Ólga innan Eflingar
1 2 3 4 5 6 7 … 8 ›
Drífa: Samskiptin við Sólveigu og Ragnar hafa gert störfin óbærileg á köflum Drífa Snædal fráfarandi forseti Alþýðusambands Íslands segir að samskiptin við formenn VR og Eflingar hafi gert störf hennar á köflum óbærileg. Hún hafi ekki getað ímyndað sér að sitja áfram við þessar aðstæður. Á ýmsu hefur gengið innan hreyfingarinnar síðustu misseri. Drífa segir: „Ég hef oft þurft að bíta í tunguna á mér.“ Innlent 10.8.2022 11:23
Efling búin að greiða skattinn Stéttarfélagið Efling er búið að skila skattgreiðslum starfsmanna sinna til Skattsins, tveimur mánuðum of seint. Fyrrverandi starfsmaður Eflingar segir málið stangast á við tilgang félagsins. Innlent 9.8.2022 23:35
Helmingur nýráðinna hafa áður starfað hjá Eflingu Efling hefur nú lokið við að ráða í störf tæplega tuttugu starfsmanna sem auglýst voru í apríl. Á heimasíðu félagsins segir að rúmur helmingur þeirra hafi reynslu af störfum fyrir félagið. Viðskipti innlent 1.6.2022 08:01
Viðar ráðinn aftur til Eflingar Stjórn Eflingar hefur samþykkt ráðningar hóps stjórnenda sem munu hefja störf á næstu vikum. Meðal þeirra er Viðar Þorsteinsson. Innlent 27.5.2022 20:14
Perla Ösp nýr framkvæmdastjóri Eflingar Perla Ösp Ásgeirsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Eflingar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eflingu. Perla Ösp á að baki ellefu ár sem framkvæmdastjóri áhættustýringar hjá Landsbankanum en sagði upp störfum hjá bankanum fyrir ári. Viðskipti innlent 23.5.2022 15:25
Allir starfsmenn Eflingar ráðnir tímabundið til hálfs árs Allir þeir sem verða ráðnir til starfa á skrifstofu Eflingar verða ráðnir tímabundið til hálfs árs á meðan látið er reyna á nýtt skipulag á skrifstofunni. Öllum starfsmönnum skrifstofunnar var sagt upp störfum í síðasta mánuði, í kjölfar sigurs Sólveigar Önnu Jónsdóttur í formannskosningum í febrúar. Innlent 10.5.2022 08:10
„Aldrei hægt að réttlæta skipulagsbreytingar sem ástæðu hópuppsagna“ Stjórn Húss Fagfélaganna segir aldrei hægt að réttlæta hópuppsagnir með skipulagsbreytingum eða jafnlaunavottum. Hún segir jafnframt ekki hægt að verja gjörðir meirihlutar stjórnar Eflingar um hópuppsögn á skrifstofu félagsins. Innlent 3.5.2022 22:02
Nauðsynlegt að verkalýðshreyfingin nái aftur vopnum sínum Mikilvægt er nú sem aldrei fyrr að verkalýðshreyfingin og láglaunafólk standi saman að sögn verkalýðsforingjanna. Formaður Eflingar segir enn mikla ólgu innan hreyfingarinnar en að horfa þurfi fram á við. Innlent 1.5.2022 21:00
Tæp tuttugu prósent telja hópuppsögn starfsfólks Eflingar réttlætanlega Yfirgnæfandi meirihluti landsmanna telur hópuppsögn alls starfsfólk Eflingar hafa verið óásættanlega. Tæplega fimmtungur fólks telur hana hafa verið réttlætanlega. Innlent 1.5.2022 14:41
Sakar stjórn Eflingar um að vega að grundvallarréttindum launafólks Trúnaðarráð Bárunnar fordæmir uppsögn alls starfsfólks Eflingar og segir ákvörðun stjórnarinnar þess efnis ósvífna og óskiljanlega. Fréttir 1.5.2022 11:51
Felldu tillögu um að fordæma hópuppsögnina Trúnaðarráð VR felldi í gær tillögu fyrrverandi formanns félagsins um að fordæma hópuppsögn á skrifstofu Eflingar. Þrátt fyrir það er það einróma skoðun þeirra sem eru í trúnaðarráðinu að hópuppsögnin sé fáránleg aðgerð og skaðleg verkalýðshreyfingunni, samkvæmt þeim sem fréttastofa ræddi við og sátu fundinn í gær. Innlent 28.4.2022 18:41
Hin ósáttu þurfi að kynna sér grundvallarreglur lýðræðisins Á fjölmennum félagsfundi Eflingar á Hlíðarenda í gærkvöldi var tillaga um að draga til baka hópuppsagnir felld. Anna Sigurlína Tómasdóttir, trúnaðarmaður starfsfólks Kjöríss hjá Eflingu og Ólöf Helga Adolfsdóttir, ritari stjórnar Eflingar, segja félagið nú vera klofið. Núverandi formaður segir að þau sem ekki geti unað niðurstöðunni þurfi að kynna sér grundvallarreglur lýðræðisins. Innlent 28.4.2022 13:45
Segja Eflingarfélaga hafa varið stjórnina gegn atlögu Sólveig Anna Jónsdóttir og Baráttulisti hennar túlkar niðurstöðu félagsfundar Eflingar á þá leið að þar hafi félagsmenn varið stjórn félagsins gegn atlögu að stjórn félagsins af hálfu starfsfólks skrifstofu Eflingar og stuðningsmanna A-listans. Innlent 27.4.2022 23:49
Sjá ekki hvernig Efling geti varið hag annarra sem lenda í hópuppsögnum Anna Sigurlína Tómasdóttir, trúnaðarmaður starfsfólks Kjörís í Hveragerði hjá Eflingu telur að félagsfundur stéttarfélagsins í kvöld sýni að félagið sé klofið. Ólöf Helga Adolfsdóttir, fyrrverandi varaformaður félagsins, vonast til þess að þeir sem séu ósáttir með hópuppsagnirnir leiti ekki á önnur mið, heldur berjist fyrir breytingum innan félagsins. Innlent 27.4.2022 23:40
Felldu tillögu um að draga hópuppsagnir til baka: „Brennum ekki húsið okkar“ Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, hvatti félagsmenn til að styðja kjörna forystu Eflingar, á félagsfundi félagsins á Hlíðarenda sem nú stendur yfir. Sólveig Anna gagnrýndi harkalega þá félagsmenn sem hafa gagnrýnt hana undanfarnar vikur. Tillaga um að draga hópuppsagnir á skrifstofu Eflingar var felld á fundinum. Innlent 27.4.2022 22:18
Munu leggja fram tillögu þar sem skorað er á stjórnina að draga uppsagnirnar til baka Skorað verður á stjórn Eflingar að draga hópuppsagnir á skrifstofu félagsins til baka en tillögu að ályktun þess efnis verður lögð fram á félagsfundi sem hófst fyrr í kvöld. Heitar umræður hafa skapast um uppsagnirnar undanfarnar vikur og er viðbúið að fundurinn standi yfir langt fram á kvöld. Innlent 27.4.2022 19:50
Hitafundur félagsmanna Eflingar hafinn á Hlíðarenda Félagsfundur Eflingar þar sem umræðuefnið er skipulagsbreytingar á skrifstofu félagsins hefst klukkan 18 í Valsheimilinu. Boðað var til fundarins í kjölfar þess að tillaga nýkjörins formanns Eflingar þess efnis að segja upp öllu starfsfólki á skrifstofunni. Innlent 27.4.2022 18:00
Ég treysti Sólveigu Önnu Jónsdóttur til að leiða Eflingu Ég er Eflingarfélagi og hef verið lengi á vinnumarkaði. Ég hef unnið umönnunarstörf og er í dag félagsliði. Ég man vel eftir þeirri breytingu sem varð í Eflingu þegar Sólveig Anna Jónsdóttir kom inn sem formaður árið 2018. Skoðun 26.4.2022 12:33
Hópuppsögn Eflingar Í nýlegum greinum til stuðnings meirihluta stjórnar er gagnrýni á þá ákvörðun að segja upp öllu starfsfólki félagsins og auglýsa stöður þess lausar til umsóknar, lögð að jöfnu við árás á rétt félagsins til að ráða eigin málefnum. Skoðun 26.4.2022 10:00
Segir starfsmann skrifstofu Eflingar fara með rangt mál Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, hefur leiðrétt fullyrðingar sem trúnaðarmaður á vinnustaðnum lét falla í viðtali við mbl.is. Hún segir hann fara með rangt mál. Innlent 25.4.2022 20:23
Efling boðar til félagsfundar Stjórn stéttarfélagsins Eflingar fundaði í kvöld og ákvað tímasetningu fyrir félagsfund. Þetta kemur fram í tölvupósti sem sendur var til félagsmanna Eflingar í kvöld. Innlent 24.4.2022 22:28
Hver ræður? Það munu væntanlega margir telja hel frosið í neðra þegar ég fer að taka upp hanskann fyrir verkalýðsfélagi og Sósíalista. Tel ég því næsta formsatriði að ég fái persónulega afsökunarbeiðni frá Gunnari Smára fyrir að hafa verið fleygt út úr Facebook-síðu sósíalista. Það er nú samt svo að þegar mér finnst menn eða málefni fá óréttláta og oft á tíðum ranga umfjöllun þá er ég tilbúinn að tjá mig hvort sem fólk hallast til vinstri eða hægri. Skoðun 24.4.2022 20:00
Erlendir félagsmenn Eflingar lýsa yfir stuðningi við Sólveigu Önnu Fimm erlendir félagsmenn Eflingar lýsa yfir eindregnum stuðningi við Sólveigu Önnu Jónsdóttur formann félagsins og segjast vera í áfalli vegna ásakana um fordóma Sólveigar gagnvart erlendu fólki. Innlent 23.4.2022 13:25
We Are Foreign and We Feel Welcome in Efling Union We the undersigned are all born outside of Iceland. What we also have in common is that we are all doing low wage jobs and are therefore members of Efling Union. Skoðun 23.4.2022 12:31
Til félaga í Eflingu Dúsur róa og gleðja. Launakerfi mora í dúsum – nema hjá láglaunafólki. Hjá öðrum hópum finnast mýmargar. Þetta getur verið laxveiðiferð, kaupréttarauki, digur viðbót við viðbótarlífeyri, ókeypis matur, kostað nám, föst yfirvinna, sérstök líkamsræktaraðstaða fyrir starfsfólk, fastur ökutækjastyrkur eða bíll til afnota, mjög veglegar jólagjafir, frí afnot sumarhúsa. Mætti lengi telja. Skoðun 22.4.2022 17:31
Félagsmenn Eflingar hafa leitað til VR vegna hópuppsagnar Fjölmargir sem misstu starfið í hópuppsögn hjá Eflingu hafa leitað til VR eftir aðstoð, líka félagsmenn Eflingar. Formaður VR er bjartsýnn á að verkalýðshreyfingin muni ná að þétta raðirnar fyrir næstu kjarasamningalotu þrátt fyrir allt sem hefur gengið á innan hreyfingarinnar. Tími sé kominn til að bera klæði á vopnin. Innlent 22.4.2022 12:03
Segir Agnieszku hafa reynt að þvinga fram fund ólöglega Formaður Eflingar segir framferði varaformanns Eflingar fyrir neðan allar hellur í tengslum við kröfu um félagsfund og sakar hana um að reyna að knýja fram slíkan fund ólöglega. Þá muni hún fara eftir lögum félagsins og ekki reyna að koma í veg fyrir að félagsfundur verði haldinn. Innlent 20.4.2022 22:03
Vill að uppsagnir verði dregnar til baka: „Þetta kemur öllu verkafólki Íslands við” Trúnaðarmaður Eflingar í Kjörís segir hópuppsagnir félagsins skaða alla verkalýðshreyfingu landsins og setja vont fordæmi fyrir komandi kjaraviðræður. Félagsmenn Eflingar krefjast félagsfundar til að ræða uppsagnirnar og ætlar stjórnin að verða við því. Innlent 20.4.2022 21:29
Hópuppsagnirnar hjá Eflingu mistök að mati Vilhjálms Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness og nýkjörinn formaður Starfsgreinasambandsins segir að stjórn Eflingar hafi gert mistök með því að ráðast í hópuppsagnir á skrifstofu félagsins. Innlent 20.4.2022 12:38
Félagsmenn foxillir eftir tölvupóst Sólveigar Önnu Stjórn Eflingar hyggst ræða kröfur fimm hundruð félagsmanna um að halda félagsfund. Tölvupóstur frá formanni félagsins hefur vakið reiði félagsmanna og segir varaformaður Eflingar formanninn vera að eyðileggja starf verkalýðshreyfingarinnar. Forsvarsmenn félagsins urðu ekki við beiðni um viðtal í morgun. Innlent 20.4.2022 12:31