Play
7 8 9 10 11 12 13 14 15 … 15 ›
Umsækjendur látnir byggja flugvél með legókubbum undir dúndrandi tónlist Hátt í fimm þúsund manns sóttust eftir því að verða flugmenn og flugliðar hjá flugfélaginu Play, þegar auglýst var eftir umsóknum fyrr á þessu ári. Umsækjendur voru látnir byggja flugvél með legókubbum með háværa tónlist í eyrunum og spurðir í hvaða hljómsveit forstjórinn hefði spilað á trommur. Innlent 5.4.2022 20:01
Munu fljúga til Liverpool og Genfar næsta vetur Flugfélagið Play hyggst fljúga til Liverpool í Englandi og Genf í Sviss næsta vetur. Flogið verður tvisvar í viku til beggja áfangastaðanna. Viðskipti innlent 5.4.2022 08:04
Óábyrgt að bregðast ekki við hækkandi olíuverði, segir forstjóri PLAY Forstjóri PLAY segir óhjákvæmilegt að sérstakt eldsneytisálag sé greitt ofan á farmiða félagsins, líkt og tilkynnt var um í síðustu viku. Innherji 28.3.2022 07:01
Icelandair hækkar farmiðaverð 1. apríl Sérstakt eldsneytisálag, sem er hluti af farmiðaverði Icelandair, verður hækkað frá og með 1. apríl. Hækkar það úr 5.100 krónum í 6.900 krónur þegar flogið er til Evrópu og úr 8.900 í 12.300 krónur fyrir þegar flogið er til áfangastaða í Norður-Ameríku. Neytendur 25.3.2022 14:49
Play tekur upp olíugjald á miðaverð vegna hækkana Flugfélagið Play mun taka upp sérstakt olíugjald á miðaverð eftir helgi til þess að mæta miklum hækkunum á eldsneytisverði. Félagið skilaði nærri þriggja milljarða króna tapi á síðasta ári - sem forstjórinn segir engan veginn til marks um skipsbrot. Viðskipti innlent 17.3.2022 11:37
Bein útsending: Kynning á uppgjöri fjórða ársfjórðungs hjá Play Flugfélagið Play mun kynna uppgjör sitt fyrir fjórða ársfjórðung á opnum kynningarfundi sem hefst klukkan 8:30. Þar mun þau Birgir Jónsson forstjóri og Þóra Eggertsdóttir fjármálastjóri kynna uppgjörið og svara spurningum. Viðskipti innlent 17.3.2022 08:01
2,9 milljarða tap en gera ráð fyrir hagnaði á síðari hluta ársins Tekjur flugfélagsins Play námu 16,4 milljónum Bandaríkjadala á árinu 2021 en tap ársins nam 22,5 milljónum dala, eða um 2,9 milljörðum íslenskra króna. Tekjur voru lægri en áætlanir gerðu ráð fyrir vegna neikvæðra áhrifa Covid-19 en kostnaður var samkvæmt áætlunum. Viðskipti innlent 16.3.2022 18:29
Fimmtán flugfélög með reglulegt flug til Íslands í ár og 25 í sumar Fimmtán flugfélög hyggjast fljúga hingað til lands reglulega í ár og alls munu 25 bjóða upp á flug til Íslands í sumar. Árið 2019, fyrir heimsfaraldur, voru það fjórtán flugfélög sem flugu allan ársins hring til Íslands, en líkt og í ár voru það 25 flugfélög sem flugu til Íslands sumarið 2019. Viðskipti innlent 10.3.2022 07:15
Sætanýting hjá Play jókst milli mánaða Flugfélagið Play flutti 19.686 farþega nýliðnum febrúarmánuði og var sætanýting 67,1 prósent, samanborið við 55,7 prósent í janúar. Viðskipti innlent 7.3.2022 13:53
Flugfélögin leiða lækkanir á eldrauðum markaði Það hefur verið rautt að litast um í kauphöllinni í morgun. Flugfélögin tvö, Icelandair og Play hafa lækkað mest. Viðskipti innlent 7.3.2022 10:21
Hættir sem framkvæmdastjóri hjá Play og einbeitir sér að fluginu Guðni Ingólfsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs Play. Guðni tekur við sem framkvæmdastjóri af Arnari Má Magnússyni, einum af stofnendum Play. Þetta kemur fram í tilkynningu Play til Kauphallar. Viðskipti innlent 4.3.2022 16:14
Glæný flugvél bætist í flota Play Flugfélagið PLAY hefur fengið glænýja Airbus A320neo flugvél afhenta. Vélin kemur beint úr verksmiðju flugvélaframleiðandans í Frakklandi og sú fyrsta af þessari tegund í flota flugfélagsins. Viðskipti innlent 2.3.2022 19:49
Kóngsbakki tvöfaldar hlut sinn í Play, félag Andra selur í fyrsta sinn Eignarhaldsfélagið Kóngsbakki, sem er í eigu hjónanna Gunnars Örlygssonar og Guðrúnar Hildar Jóhannsdóttur, bætti umtalsvert við hlut sinn í Play í síðasta mánuði og er núna tólfti stærsti eigandi flugfélagsins með rúmlega tveggja prósenta hlut. Innherji 2.3.2022 18:13
Play bætir við áfangastað í Norður-Ameríku Íslenska flugfélagið Play hefur opnað fyrir miðasölu á flugi til Orlando í Bandaríkjunum. Fyrsta flug félagsins til Orlando verður 30. september næstkomandi en þangað verður flogið þrisvar í viku. Viðskipti innlent 23.2.2022 08:10
PLAY ræsir miðasölu til Orlando, sjá mikið svigrúm til verðlækkana PLAY hefur hafið miðasölu á flugi til Orlando í Flórída sem verður fjórði áfangastaður flugfélagsins í Bandaríkjunum. Birgir Jónsson, forstjóri Play, segir flugfélagið geta boðið mun hagstæðari fargjöld til Orlando en tíðkast hafa hingað til. Innherji 23.2.2022 08:00
Öllu flugi í fyrramálið frestað eða aflýst Öllu flugi íslensku flugfélaganna til og frá Keflavíkurflugvelli í nótt og í fyrramálið hefur verið frestað eða aflýst vegna óveðursins. Allar flugferðir Icelandair frá Bandaríkjunum til landsins í kvöld hefur einnig verið frestað um sólarhring. Innlent 21.2.2022 16:23
Sagt upp hjá PLAY vegna gruns um ofbeldi Millistjórnanda hjá flugfélaginu PLAY hefur verið sagt upp störfum í kjölfar atviks á skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur um síðustu helgi. Millistjórnandinn er samkvæmt heimildum fréttastofu grunaður um ofbeldi gagnvart samstarfsmanni, flugliða hjá félaginu. Innlent 18.2.2022 15:34
Anna Fríða ráðin forstöðumaður markaðsmála hjá Play Anna Fríða Gísladóttir hefur verið ráðin forstöðumaður markaðsmála hjá flugfélaginu Play. Hún tekur við stöðunni af Steinari Þór Ólafssyni. Viðskipti innlent 10.2.2022 10:09
Öllu flugi Play á morgun aflýst Öllum flugferðum Play á morgun hefur verið aflýst, vegna ofsaveðursins sem útlit er fyrir að skelli á landinu í nótt. Innlent 6.2.2022 15:20
Fjallað um Play erlendis: „Nýju flugfélögin sem þú hefur örugglega aldrei heyrt um“ „Þetta eru nýju flugfélögin sem þú hefur örugglega aldrei heyrt um: Breeze, Aha, Avelo, Play. Þau bjóða upp á verð sem láta þig líklega staldra við.“ Viðskipti innlent 6.2.2022 08:01
PLAY boðar lægsta verðið til New York, spara milljónir dala á lítt þekktum velli Flugfélagið PLAY getur boðið lægstu fargjöldin á flugi frá New York til Evrópu eftir að hafa náð hagstæðum samningum við lítinn flugvöll í nágrenni borgarinnar. Flugfélagið tryggði sér þannig mun betri kjör en keppinautar þess fá á stærri og þekktari flugvöllum í New York. Innherji 1.2.2022 08:00
Ferðalöngum snúið við vegna vonskuveðurs Öllu flugi Icelandair, sem fara átti frá Keflavíkurflugvelli fyrir hádegi í dag, hefur verið aflýst vegna vonskuveðurs. Flugi Play til Tenerife og Alicante hefur sömuleiðis verið frestað um sólarhring. Innlent 25.1.2022 07:36
Vindurinn veldur vandræðum á Keflavíkurflugvelli Ferðalangar, sem lentu á Keflavíkurflugvelli á leiðinni frá Tenerife með flugvél Play í kvöld, munu þurfa að bíða eitthvað eftir að komast heim en svo mikið rok er á flugvellinum að ekki er hægt að hleypa farþegum inn á Leifsstöð. Innlent 11.1.2022 23:45
Farþegar sátu fastir í vélinni í einn og hálfan tíma Farþegar frá Kaupmannahöfn sátu fastir í flugvél Play þar sem ekki var hægt að nota landganga. Farþegar fá ekki töskur sínar fyrr en á morgun. Icelandair aflýsti tveimur flugferðum í kvöld vegna veðurs. Innlent 10.1.2022 00:53
Ekki þurft að fljúga tómum vélum vegna reglna ESB Nýverið greindi Lufthansa Group frá því að samstæðan sæi fram á fljúga minnst átján þúsund flugferðir í vetur sem það myndi undir eðlilegum kringumstæðum vilja fella niður vegna fárra farþega. Viðskipti innlent 8.1.2022 23:53
Stærsti hluthafinn selt í Play fyrir um milljarð en keypt í Icelandair Akta sjóðir, sem voru á meðal þeirra fjárfesta sem leiddu fjármögnun Play á árinu 2021, hafa á síðustu þremur mánuðum selt yfir þriðjung allra bréfa sinna í flugfélaginu. Innherji 4.1.2022 13:00
Forstjóri PLAY: „Við höfum séð að það er bara verðið sem skiptir máli“ Bandaríkjaflug PLAY, sem hefst í vor, gjörbreytir viðskiptalíkani íslenska flugfélagsins og leiðir til þess að umsvifin aukast gríðarlega. Birgir Jónsson, forstjóri PLAY, segir félagið í góðu færi til að sækja markaðshlutdeild á tengimarkaðinum yfir Norður-Atlantshafið með lágum verðum. Verðið sé það sem skipti mestu máli þegar upp er staðið. Innherji 16.12.2021 11:27
Play hefur miðasölu vestur um haf Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á flugi til bandarísku borganna Boston og Washington D.C. Fyrsta flugið til bandarísku höfuðborgarinnar Washington verður 20. apríl næstkomandi og til Boston 11. maí. Viðskipti innlent 16.12.2021 11:04
Flugvélar Play með besta nýja útlit ársins Útlit flugvéla flugfélagsins Play hlaut verðlaun TheDesignAir fyrir besta nýja útlit ársins í flugheiminum. Viðskipti innlent 9.12.2021 19:04
Töluverðar raskanir á flugsamgöngum vegna óveðursins Óveðrið í dag hefur haft töluverð áhrif á flugsamgöngur en aðeins ein vél lenti á Keflavíkurflugvelli frá því í morgun og þar til seinnipartinn í dag. Innlent 5.12.2021 16:50