Lög og regla

Fréttamynd

Tóku feil og réðust á lögreglumenn

Fjórir karlmenn og ein kona réðust að ómerktum lögreglubíl í Hafnarfirði og skemmdu töluvert skömmu fyrir klukkan eitt á aðfaranótt föstudags. Í bílnum voru tveir óeinkennisklæddir lögreglumenn við eftirlit. Fólkið fór mannavillt og var handtekið.

Innlent
Fréttamynd

Fellur á formsatriðum

Hjörleifur Guttormsson, fyrrverandi alþingsmaður og ráðherra, vann í gær mál sem íslenska ríkið, Alcoa á Íslandi og Fjarðarál höfðu áfrýjað, eftir að Héraðsdómur dæmdi Hjörleifi í vil fyrr á árinu.

Innlent
Fréttamynd

Dæmdur fyrir skattsvik

Maður á fimmtugsaldri var í dag dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu 14,7 milljóna króna fyrir skattsvik og bókhaldsbrot á árunum 1998 til 2000.

Innlent
Fréttamynd

Tóbaksdómur fer fyrir Hæstarétt

Áfrýjað hefur verið til Hæstaréttar dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Japan Tobacco og tóbaksverslunarinnar Bjarkar frá því lok apríl. Í honum var hafnað kröfum um að stilla mætti út tóbaksvörum og um að tóbaksframleiðandinn mætti birta upplýsingar um tóbaksvarning sinn, svo sem um útlitsbreytingar pakkninga eða breytingar á tóbaksblöndun.

Innlent
Fréttamynd

Dæmdur fyrir tilraun til manndráps

Rúmlega fertugur maður var í dag dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í eins og hálfs árs óskilorðsbundið fangelsi fyrir tilraun til manndráps. Hann stakk vin fyrrverandi sambýliskonu sinnar með hnífi fyrir framan hús hennar við Bjargartanga í Mosfellsbæ í byrjun febrúar.

Innlent
Fréttamynd

Tólf mánaða fangelsi fyrir smygl

Tuttugu og níu ára gamall maður var í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdur í eins ár fangelsi fyrir smygl á rúmlega 200 grömum af kókaíni frá Þýskalandi til Íslands.

Innlent
Fréttamynd

Sex mánuði fyrir rassskellinguna

Sævar Óli Helgason var í gær dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir að rjúfa skilorð með því að rassskella leikskólakennara sem lagði fyrir innkeyrslu hans í fyrrahaust.

Innlent
Fréttamynd

Fíkniefni ætluð til sölu

Lögreglan í Kópavogi handtók tvo menn í bíl upp úr miðnætti í nótt og fannst á þeim töluvert magn fíkniefna. Fíkniefnin voru í sölupakkningum. Mennirnir, sem eru tvítugir, játuðu við yfirheyrslur sinn þátt og telst málið upplýst.

Innlent
Fréttamynd

3 milljóna bótakröfu vísað frá

Skaðabótakröfu konu sem rann í hálku á göngustíg við Fannborg í Kópavogi veturinn 1999 var í dag hafnað í Héraðsdómi Reykjavíkur. Konan fór fram á tæpar þrjár milljónir króna auk vaxta.

Innlent
Fréttamynd

Bílþjófnaður og skemmdarverk

Tveir piltar eru nú í haldi lögreglunnar í Reykjavík vegna bílþjófnaðar og skemmdarverka. Þeir voru handteknir á fjórða tímanum í nótt eftir að þeir höfðu brotist inn í og skemmt nokkra bíla í Höfðahverfi og í framhaldinu stolið einum og ekið honum í sandgryfju Björgunar þar skammt frá.

Innlent
Fréttamynd

Málinu vísað frá

Máli sem Auður Sveinsdóttir Laxness höfðaði gegn Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni, prófessor, var í gær vísað frá í Héraðsdómi Reykjavíkur. Auði var að auki gert að greiða Hannesi fimmhundruð þúsund krónur í málskostnað.

Innlent
Fréttamynd

Ástþóri dæmdar 400 þúsund krónur

Sjóvá-Almennum var í gær gert að greiða Ástþóri Magnússyni 400 þúsund krónur í bætur, fyrir skemmdir á bíl hans sem tekin var ófrjálsri hendi í mars síðast liðnum.

Innlent
Fréttamynd

Árs fangelsi fyrir kókaínsmygl

Maður á þrítugsaldri var í dag dæmdur í Héraðsdómi í árs fangelsi fyrir að hafa reynt að smygla 226 grömmum af kókaíni til landsins innvortis þann 19. desember síðastliðinn. Kókaínið var í 59 pakkningum og var fjarlægt úr líkama mannsins með aðgerð á sjúkrahúsi. Þetta er þriðji dómurinn sem maðurinn fær og því þótti hann hæfilegur tólf mánuðir.

Innlent
Fréttamynd

Máli Hannesar vísað frá

Máli fjölskyldu Halldórs Laxness gegn Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni prófessor var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag vísað frá vegna annmarka á málatilbúnaði stefnanda. Ekkja Halldórs, Auður Sveinsdóttir, höfðaði mál gegn Hannesi vegna meints ritstuldar í bók hans um Nóbelsskáldið.

Innlent
Fréttamynd

EFTA úrskurði um ÁTVR

Hæstiréttur vill fá úrskurð EFTA-dómstólsins um það hvort ÁTVR sé heimilt að krefjast þess að víninnflytjendur afhendi vöruna á tilteknum vörubrettum og hvort að ÁTVR sé með því að beita mismunun. Auk þess skuli verðmæti vörubrettanna vera innifalið í vöruverði..

Innlent
Fréttamynd

Þrjú fíkniefnamál í nótt

Þrjú fíkniefnamál komu upp í Reykjavík í nótt. Að sögn lögreglu eru þau þó ekki stór. Málin voru ýmist í heimahúsum eða á götu úti og eru í frekari rannsókn.

Innlent
Fréttamynd

Þrjú innbrot sömu nóttina

Maður á fertugsaldri var í gær dæmdur í þrjátíu daga fangelsi fyrir þrjá þjófnaði og þrjár tilraunir til innbrots.

Innlent
Fréttamynd

Slapp við frekari refsingu

Maður á þrítugsaldri slapp við refsingu eftir að hann var fundinn sekur um að hafa gengið í skrokk á öðrum manni og lamið hann ítrekað í höfuðið.

Innlent
Fréttamynd

Fimm ákærðir vegna banaslyss

Ríkissaksóknari hefur ákært fimm menn fyrir vanrækslu þegar banaslys varð við Kárahnjúka í mars á síðasta ári. Málið var þingfest í Héraðsdómi Austurlands í morgun.

Innlent
Fréttamynd

Fimm menn ákærðir vegna banaslyss

Fimm menn, sem allir störfuðu við framkvæmdirnar á Kárahnjúkasvæðinu, hafa verið kærðir fyrir brot á lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, þann 15. mars í fyrra er ungur maður lést í vinnuslysi þegar tæplega fjörtíu kílóa þungt grjót hrundi ofan á hann úr hlíð Hafrahvammsgljúfurs.

Innlent
Fréttamynd

Hálft ár fyrir skjalafals

45 ára karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir skjalafals. Maðurinn seldi Íslandsbanka skuldabréf þann 27. ágúst í fyrra fyrir tvær og hálfa milljón króna en hann gaf bréfið út sama dag og hafði jafnframt falsað áritun á nafni konu í reit fyrir samþykki sjálfskuldarábyrgðarmanns. Ákærði játaði brot sitt fyrir dóminum.

Innlent
Fréttamynd

FÍB vill taka rannsókn upp aftur

Félag íslenskra bifreiðaeigenda krefst þess að ákvarðanir áfrýjunarnefndar samkeppnismála og samkeppnisráðs vegna ólögmæts samráðs tryggingafélaganna í bifreiðatryggingum verði felldar úr gildi og málið tekið til rannsóknar að nýju. Málflutningur í málinu stendur nú yfir fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Innlent
Fréttamynd

Ók utan í vegg í göngum

Vörubifreið var ekið utan í vegg í Hvalfjarðargöngum í gærkvöldi og voru göngin lokuð um stund vegna þessa. Bílstjórinn hlaut minni háttar meiðsl og var fluttur á sjúkrahúsið á Akranesi til aðhlynningar. Grunur leikur á að bílnum hafi verið stolið sunnan megin við göngin. Óhappið varð um klukkan níu en búið var að opna göngin að nýju rúmri klukkustund síðar og fór umferð því um Hvalfjörðinn á meðan.

Innlent
Fréttamynd

Þriggja bíla árekstur í Keflavík

Þriggja bíla árekstur varð á mótum Hringbrautar og Vesturgötu í Keflavík í gærkvöldi. Slys urðu ekki á fólki en ein bifreiðin var þó óökuhæf á eftir.

Innlent
Fréttamynd

Fylgjast með mótmælendum

Útlendingastofnun mun í samráði við lögregluyfirvöld fylgjast með erlendum mótmælendum sem hyggjast mótmæla Kárahnjúkavirkjun í sumar. Forstjóri stofnunarinnar segir ástæðu til að skoða hvort grípa þurfi til varúðarráðstafana.

Innlent
Fréttamynd

Athuga ráðstafanir vegna mótmæla

Forstjóri Útlendingastofnunar segir ríka ástæðu til að skoða hvort grípa þurfi til varúðarráðstafana vegna komu atvinnumótmælenda hingað til lands sem ætla að mótmæla framkvæmdunum við Kárahnjúka.

Innlent
Fréttamynd

Dæmd fyrir að stinga sambýlismann

Rúmlega þrítug kona var í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun dæmd í fimmtán mánaða fangelsi, þar af þrjá mánuði óskilorðsbundið, fyrir að stinga sambýlismann sinn í bakið þannig að hnífurinn gekk inn í lunga.

Innlent