Innlent

Stakk sambýlismanninn í bakið

Kona á fertugsaldri var í gær dæmd í fimmtán mánaða fangelsi fyrir að stinga sambýlismann sinn í bakið með búrhnífi. Atvikið átti sér stað í íbúð þeirra við Kleppsveg. Bæði voru þau undir áhrifum áfengis og var maður hennar búinn að beita konu sína líkamlegu ofbeldi skömmu áður. Konan játaði að hafa reiðst snögglega og stungið mann sinn en dró úr játningunni með því að segjast hafa verið að hræða hann með verknaðinum og hann framinn í ógáti. Tólf mánuðir af dómnum eru skilorðsbundnir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×