Innlent

Tólf mánaða fangelsi fyrir smygl

Tuttugu og níu ára gamall maður var í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdur í eins ár fangelsi fyrir smygl á rúmlega 200 grömum af kókaíni frá Þýskalandi til Íslands. Maðurinn var með efnið innvortis og þurfti hann að gangast undir aðgerð á sjúkrahúsi til þess að losa sig við efnin. Í dómnum var tekið tillit til þess að maðurinn játaði verknaðinn, en einnig var horft til þess að um sterkt og ávanabindandi efni var að ræða og ætla má að það hafi verið ætlað til sölu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×