ára afmæli kórsins. 42 karlar syngja með kórnum, sá yngsti 16 ára og sá elsti er að verða áttræður. Innlent 12.11.2022 13:05
Svona verður dagskráin við setningu Alþingis á þriðjudag Alþingi verður sett þriðjudaginn 13. september og hefst þingsetningarathöfnin klukkan 13:30 með guðsþjónustu í Dómkirkjunni, venju samkvæmt. Innlent 8.9.2022 15:05
Drengjakór Reykjavíkur með 30 ára afmælistónleika Það stendur mikið til hjá Drengjakór Reykjavíkur því kórinn er að fara að halda upp á 30 ára afmæli sitt með tónleikum. Tónleikarnir áttu reyndar að vera fyrir tveimur árum en út af Covid hefur ekki verið hægt að halda þá fyrr en nú. Sextán drengir á aldrinum átta til fimmtán ára syngja með kórnum í dag. Innlent 29.5.2022 21:02
Konfettí, reykur og vindvél á Kötlugosi um helgina Kvennakórinn Katla er tíu ára um þessar mundir og verður haldið uppá þann áfanga með kórleikhúsi í Tjarnarbíó. Tónlist 19.5.2022 15:31
Byrjaði 14 ára að syngja með Karlakór Hreppamanna Jómundur Atli Bjarnason, sem var 14 ára þegar honum bauðst að syngja með Karlakór Hreppamanna var ekki lengi að slá til og segja já. Nú er hann nýorðinn 15 ára og er að að syngja á sínum fyrstu vortónleikum. 62 ár eru á milli hans og elsta kórfélagans. Innlent 21.4.2022 08:03
Útgáfurisinn Universal gefur út íslenska kórtónlist Útgáfurisinn Universal hefur nýverið gefið út plötuna Vökuró í samstarfi við dömukórinn Graduale Nobili. Platan er gefin út undir formerkjum Decca plötuútgáfu Universal. Í þessu felst gríðarlega mikil útrás fyrir íslenska kórtónlist, sem sífellt er að verða vinsælli erlendis. Albumm 27.3.2022 18:35
Útgáfurisi gefur út íslenska kórtónlist Útgáfurisinn Universal gaf nýverið út plötuna Vökuró í samstarfi við dömukórinn Graduale Nobili. Kórinn var stofnaður um aldamótin og skipar 24 konur á aldrinum 18-32 ára. Tónlist 26.3.2022 15:46
Stanslaust stuð á kóranámskeiðum í Selfosskirkju Kóranámskeið fyrir börn í fyrsta og öðrum bekk hafa slegið í gegn í Selfosskirkju en þar er verið að þjálfa börnin upp áður en þau fara í barnakór kirkjunnar næsta vetur. Námskeiðiðin byggja á tónlistarleikjum og miklum söng. Innlent 17.3.2022 09:41
Kórinn hætti störfum þegar kórstjórinn sagði upp vegna eineltis Þjóðkirkjan hefur nú til skoðunar að minnsta kosti sjö mál er varða ásakanir á hendur séra Gunnari Sigurjónssyni, sóknarpresti í Hjallakirkju, um kynferðislega áreitni, kynbundið ofbeldi og einelti. Innlent 11.2.2022 06:59
Hverfakórar í Reykjavík – aukum aðgengi barna að tónlistarnámi Í Reykjavík blómstrar öflugt tónlistarlíf sem hefur hlotið verðskuldaða athygli á heimsvísu. Rannsóknir sýna fram á ótvíræðan ávinning barna af því að stunda tónlistarnám. Í dag fer fram eins öflugt tónlistaruppeldi og tök eru á bæði innan leik- og grunnskóla, skólahljómsveita og tónlistarskóla. Skoðun 4.2.2022 10:01
Auður Perla Svansdóttir er látin Auður Perla Svansdóttir, matvælafræðingur og formaður Mótettukórsins, er látin, 52 ára að aldri. Hún lést á Landspítalanum 6. janúar síðastliðinn. Innlent 13.1.2022 07:17
Mikill vatnsleki í kjallara Háteigskirkju Slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út í morgun vegna vatnsleka í kjallara Háteigskirkju. Innlent 28.6.2021 12:43
Mótettukórinn söng sinn hinsta söng við Hallgrímskirkju Mótettukórinn og stjórnandi hans kvöddu Hallgrímskirkju á táknrænan hátt eftir 39 ára starf í kvöld. Stjórnandinn, sem verið hefur kantor og organisti í kirkjunni, hætti störfum í dag vegna deilna vil sóknarnefnd kirkjunnar. Innlent 31.5.2021 20:00
Fluttu verkið við gosstöðvarnar Óháði kórinn flutti tónverkið Drunur - Lýsingar úr Kötlugosi eftir tónskáldið og dagskrárgerðarmanninn Friðrik Margrétar Guðmundsson við gosstöðvarnar í gærkvöldi og var flutningurinn tekin upp á myndband. Lífið 26.5.2021 14:30