Lífið

Nýr kór þing­manna ætlar að troða upp eftir tvær vikur

Jakob Bjarnar skrifar
Jakob Frímann Magnússon er kórstjóri hins nýstofnaða Alþingismannakórs. Frumraun kórsins verður í þingmannaveislu 8. mars.
Jakob Frímann Magnússon er kórstjóri hins nýstofnaða Alþingismannakórs. Frumraun kórsins verður í þingmannaveislu 8. mars. vísir/vilhelm

Mikil leynd hvílir yfir starfsemi nýstofnaðs Alþingismannakórs en Jakob Frímann Magnússon, Flokki fólksins, er kórstjóri.

Jakob fangaði því í ræðu nú áðan að í dag hafi fyrsta æfing alþingiskórsins nýstofnaða verið haldin. Og svo ekki orð um það meira.

Inga fékk gæsahúð af einskærri gleði

Vísi tókst ekki að ná í Jakob til að inna hann nánar eftir starfi kórsins en náði hins vegar í skottið á einni sópransöngkonu sem var hátt uppi eftir æfinguna, sem fram fór í hádeginu. Um er að ræða Ingu Sæland, formann Flokks fólksins og hún segir stefna í 20 manna kór. Þeir sem mættu á fyrstu æfinguna voru 14 en vitað er um 6 til 8 manns sem ekki komust vegna anna við nefndarstörf og annað.

„Þetta var dásamlegt. Já, ég er sópranskvísa,“ segir Inga sem upplýsir að Jakob stjórni kórnum af mikilli fagmennsku. Kórinn er með allar raddir; bassa, tenór, alt og sópran. Og fengu meðlimir kórsins skrár með sínum röddum og svo var þetta stillt saman í dag.

Inga er sópranskvísa í kórnum og hún fékk gæsahúð á fyrstu æfingunni, svo vel hljómuðu raddir hins þverpólitíska kórs.vísir/vilhelm

„Þetta var yndislegt og gekk vel. Maður fékk bara gæsahúð af gleði. Við getum alveg sungið saman. Þvílíkar raddir hérna. Fallegur samsöngurinn hér á þinginu, að minnsta kosti á kóræfingum hjá honum Jakobi.“

Þverpólitískur kór

Inga segir að kórinn skipi fulltrúar úr öllum flokkum og þetta hafi verið fagur samsöngur sem fyllti loftin. Tvö lög voru æfð í dag en leynd ríkir um hvaða lög. Það komi allt í ljós.

„Við ætlum að troða upp í fyrsta skipti í þingmannaveislunni sem verður 8. mars. Þetta eru örfáar æfingar og svo verður okkur hent í djúpu laugina. Það er draumur að rætast hér. Við erum brosmild og glöð í þinginu í dag,“ segir Inga.

Formaður flokksins er sannfærð um að söngurinn lengi lífið:

„Það er ótrúleg fegurð í því að átta ólíkir flokkar á alþingi bresta glöð saman í söng. Ég ætla að þetta muni vekja athygli víðar en hér heima, til að mynda að þeir hætti að slást í Bretlandi og tekið okkur sér til fyrirmyndar. Mörg þjóðþing þar sem ekki veitti af að létta sér lundina með söng.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×